Fréttablaðið - 01.05.2015, Síða 48

Fréttablaðið - 01.05.2015, Síða 48
1. maí 2015 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32 „Brot er fyrsta einkasýning mín frá því ég útskrifaðist úr Listahá- skólanum 2012, ég tók mér barn- eignarleyfi í millitíðinni,“ segir Katrín Erna Gunnarsdóttir sem sýnir í Mjólkurbúðinni í Lista- gilinu nú um helgina. Um er að ræða vatnslitaverk á brotinn pappír. „Ég byrja á að brjóta pappírinn og með því myndast skemmtileg form sem ég fylli inn í með litum. Þannig kemur þrívídd í verkin.“ Katrín Erna segir vídeóverk og teikningar það sem hún hafi mest fengist við til þessa. „Þessi vatnslitaverk eru nokk- urs konar framhald því ég lít á brotlínurnar eins og teikningu í víðum skilningi. Sýningin verður opnuð klukkan 15 á morgun, föstudag, og stendur aðeins þessa einu helgi. Allir eru velkomnir. - gun Eins og teikning í víðum skilningi Katrín Erna opnar sýninguna Brot í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri. LISTAMAÐURINN „Verkin eru tilraun til að samþætta skúlptúragerð og teikningu,“ segir Katrín Erna. EITT VERK ANNA Listakonan notar mest gráskalann en fer aðeins út í blátt. „Já, ég er að opna sýningu eina ferðina enn. Þær eru orðnar nálægt áttatíu. Milli þrjátíu og fjörutíu hér á landi og álíka margar í Dan- mörku,“ segir Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður um sýningu sem hann er að opna í Galleríi Fold á morgun. Hún heitir Ný grafík enda eru þar eingöngu grafíkmyndir frá tveimur síðustu árum, að sögn listamannsins. „Ég hef sett mér það markmið að reyna að búa til eina grafíkmynd á mánuði og mér tekst það. Fyrir aumingja, þá er það gott.“ Hér er hann að vísa til þess að hann hefur ekki fulla starfsorku og er bundinn hjólastól. „Ég datt og hálsbraut mig. Bara úti á svölum heima hjá mér í Kaupmannahöfn,“ útskýrir hann. „Frúin mín, hún Gerður, var sem betur fór heima, annars er ekkert víst að ég væri á lífi en eftir þetta slys fluttum við heim til Íslands.“ Tryggvi segist ekkert vita hvað- an hann hafi listfengið. „Ég er bara fæddur með þessa mynda- dellu, hún hefur fylgt mér síðan ég var smákrakki, ég sökkti mér í að skoða myndir, bækur og bæklinga og þegar ég ferðast er ég alltaf að skoða söfn og kirkjur.“ Tryggvi verður 75 ára í sumar og hefur málað í 60 ár. Hann ólst upp á Norðfirði til sextán ára aldurs. „Ég málaði fjöllin og skipin eins og allir strákar úti á landi,“ segir hann en kveðst þó ekki eiga margar slíkar myndir heldur vera búinn að gefa þær allar. Það beinir huganum að höfðinglegri gjöf hans á sumardag- inn fyrsta er hann afhenti borgar- stjóranum 210 myndir, tvær til handa hverjum grunn- og leikskóla borgarinnar. Með því vildi hann tryggja að börn hefðu myndlist fyrir augunum í skólunum. Sjálfur Með myndadellu frá því ég var krakki Listmálarinn Tryggvi Ólafsson er upprunanum trúr og velur verkalýðsdaginn til þess að opna sýningu. Sú er í Galleríi Fold við Rauðarárstíg og nefnist Ný grafík. LISTAMAÐURINN „Ég hef sett mér það markmið að reyna að búa til eina grafík- mynd á mánuði og mér tekst það,“ segir Tryggvi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA naut hann ekki slíks munaðar. „Það var ekki ein einasta mynd í skólun- um á Norðfirði þegar ég var þar, hvorki barnaskólanum né gagn- fræðaskólanum,“ minnist hann og finnst svona gjöf ekkert tiltökumál. „Ég er búinn að gefa fleiri hundr- uð myndir um dagana,“ segir hann. „Það hefur alltaf verið mín skoðun að þeir eigi að gefa sem eiga. Hef alltaf verið sósíalisti.“ Þegar ég spyr Tryggva hvort ég megi ekki senda til hans ljósmynd- ara svo við getum myndskreytt þetta viðtal svarar hann: „Jú, ætli það ekki, þó ég hati að vera mynd- aður. Mér finnst það alltaf vera eins og að vera fermdur upp á nýtt!“ Sýningin hans Tryggva, Ný graf- ík, verður opnuð í Galleríi Fold, Rauðarárstíg, í dag, 1. maí, milli klukkan 15 og 17. Þar verður vín- glas og músík og allir velkomnir. gun@frettabladid.is Ég er bara fæddur með þessa myndadellu, hún hefur fylgt mér síðan ég var smákrakki, ég sökkti mér í að skoða myndir, bækur og bækl- inga og þegar ég ferðast er ég alltaf að skoða söfn og kirkjur. Ég byrja á að brjóta pappírinn og með því myndast skemmtileg form sem ég fylli inn í með litum. Þannig kemur þrívídd í verkin. Aðdáendur írska skáldsins Sam- uels Beckett hafa ástæðu til þess að gleðjast þessa dagana. Leik- ritið Endatafl, eitt af helstu verk- um skáldsins og leikbókmennta síðustu aldar, verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld. Uppfærslan er hluti af dagskrá Listahátíðar- innar í Reykjavík sem hefst form- lega seinna í þessum mánuði. Stefán Jónsson leikari er á meðal þeirra sem stíga á fjal- irnar í kvöld ásamt þeim Þor- steini Bachmann, Þór Tulinius og Hörpu Arnardóttir í leik- stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Stefán hefur reyndar ekki leikið á sviði í ein tíu ár en hann segir að það hafi ekki verið nein með- vituð ákvörðun. „Nei, þetta æxl- aðist bara svona. Leikstjórn og kennsla tóku yfir lífið og tíminn til æfinga hvarf. Ég hef þó bleytt í leikaranum af og til í sjón- varpi og kvikmyndum og svo er ég í raun leikandi allan daginn í kennslu, enda leikara-leikstjóri eins og það er kallað.“ Stefán segir að það hafi vissu- lega komið einhver tilboð á þess- um tíu árum en hann bara ekki stokkið. „En nú bara passaði þetta og Kristín leikstjóri var svo liðleg og henni var svo mikið í mun að fá mig til liðs við sig að þetta var kjörið tækifæri. Þetta er líka svo stórkostlegt verk og hlutverkið afmarkað. Það er líka svo yndislegt fólk þarna innanborðs, kærir vinir og uppáhaldsleikarar, þannig að þetta er fallegt og rétt. Svo er líka gott að koma og fá að vera án ábyrgðar og láta segja sér fyrir verkum. Það er frábært að vinna með Kristínu og svo hefur Sig- urður Pálsson, eiginmaður henn- ar, líka verið að koma að þessu sem dramatúrg. Ég hef þekkt þau hjón í mörg ár og þau eru einstak- lega nærandi og góður félags- skapur.“ Verk Becketts þykja mörgum vera mikil áskorun, jafnt leik- urum sem áhorfendum, en Stef- án segist alltaf hafa heillast af verkum hans. „Beckett nær með svo einstökum hætti yfir fárán- leika tilvistarinnar. Texti og kringumstæður eru á einhvern hátt svo raunverulegar og mann- legar í senn. Textinn er allur svo nákvæmur og meitlaður að maður finnur vel hvernig legið hefur verið yfir hverju einasta orði og nostrað við hvert smáatriði. Mennskan er yfirþyrmandi í verkum Becketts og allt sem hann var að takast á við á sínum tíma á ekki síður við í dag. Líkast til vegna þess að okkur mönnun- um virðist fyrirmunað að læra af reynslunni. Beckett gerir kröfur til áhorf- enda. Það þarf að gefa sér tíma og hugsa og spegla sig í listinni. Heimurinn er eins og hann er af því að við hugsum of lítið og neyt- um of mikið – látum mata okkur hugsunarlaust. En Beckett krefst þess af þér að þú gerir meira, látir ekki undan þessu markaðsstýrða samfélagi og hugsir um mennsk- una og það er hlutverk listarinn- ar.“ magnus@frettabladid.is Við hugsum of lítið Stefán Jónsson er á meðal leikenda sem frumsýna í kvöld Endatafl eft ir Samuel Beckett í Tjarnarbíói. ENDURKOMA Stefán Jóns- son leikari snýr aftur á fjalirnar í Endatafli Becketts eftir tíu ára hlé. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Mennskan er yfir- þyrmandi í verkum Becketts og allt sem hann var að takast á við á sínum tíma á ekki síður við í dag. Líkast til vegna vegna þess að okkur mönnunum virðist fyrirmunað að læra af reynslunni. Stefán Jónsson leikari MENNING 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 9 -B D 9 C 1 6 3 9 -B C 6 0 1 6 3 9 -B B 2 4 1 6 3 9 -B 9 E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.