Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 39
| FÓLK | 3
TATTÚ OG
SKART
Svanur, Sessa
og Málfríður
eru nýbúin að
taka stofuna
á Hverfisgötu
108 í gegn.
MYND/VILHELM
Við tókum stofuna í gegn um páskana, brutum niður veggi, flotuðum gólfin og gerðum
allt mun vistlegra og meira smart.
Núna geta kúnnarnir horft inn og
séð tattúmeistarana að störfum sem
er mjög skemmtilegt enda myndast
stemning eins og maður upplifir á
tattúráðstefnunum,“ segir Seselía Sig-
urðardóttir, eða Sessa eins og hún er
alltaf kölluð. Hún og Svanur Guðrúnar-
son, eiginmaður hennar, eru löngu þekkt
í tattúbransanum enda er stofan þeirra ein
sú elsta á landinu og hefur verið á sama stað
í fimmtán ár.
BREYTT MENNING
Svanur hefur tattúerað í 21 ár og starf-
aði í Svíþjóð áður en hann kom heim
og stofnaði Tattoo og skart. Sessa
hefur starfað við hlið hans í þrettán
ár en saman mynda þau gott teymi.
Hann húðflúrar og hún gatar. Þau
segja miklar breytingar hafa orðið
á þessum árum í húðflúrmenningu
Íslendinga. „Tattúin eru alltaf fjöl-
breytt en þó er meira um að fólk fái
sér stór tattú og heilar ermar en var
áður. Aðal breytingin er hins vegar í
viðhorfi fólks til húðflúrs,“ segja þau og
benda á að tengingin við undirheima sé
ekki lengur til staðar. „Tattú eru orðin mjög
algeng í knattspyrnunni og í ýmsu jaðarsporti
og hingað til okkar kemur breiður hópur
af fólki, bæði karlar og konur, og aðal-
lega heilbrigt ungt fólk,“ segir Sessa.
Hún bendir einnig á að húðflúrin hafi
fengið allt aðra meðferð í fjölmiðlum
en áður. „Í bíómyndum eru ekki leng-
ur bara glæpamennirnir með tattú.
Við finnum að fordómarnir eru að
minnka enda eru tattústofur ekki
lengur í bakhúsum heldur allt gert
fyrir opnum tjöldum þar sem mikil
áhersla er lögð á hreinlæti.“
HÚÐFLÚR ER LISTFORM
Málfríður Sigrúnardóttir hefur starfað
á Tattoo og skart í tvö ár en hún hefur
gengið í listaskóla og lærði húðflúrlistina
í Detroit og New York. „Ég er forláta mynd-
listanörd og nýti húðflúrið til að skapa mína
list,“ segir Málfríður, sem er afar vinsæl á meðal kven-
kyns viðskiptavina Tatto og skart.
Málfríður er sammála Svani og Sessu um að tattú-
menningin hafi breyst til hins betra. „Ein af breyt-
ingunum sem ég tek eftir er að konur eru ekki eins
feimnar við að fá sér stór tattú. Margar hverjar fá sér
ermar sem tíðkaðist ekki áður,“ segir Málfríður. Hún
segir langflesta hafa fyrirfram ákveðnar hugmyndir
um það sem þeir vilja láta gera en oft fær Málfríður
einnig frjálsar hendur í listsköpun sinni.
En hvað er í tísku í húðflúrum í dag? „Tattúin eru
mjög fjölbreytt en ornamental tattú eru mjög vinsæl
núna. Það eru mandölur með flókin mynstur sem oft
tekur langan tíma að vinna.“
GERIR EKKI ALLT
Málfríður segist stundum fá furðulegar beiðnir.
„Skrítnustu tattúin verða líklega til vegna vinnustaða-
veðmála og veðmála í vinahópum. Sá sem tapar slíku
veðmáli þarf oft að fá sér tattú á borð við fyrirtækja-
lógó eða álíka,“ segir hún glettin.
Hún segist þó alls ekki gera allt sem hún er beðin
um. „Ég áskil mér rétt til að velja og hafna verkefnum
og segi oft nei. Stundum er ég til dæmis ekki sátt við
hönnunina,“ segir Málfríður og bendir á að það sé í
tísku á meðal stúlkna í dag að fá sér húðflúr á fing-
urna. „Mér finnst siðferðilega rangt að skrifa eitthvað
sem endist að eilífu á fingur átján ára stelpna,“ segir
hún. Þess má geta að hjá Tattoo og skarti er stíft ald-
urstakmark. „Hér fær enginn tattú nema hann sé átján
ára eða eldri og á því eru engar undantekningar.“
GÖTUNIN ALLTAF VINSÆL
Sessa segir talsverða aukningu í götuninni. „Vinsælast
er að gata geirvörtur og nef,“ segir hún og bendir á
að viðskiptavinir sínir séu á öllum aldri. „Hér koma
foreldrar til að láta gata eyru barna sinna og svo hef
ég verið með konur um áttrætt sem hafa fengið sér
hring í naflann,“ segir hún.
Sessa segir viðhorfið til tattústofa mjög breytt.
„Fyrir tíu árum hefði fólk aldrei komið á tattústofu
til að fá göt í eyrun en í dag erum við meira eins og
snyrtistofa og fólk er ekkert feimið við að koma til
okkar.“
ÁHERSLA Á HREINLÆTI
„Við erum með fullkomnasta búnað á landinu til dauð-
hreinsunar og hæstu einkunn frá heilbrigðiseftirlit-
inu,“ segir Sessa. „Við pössum allt slíkt alveg hundrað
prósent.“
Ráðstefna á Hótel Sögu
Icelandic tattoo expo
KONUR FÁ SÉR
Æ STÆRRI TATTÚ
TATTOO OG SKART KYNNIR Hjónin Svanur og Sessa eiga og reka
tattústofuna Tattoo og skart á Hverfisgötu 108. Þar hefur stofan verið í
fimmtán ár, allt frá því Svanur stofnaði hana. Svanur er gamalreyndur í
bransanum og segir miklar breytingar hafa orðið í tattúmenningu Íslendinga síðustu árin.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
A
-7
9
3
C
1
6
3
A
-7
8
0
0
1
6
3
A
-7
6
C
4
1
6
3
A
-7
5
8
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K