Fréttablaðið - 02.04.2015, Side 49
FIMMTUDAGUR 2. apríl 2015 | MENNING | 33
Við
ætlum að
fagna
vorinu með
listasmiðju
fyrir alla
fjölskyld-
una
„Við ætlum að fagna vorinu með
listasmiðju fyrir alla fjölskyld-
una,“ segir Ásthildur Jónsdóttir sem
verður með leiðsögn og listasmiðju í
Listasafni Árnesinga í Hveragerði í
dag, skírdag milli klukkan 12 og 16.
Þar verður unnið út frá inntaki sýn-
ingarinnar ÁKALLs og óskum þátt-
takenda framtíðinni til heilla.
Í listasmiðjunni fá þátttakendur
að kynnast ýmiss konar listmun-
um sem frumbyggjar víðsvegar
um heiminn hafa notað til að leggja
áherslu á náttúruvernd.
„Við ætlum að fjalla um ólík tákn
og hvernig við getum lært hvert af
öðru,“ segir Ásthildur og tekur fram
að ýmiss konar náttúruleg efni verði
notuð og þátttakendur fái tækifæri
til að virkja eigin hugmyndir.
Listasafn Árnesinga er opið
um páskana eins og venjulega frá
fimmtudegi til sunnudags. Þangað
eru allir velkomnir sér að kostnað-
arlausu og á það líka við um lista-
smiðjuna. - gun
Vorinu fagnað með listasmiðju
Listasafn Árnesinga stendur fyrir fj ölskyldusamveru í dag þar sem sköpunar-
gleðin fær að njóta sín. Þar verða náttúruleg efni nýtt í anda frumbyggja.
ÚR NÁTTÚRUNNI Litríkar greinar verða viðfangsefni listasmiðjunnar.
Steinunn Jóhannesdóttir, rithöf-
undur og leikari, ætlar að segja
sögu hjónanna Hallgríms Péturs-
sonar og Guðríðar Símonardóttur
á Sögulofti Landnámssetursins í
Borgarnesi í kvöld, skírdag. Þar
staldrar hún við mikilvægustu
atriðin í þroskaferli skáldsins,
tengsl þeirra hjóna við háa sem
lága á 17. öld, ástir þeirra og átök
við yfirvöld, fátækt sem velsæld,
börn þeirra og barnamissi, skáld-
frægð, sjúkdóm og dauða.
Frásögnin hefst klukkan 20 í
kvöld.
Passíusálmar Hallgríms verða
svo fluttir í Borgarneskirkju í
heild sinni á morgun í umsjón
Steinunnar. Lesarar verða alls
tíu, flestir Borgnesingar og fólk
úr héraði flytur tónlist milli
þátta.
Ástir og átök
í lífi Hallgríms
og Guðríðar
RITHÖFUNDURINN Fáir eru fróðari um
Hallgrím og Guðríði en Steinunn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Næstkomandi laugardag opnar
listamaðurinn Victor
Ocares listasýn-
ingu sýna
Beauti-
ful
Stuff í
Kaktus
á Akur-
eyri.
Victor
Ocares
útskrifað-
ist úr mynd-
listardeild
Listaháskóla
Íslands vorið
2013 og hefur
verið iðinn við sýningarhald bæði
á Íslandi og erlendis.
Listsköpun hans er lituð dul-
hyggju sem leitar meðal annars
fanga í heimspeki og vísindum.
Sýningin verður opnuð kl. 16
og stendur opin fram á kvöld eða
þangað til tónleikar Mafama hefj-
ast í Kaktus kl. 21.
Að tónleikunum loknum mun DJ
Homo Electrus halda uppi stuðinu
til kl. 1.00. Allir eru velkomnir og
aðgangur er ókeypis. - mg
Myndlist með
dulhyggju
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
C
-B
F
D
C
1
6
3
C
-B
E
A
0
1
6
3
C
-B
D
6
4
1
6
3
C
-B
C
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K