Fréttablaðið - 02.04.2015, Blaðsíða 54
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
„Þetta er svo kúl aldur, þær eru
svona alveg í einhverju fullkomnu
millibilsástandi. Eru meðvitaðar en
langt frá því að vera fullorðnar og
einhvern veginn ekki enn þá börn,“
segir danshöfundurinn og dansar-
inn Ásrún Magnúsdóttir, sem vinn-
ur nú að nýju dansverki og leitar að
unglingsstelpum sem hafa áhuga á
að taka þátt í verkefninu.
Verkið ber vinnuheitið Teenage
Girls og að sögn höfundarins fjallar
það um að vera unglingsstelpa í dag,
Unglingsstelpur
eru aðalmálið
Ásrún Magnúsdóttir, dansari og danshöfundur, vinn-
ur að dansverki með unglingsstelpur í aðalhlutverki.
VAR EINU SINNI UNGLINGSSTELPA Ert þú unglingsstelpan sem Ásrún leitar að
fyrir dansverkið Teenage Girls? FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SERIAL (BAD) WEDDINGS
MYNDIN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM
SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI AKUREYRI!
Sýnd með
íslensku tali
í 2D og 3D
Sýningartímar á
midi.is og laugarasbio.is
GLEÐILEGA PÁSKA
OPIÐ ALLA PÁSKANA!
siSAM
en sá hópur samfélagsins veitir
henni mikinn innblástur.
„Það er aðallega af því að ég hef
verið að kenna unglingsstelpum í
allan vetur og hef verið svo inspír-
eruð af þeim. Svo er The Virgin
Suicides ein uppáhaldsmyndin mín.“
Hún segir tengslin við unglings-
stelpur þó aðallega myndast af því
að hún hafi sjálf verið ein slík á
ákveðnum tíma í sínu lífi og langi
til þess að gefa þeim rödd. „Þótt ég
sé enginn sérfræðingur í unglings-
stelpum þá hef ég verið slík sjálf og
það erum við sem höfum verið það
og þær sem eru það í dag sem erum
eina fólkið sem veit hvernig það er,“
segir hún hress.
Að undanförnu hefur Ásrún
undir búið verkefnið með því að
skrifa niður ýmiss konar minning-
ar frá sínum unglingsárum og segir
það áhugavert hversu mörg atvik og
aðstæður séu sameiginleg upplifun
allra þeirra sem gengið hafa í gegn-
um þetta tímabil.
„Ég hef verið að skrifa alls konar
minningar frá unglingsárunum og
svo las ég þetta upp fyrir hóp af fólki
og það voru mjög margar fyrrver-
andi unglingsstelpur sem tengdu við
það,“ segir Ásrún hress og bætir við
að hún muni mögulega nota eitthvað
af eigin upplifunum og minningum
í verkið, en hún hefur einnig verið í
samstarfi við sumarbúðaverkefnið
Stelpur rokka. „Planið er að búa til
eina risastóra unglingsstelpuhljóm-
sveit sem dansar, syngur, spilar og
performerar, allt í senn.“
Þær stelpur og foreldrar þeirra
sem hafa áhuga á að taka þátt í verk-
efni Ásrúnar geta sent henni póst
á netfangið asrunm@gmail.com.
Engin krafa er gerð á reynslu af því
að dansa, leika eða spila á hljóðfæri,
einungis áhugi á því að koma fram.
gydaloa@frettabladid.is
Það kom Nancy Shevell, eigin-
konu bítilsins Pauls McCartney,
mjög á óvart þegar hann hóf sam-
starf við rapparann Kanye West.
McCartney
gerði nýverið
lagið Four-
FiveSeconds
ásamt West
og söngkon-
unni Rihönnu
en Shevell var
ekki skemmt.
Sérstak-
lega fer fyrir
brjóstið á henni
orðanotkunin í laginu sem henni
þykir ekki vera upp á marga
fiska. McCartney sjálfur er ekki
sammála eiginkonu sinni og segir
West fyrst og fremst listamann.
Eiginkona
Bítils undrandi
PAUL
McCARTNEY
Vika er liðin frá því að byltingin hófst og við
erum búin að sjá þingmann
og borgarfulltrúa taka
þátt í átakinu, geirvartan
var frelsuð í Hraðfréttum
í Ríkissjónvarpinu og fjöl-
miðlar víða um heim
hafa fjallað um bylt-
inguna á Íslandi sem
hófst Verzlunarskóla
Íslands. Af öllum
stöðum! Það er
bara stórkost-
legt – byltingar
eru ekki rauðir
dagar á daga-
talinu. Maður fær
ekki boð í opnunar-
partí byltingarinnar á
Facebook.
ÉG hefði getað tekið byltingunni
sem ógnun við ótvíræða forrétt-
indastöðu mína sem hvítur karl-
maður yfir meðalhæð. Gerði-
þaðekki. En ég fór hins vegar í
bíó um daginn. Þar sem ég beið
í röð eftir afgreiðslu í sjoppunni
voru tveir ungir menn að spjalla
saman. Annar lýsti yfir ánægju
sinni með pistla sem drengur,
sem ég man ekki hvað heitir,
skrifaði sem einhvers konar
illa orðað og vanhugsað svar
við brjóstabaráttunni svoköll-
uðu. „Einhver verður að standa í
þessu,“ sagði annar drengurinn
og hinn kinkaði kolli.
ÉG velti fyrir mér hvort þeir
væru svona þröngsýnir og for-
pokaðir ef þeir vissu að þetta er
viðhorf lúsera í réttindabarátt-
um. Þetta eru náungarnir sem
Rosa Parks neitaði að standa upp
fyrir árið 1955. Sömu náungar og
reyndu að stoppa Kathrine Switz-
er þegar hún varð fyrsta konan til
að taka þátt í Boston-maraþoninu
árið 1967. Á sögulegri mynd sést
þegar skipuleggjandi hlaupsins
reynir að koma í veg fyrir þátt-
töku hennar. Þessir menn eru í
besta falli hlægilegir í dag.
EN auðvitað eru ógeðslega marg-
ir hneykslaðir. Annars væri þetta
hvorki gaman né að virka. Munið
þið eftir hófstilltu byltingunni
sem með virðingu fyrir ríkjandi
viðhorfum að vopni ögraði rót-
grónum hugmyndum og breytti að
lokum heiminum?
Viðhorf lúsera
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
E
-2
8
4
C
1
6
3
E
-2
7
1
0
1
6
3
E
-2
5
D
4
1
6
3
E
-2
4
9
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K