Fréttablaðið - 02.04.2015, Qupperneq 56
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 40
Ég er svakalega
stoltur af þeim árangri
sem ég náði hjá ÍBV.
Félagið er komið á kortið
sem stórveldi.
Gunnar Magnússon
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
SPORT
HANDBOLTI „Það er engin drama-
tík í þessari ákvörðun heldur bara
breytingar á fjölskylduhögum,“
segir Gunnar Magnússon en hann
mun láta af þjálfun Íslands- og
bikar meistara ÍBV eftir tímabilið.
„Konan mín er kennari og það
kom í ljós fyrir stuttu að það væru
margir að koma til baka í skólann
og því liti ekki vel út með vinnu
hjá henni næsta vetur. Það er
svona aðalástæðan fyrir því að við
höfum ákveðið að flytja í bæinn.
Við höfum verið á fimm ára flakki
og vorum farin að huga að því að
fara til Reykjavíkur þar sem fjöl-
skyldan er.“
Undir stjórn Gunnars hefur lið
ÍBV komið gríðarlega á óvart.
Liðið varð Íslandsmeistari í fyrra
og svo bikarmeistari á dögun-
um. Liðið er því handhafi beggja
stærstu titlanna. Þessum árangri
náði Gunnar með lið sem fáir
þorðu að spá svo góðu gengi.
Ætlaði að taka ár í viðbót
„Okkur hefur liðið alveg ótrúlega
vel í Vestmannaeyjum og þetta
hefur auðvitað verið algjört ævin-
týri,“ segir Gunnar þakklátur
fyrir góða tíma en hann ætlaði sér
samt að staldra við örlítið lengur
í Eyjum.
„Planið var að taka eitt ár í við-
bót en svo kom þetta upp á með
vinnu konunnar og þá tókum við
þessa ákvörðun.“
Gunnar segist ekkert hafa rætt
við félög í bænum en hugur hans
stefnir þó klárlega á að halda
áfram í þjálfun. Miðað við það
sem hann hefur afrekað í Eyjum
ætti ekki að vera neinn skortur á
eftispurn.
Framhaldið óráðið
„Þetta er tiltölulega nýkomið upp
þannig að ég fer að skoða fram-
haldið bara í kjölfarið. Svo er
tímabilinu auðvitað ekki lokið
hjá okkur og við ætlum að koma
grimmir inn í úrslitakeppnina þar
sem við höfum titil að verja,“ segir
Gunnar en hann er einnig fyrrver-
andi bankamaður og útilokar ekki
að taka upp þráðinn þar síðar.
„Ég á klárlega eftir að fara í
bankann aftur enda er það líka
eitthvað sem mig langar að gera.
Það verður þó ekki alveg á næst-
unni enda stefnir hugurinn á að
vera áfram í þjálfun.“
Það leynir sér ekki er maður
talar við Gunnar að hann hefur
notið tímans í Eyjum í botn.
Mjög stoltur
„Ég er svakalega stoltur af þeim
árangri sem ég náði hjá ÍBV og
þeirri vinnu sem hefur verið
í gangi. Ég geng mjög sáttur
frá borði. Ekki bara út af gengi
meistaraflokksins heldur líka
út af yngriflokkastarfinu sem
hefur blómstrað. Það hefur verið
gaman að eiga þátt í því líka. ÍBV
er komið á kortið sem stórveldi í
handbolta,“ segir Gunnar og bætir
við að þessi árangur sé nú ekki
allur sér að þakka enda sé vel stað-
ið að hlutum í Eyjum.
„Þetta stendur ekki og fellur
með einum manni. Þetta er vel
rekið félag og margir efnilegir
strákar sem hafa verið að koma
upp. Ég hef fulla trú á því að ÍBV
eigi eftir að vera í fremstu röð
áfram. Ég fer svo héðan með frá-
bærar minningar og þykir ólíklegt
að ég eigi eftir að upplifa annað
eins og þegar við unnum titlana
og sigldum svo inn til Vestmanna-
eyja. Það var alveg einstakt. Eyja-
menn eru ótrúlegir og hér er sam-
heldnin mikil. Þeir hugsa vel um
sitt fólk og stemningin ólík því
sem er víða.“
Ekki tilbúinn í A-landsliðið
Gunnar er einnig aðstoðarþjálf-
ari landsliðsins en hann hefur
verið lengi í þjálfarateymi lands-
liðsins. Óvissa er með framhald-
ið hjá Aroni Kristjánssyni lands-
liðsþjálfara og menn því farnir að
spá í framhaldið fari svo að hann
hætti. Væri Gunnar tilbúinn að
taka skrefið og verða aðalþjálfari
ef eftir því væri leitað?
„Ég myndi ekki telja mig tilbú-
inn í það á þessari stundu. Ég ætla
að skoða þau mál í rólegheitunum
í sumar en ég sé tilbúinn að starfa
áfram í kringum landsliðið ef Aron
verður áfram,“ segir Gunnar en
hann hefur notið þess að vinna
með landsliðinu.
„Þetta er búið að vera ótrúlega
gaman og ég hef líka lært mjög
mikið sem þjálfari. Ég er því tilbú-
inn að vera áfram ef til mín verður
leitað.“ henry@frettabladid.is
Búið að vera algjört ævintýri
Gunnar Magnússon hefur ákveðið að kveðja lið ÍBV eft ir tímabilið. Hann gengur stoltur frá borði enda er
ÍBV Íslands- og bikarmeistari í dag. Gunnar hefur ekki rætt við önnur félög og framtíðin er alveg óráðin.
KRAFTAVERKAMAÐUR? Margir eru á því að Gunnar hafi unnið kraftaverk með því
að taka stóru titlana með ÍBV. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Liðin fjögur í Pepsi-deild
karla í fótbolta sem nældu sér í
Evrópusæti á síðustu leiktíð þurfa
að fara að búa til pláss á banka-
reikningnum fyrir milljónirnar
sem mun rigna yfir þau í sumar.
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, í samstarfi við samband
félagsliða í álfunni, ECA, stóð að
verulegri hækkun á verðlaunafé
í Meistaradeildinni og Evrópu-
deildinni, jafnt í aðalkeppnunum
sem forkeppnunum. Hækkunin í
Evrópudeildinni er veruleg og er
bilið nú minna á milli hennar og
Meistaradeildarinnar. Í heildina
er hækkunin í Evrópudeildinni 65
prósent.
Íslandsmeistarar Stjörnunnar
tvöfalda verðlaunaféð sem þeir
fengu í Evrópudeildinni í fyrra
bara með því að mæta til leiks í
Meistaradeildinni. Stjarnan háði
fjögur einvígi í Evrópudeildinni
á síðustu leiktíð og fékk fyrir það
í heildina 530 þúsund evrur eða
sem nemur 78 milljónum króna á
núvirði.
Stjarnan fær 300 þúsund evrur
(45 milljónir króna) fyrir komandi
einvígi sitt í annarri umferð for-
keppni Meistaradeildarinnar auk
þeirra 250 þúsund evra sem öll lið
fá sem komast ekki í riðlakeppn-
ina. Það gerir í heildina 550 þús-
und evrur eða 81 milljón króna
sem Stjarnan fær þótt hún tapi
fyrsta einvíginu.
Bikarmeistarar KR, FH og Vík-
ingur fara í fyrstu umferð for-
keppni Evrópudeildarinnar og fá
fyrir það miklu meira en áður. Í
fyrra fengu liðin í fyrstu umferð-
inni 120 þúsund evrur eða 18 millj-
ónir króna og 130 þúsund evrur
fyrir umferðina á eftir því.
Nú fá þessi lið 200 þúsund evrur
fyrir leikinn í fyrstu umferðinni
en það gera 30 milljónir króna.
Komist liðin áfram fá þau 210 þús-
und til viðbótar og 220 þúsund
komist þau jafnlangt og Stjarnan
í fyrra. Þá innbyrða liðin 630 þús-
und evrur eða 93 milljónir króna.
Sextíu milljónir fá liðin vinni þau
eitt einvígi en falli svo úr leik í
annarri umferðinni sem er ekki
óalgengt hjá íslenskum liðum.
Komist eitthvert lið alla leið í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar,
annaðhvort Stjarnan með því að
vinna tvö einvígi í meistaradeild-
inni eða hin þrjú með því að vinna
fjóra leiki í forkeppni Evrópudeild-
arinnar, fara ævintýralegar upp-
hæðir að streyma inn.
Öll þau félög sem komust í riðla-
keppni Evrópudeildarinnar fá að
minnsta kosti 2,4 milljónir evra
eða sem nemur 345 milljónum
króna. Við það bætast svo veru-
legar upphæðir fyrir stigasöfnun.
Það er morgunljóst að framveg-
is verða þau lið sem komast í Evr-
ópukeppni mun betur stæð en áður
og verður baráttan um efstu sætin
enn mikilvægari sem og bikar-
keppnin, en bikarmeistaratitill er
öruggt sæti í forkeppni Evrópu-
deildarinnar. - tom
Milljónum rignir yfi r íslensk lið í Evrópu
Verðlaunafé í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni hækkar verulega frá og með næsta tímabili.
MILLJÓNAMARK Sigurmark Ólafs Karls
Finnssonar gegn FH tryggði Stjörnunni
a.m.k. 81 milljón. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
KÖRFUBOLTI Það ræðst í dag
hvaða lið mæta KR og Tindastóli í
undanúrslitarimmunum tveimur í
Domino‘s-deild karla. Þá fara fram
oddaleikirnir í síðustu tveimur
viðureignum 8-liða úrslitanna.
Haukar eru í einstakri stöðu
því þeir geta náð því að verða annað
liðið í sögunni til að vinna einvígi
í úrslitakeppninni eftir að hafa
lent 2-0 undir. Eina liðið sem hefur
afrekað það er einmitt andstæðingur
Haukanna í dag, lið Keflavíkur. Það
gerðu Suðurnesjamenn í undanúrslit-
unum árið 2008 er liðið skellti ÍR,
3-2, eftir að hafa lent 2-0 undir en
Keflvíkingar fóru þá alla leið og urðu
Íslandsmeistarar. Leikur liðanna á Ás-
völlum hefst klukkan 16.00 í dag.
Þá taka Njarðvíkingar á móti
Stjörnumönnum í Ljónagryfjunni.
Rimma liðanna hefur verið hnífjöfn
og skemmtileg en allir leikirnir í
henni hafa ráðist á lokamínútunum.
Stefan Bonneau, Bandaríkjamaður-
inn í liði Njarðvíkur, hefur verið afar
áberandi í úrslitakeppninni og ljóst
að það mun mikið mæða á honum
í kvöld.
Ef Keflavík vinnur í kvöld mætir
liðið KR í undanúrslitum og Tinda-
stóll þá sigurliðinu í rimmu Njarð-
víkur og Stjörnunnar. Það snýst hins
vegar við ef Haukarnir hafa betur
gegn Keflavík. Leikurinn í Hafnarfirði
hefst klukkan 16.00 og í Njarðvík fer
veislan af stað kl. 19.15. Báðir verða í
beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. - esá
Haukar geta jafnað árangur Kefl avíkur
HÁSPENNA Tveir oddaleikir fara fram í
úrslitakeppninni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÚRSLIT
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
HAUKAR - KR 69-52 (39-17)
Haukar: LeLe Hardy 25/21 fráköst, María Lind
Sigurðardóttir 10, Sólrún Inga Gísladóttir 8, Dag-
björt Samúelsdóttir 6, Þóra Jónsdóttir 6/7 fráköst,
Auður Íris Ólafsdóttir 5, Rósa Pétursdóttir 2, Rakel
Rós Ágústsdóttir 2, Guðrún Ámundadóttir 2,
Dýrfinna Arnardóttir 2, Anna Lóa Óskarsdóttir 1.
KR: Simone Holmes 15, Bergþóra Holton
Tómasdóttir 11, Björg Einarsdóttir 6/5 fráköst/7
stoðsendingar, Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir
6/5 fráköst, Þorbjörg Friðriksdóttir 5, Sólrún
Sæmundsdóttir 5, Sara Magnúsdóttir 4/4 fráköst.
BREIÐABLIK - SNÆFELL 57-92 (35-57)
Breiðablik: Arielle Wideman 23/10 fráköst, Elín
Sóley Hrafnkelsdóttir 10/7 fráköst, Berglind Ingv-
arsdóttir 9/, Hlín Sveinsdóttir 5, Aníta Árnadóttir
3, Elín Karlsdóttir 3, Jóhanna Sveinsdóttir 2,
Isabella Ósk Sigurðardóttir 2/10 fráköst.
Snæfell: Kristen McCarthy 42/4 fráköst, Gunn-
hildur Gunnarsdóttir 20/10 fráköst, Rebekka Rán
Karlsdóttir 6, Berglind Gunnarsdóttir 6, Hildur
Sigurðardóttir 6, María Björnsdóttir 5/4 fráköst,
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 5, Anna Lárusdóttir 2.
HAMAR - KEFLAVÍK 61-111 (31-59)
Hamar: Sydnei Moss 17, Salbjörg Sævarsdóttir 15,
Þórunn Bjarnadóttir 11/5 fráköst/5 stoðsendingar,
Helga Ingvarsdóttir 8, Vilborg Óttarsdóttir 5,
Jenný Harðardóttir 3, Hafdís Ellertsdóttir 2.
Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 30/14 fráköst
Marín Davíðsdóttir 16, Sandra Þrastardóttir 13,
Emelía Gunnarsdóttir 11, Sara Hinriksdóttir 11,
Bryndís Guðmundsdóttir 8, Hallveig Jónsdóttir 6,
Lovísa Falsdóttir 4, Thelma Ágústsdóttir 4, Svan-
hvít Snorradóttir 3, Bríet Hinriksdóttir 3, Irena
Jónsdóttir 2.
GRINDAVÍK - VALUR 80-77 (39-43)
Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 28/10 fráköst,
Kristina King 18 Pálína Gunnlaugsdóttir 1 Lilja
Ósk Sigmarsdóttir 7, Guðlaug Júlíusdóttir 4/5
fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 3, Jeanne Sicat 2.
Valur: Taleya Mayberry 28/5 fráköst, Ragna Mar-
grét Brynjarsdóttir 16, Kristrún Sigurjónsdóttir
11/7 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 8/5 fráköst,
Guðbjörg Sverrisdóttir 7, Ragnheiður Benónís-
dóttir 7.
LOKASTAÐAN
Snæfell 28 25 3 2196:1728 50
Keflavík 28 22 6 2350:1827 44
Haukar 28 18 10 1981:1832 36
Grindavík 28 17 11 2005:1992 34
Valur 28 15 13 2070:1990 30
Hamar 28 6 22 1554:2118 12
KR 28 5 22 1696:1967 11
Breiðablik 28 3 24 1723:2121 7
NÆSTU LEIKIR
UNDANÚRSLIT, 1. LEIKUR
SNÆFELL - GRINDAVÍK 8. APRÍL KL. 19.15
KEFLAVÍK - VALUR 8. APRÍL KL. 19.15
HANDBOLTI Lokaumferðin í Olís-deild karla í handbolta fer fram í kvöld og
kemur þá endanlega í ljós hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. Aðeins ein
viðureign er örugg en það er viðureign deildarmeistara Vals og
Fram sem hafnar í áttunda sæti sama hvernig fer í kvöld.
Afturelding er búin að tryggja sér annað sætið og mætir ÍBV
eins og staðan er fyrir umferðina. Eyjamenn geta þó með sigri
á FH komist í 25 stig og náð sjötta sætinu af Akureyri tapi
norðanmenn fyrir ÍR í Austurbergi. Vinni Akureyri aftur á móti
kemst liðið í 27 stig og upp fyrir Hauka afgreiði þeir ekki
fallið lið HK.
FH getur náð þriðja sætinu af ÍR með sigri á ÍBV
svo fremi að ÍR tapi fyrir Akureyri, en þá mætast
væntanlega ÍR og Haukar í úrslitakeppninni. Ljóst er
því að margt getur breyst en líkurnar eru töluverðar á
Hafnar fjarðar slag í átta liða úrslitum. Allir leikir kvöldsins
hefjast klukkan 19.30.
Margt getur breyst í lokaumferðinni
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
E
-C
6
4
C
1
6
3
E
-C
5
1
0
1
6
3
E
-C
3
D
4
1
6
3
E
-C
2
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K