Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 30
4 • LÍFIÐ 1. MAÍ 2015
Lífið sjálft snýst oft og tíðum
mikið um venjur. Foreldrar okkar
vöndu okkur á það að bursta tenn-
ur kvölds og morgna og við venj-
um krakkana okkar á það. Við
venjum okkur á það að þvo hend-
urnar eftir salernisnotkun og
að ganga frá eftir matinn. Það
að koma sér upp nýjum venjum
getur þó verið meira en að segja
það. Maður þarf virkilega að
leggja sig allan fram við að búa
til nýjar venjur og halda þeim
gangandi því það reynir svo sann-
arlega á þolinmæðina. Það er oft
talað um að það taki að minnsta
kosti 30 daga að koma upp nýjum
venjum. Prófaðu því að skrifa
það sem þú stefnir að á blað og
hengdu upp á ísskápinn eða hafðu
í dagbókinni svo þú sjáir það á
hverjum degi. Ef markmiðið er til
dæmis að drekka fleiri vatnsglös
á dag þá eru allar líkur á því að
það þurfi að minna á það með ein-
hverjum hætti, til dæmis áminn-
ingu í símanum. Ef þú gleymir
því sem þú ætlaðir að venja þig
á einn daginn, ekki gefast upp.
Haltu áfram næsta dag og reyndu
að gera enn betur.
Einblíndu á eitt í einu
Málshátturinn segir: Róm var
ekki byggð að einum degi. Það
að taka sér upp hollari venjur
gerist heldur ekki á einum degi.
Byrjaðu rólega og á einhverj-
um einum hlut, eins og til dæmis
að borða tvo ávexti á dag. Þegar
það er orðið að venju bættu þá
einhverju öðru við, eins og til
dæmis að hreyfa þig á hverjum
degi. Maður getur ekki búist við
því að geta allt í einu hætt öllu
sukki, borðað eins og Solla á Gló
í öll mál og æft eins og Jón Páll
á hverjum degi. Góðir hlutir ger-
ast hægt!
Finndu það sem hentar
Það að borða hollt og hreyfa sig
verður að vera skemmtilegt, ann-
ars mun þetta ekki verða að lífs-
stíl. Prófaðu þig áfram og finndu
þér hollt fæði sem þér líkar við.
Það eru til ótal vefsíður, bækur
og miðlar sem deila skemmti-
legum, hollum uppskriftum. Það
sama gildir um hreyfinguna. Ef
þér finnst líkamsræktin leiðinleg
eru allar líkur á því að þú gefist
upp. Ef þér finnst ekki gaman að
mæta í líkamsræktarsal prófaðu
þá hóptímana, finndu þér skokk-
hóp í nágrenninu, farðu í sund og
syntu eða finndu þér einhverja
íþrótt að þínu skapi. Möguleik-
arnir eru endalausir!
Jákvæð hugsun
Reyndu að fara af stað alla daga
með tilhlökkun fyrir komandi
verkefnum. Að skapa sér nýjar,
hollar venjur er ekkert annað
en verkefni sem þarf að takast á
við með bros á vör. Það er stað-
reynd að öllum líður vel við það
að hreyfa sig og fá holla og góða
næringu. Endorfínið flæðir um
líkamann að hreyfingu lokinni.
Stoppaðu í augnablik eftir æf-
inguna og njóttu þess að finna
fyrir þessari góðu tilfinningu
sem þú færð eftir átökin. Ef þú
átt svo einhvern tíma erfitt með
að rífa þig upp til að fara á æf-
ingu, leitaðu þá að þessari tilfinn-
ingu í minninu og drífu þig svo
af stað. Launaðu líkamanum svo
erfiðið með hollri og góðri nær-
ingu sem byggir líkamann enn
frekar upp.
Ég vona að þessi ráð hjálpi ein-
hverjum sem reynir að koma sér
upp nýjum og hollum venjum í
átt að heilbrigðum lífsstíl. Þetta
tekur tíma en þegar venjurnar
eru orðnar að daglegum athöfn-
um er ekkert betra en að njóta
þess að hlakka til þess að hreyfa
sig á hverjum degi og borða holl-
an og góðan mat.
„Maður þarf virkilega að leggja sig allan fram við að búa til nýjar venjur og
halda þeim gangandi því það reynir svo sannarlega á þolinmæðina. Það er
oft talað um að það taki þrjátíu daga að koma upp nýjum venjum.“
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
VENDU ÞIG Á VENJURNAR
Í síðasta pistli skrifaði ég um brot af þeim venjum sem ég hef tileinkað mér varðandi heilsusamlegan lífsstíl og langar mig
að deila með ykkur fleiri ráðum í von um að hvetja ykkur til dáða í áttina að betri heilsu og heilbrigðu hugarfari.
Góðar venjur
skila árangri.
Lesendur Lífsins geta alltaf sent
inn fyrirspurnir um kynlíf og
fengið svarið birt hér í þessum
dálki.
? Ég er með spurningu um meðaltal í samlífi hjóna á
fertugsaldri. Er það eðlilegt að
ætlast til þess að maki stundi
kynlíf 3-4 sinnum í viku? Getur
það verið merki um að annar að-
ilinn sé kynlífsfíkill eða er þetta
bara það sem hjón almennt gera?
SVAR Kærar þakkir fyrir spurn-
inguna, þetta er málefni sem
brennur á mörgum pörum og er
eitt algengasta deiluefni para
hvað kynlíf viðkemur. Mismun-
andi kynlöngun getur haft virki-
lega slæm áhrif á sambönd þar
sem endalaus togstreita í kyn-
lífi og ólík löngun einstaklinga
fer að hafa áhrif á aðra þætti
sambandsins. Það er ómögu-
legt fyrir mig að segja hvort
maki þinn sé haldinn kynlífs-
fíkn og er það hugtak út af fyrir
sig umdeilt. Þegar talað er um
fíkn þá lýtur það þeim lögmál-
um að það valdi viðkomandi mik-
illi truflun í lífinu og þá í raun
væri kynlíf með maka aðeins
skammgóður vermir. Hitt er svo
annað, fólk hefur mismikla löng-
un í kynlíf og geta margir þættir
spilað þar inn í. Hvati fyrir að
stunda kynlíf getur verið annar
en kynlöngun og það getur verið
að maki noti þetta sem leið til að
tengjast tilfinningalega og auka
nánd ykkar á milli. Þetta er allt-
af spurning um samræmingu og
að finna leið sem ykkur hentar
þannig að jafnvægi náist í sam-
lífinu. Það að krefjast kynlífs
frá maka er í sjálfu sér vanda-
samt því þetta er eitthvað sem
þið þurfið bæði að koma að, ann-
ars getur viðkomandi stundað
sjálfsfróun ef eina málið er útrás
en í flestum tilvikum er kyn-
líf meira en bara það. Kynlíf er
meira en bara samfarir og er
gott að muna það, mörg pör finna
sitt jafnvægi með því að minna
á það og víkka út kynhegðunina
sína með gælum. Þið þurfið því
að ræða hreinskilnislega saman
um hvað hentar ykkur. Til að
aðstoða ykkur við þessar samn-
ingaviðræður þá gæti verið gott
að leita til kynfræðings í ráð-
gjöf. Gangi ykkur vel og munið
að sýna hvort öðru kurteisi,
þolinmæði, skilning og virðingu
í þessum samræðum.
ER MAKI MINN
KYNLÍFSFÍKILL?
Heilsuvísir
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
9
-F
3
E
C
1
6
3
9
-F
2
B
0
1
6
3
9
-F
1
7
4
1
6
3
9
-F
0
3
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K