Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 102
27. júní 2015 LAUGARDAGUR
| LÍFIÐ | 58
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
MIKIÐ ÚRVAL
AF FALLEGUM
MATARSTELLUM
OG BRÚÐARGJAFA-
HUGMYNDUM
„Á undanförnum árum hefur komið
í ljós að það eru um sex manns að
smitast af klamydíu á dag og ¾
þeirra eru á aldrinum 15 til 24 ára.
Þetta segir okkur að allt of marg-
ir eru að sleppa því að nota smokk-
inn,“ segir Sigurlaug Hauksdótt-
ir, yfirfélagsráðgjafi hjá Embætti
landlæknis, og vísar í tölfræði unna
á sóttvarnasviði embættisins. Þegar
skoðuð er rannsókn á smokkanotkun
10. bekkinga á Íslandi 2014 og átta ár
aftur í tímann sést að dregið hefur
úr notkun smokksins.
„Vafalaust eru margvíslegar
ástæður fyrir því að ungt fólk notar
smokkinn of lítið. Stundum skortir
þau meiri fræðslu eða þau telja sig
ósigrandi, ekkert geti komið fyrir
þau. Hiti augnabliksins og áhrif
áfengis og lyfja geta líka blindað
þeim sýn. Sumir telja sig geta greint
hverjir geti verið með kynsjúkdóm
og hverjir ekki, en kynsjúkdóm-
ar eru oftast einkennalausir
og fara ekki í manngrein-
arálit.“ Sigurlaug heldur
áfram: „Ungt fólk getur
líka kvartað yfir því
að smokkar séu
dýrir og þeir
skemmi ánægj-
una af kynlíf-
inu, en þá er
mikilvægt
að spyrja sig
hvað sé mikilvægast,
til dæmis ein bíó-
ferð eða nokkrir
smokkar,“ segir
hún og bætir því
við að einhverj-
um finnist líka
allt í lagi að smit-
ast af kynsjúkdómum,
því hæglega megi nálg-
ast viðeigandi lyf komi
eitthvað upp á. „Ég held að slíkir ein-
staklingar geri sér ekki alveg grein
fyrir hvað það getur verið íþyngj-
andi að fá kynsjúkdóm sem krefst
daglegrar lyfjatöku og eftirfylgni á
spítala alla þeirra ævi. Auk þess er
það gjarnan æði kostnaðarsamt
fyrir samfélagið.
En sem betur fer er flest
ungt fólk ábyrgt og hlúir vel
að eigin öryggi í kynlífi,
ekki má heldur gleyma
því sem jákvætt er,“ segir
Sigurlaug að lokum.
Sigga Dögg kynfræð-
ingur segist heyra mikið af
samdrætti í smokka-
notkun frá gest-
um á fyrirlestrum
sínum. Ástæðuna
fyrir því að þessi
aldurshópur forð-
ist smokka frekar
en aðrir telur hún
fjölþætta. „Smokk-
urinn er dýr og fólki
þykir vandræðalegt
að kaupa hann. Ég hef
líka heyrt í mínu starfi
að fólki þyki einfald-
lega erfitt að biðja bólfélagann um að
nota smokk,“ útskýrir Sigga Dögg og
bætir við að á Íslandi ríki mikil pillu-
menning, þar sem fókusnum sé beint
að því að koma í veg fyrir þungun
fremur en kynsjúkdóma.
„Tíu smokka pakki kostar um það
bil 789 krónur, svo ég held að seint
verði sagt að það sé dýrt. Við sjáum
aukningu í sölu smokka frá því að
verðið var lækkað um tuttugu pró-
sent árið 2012. Hins vegar er erfitt
að heimfæra þá aukningu á þennan
markhóp, þar sem við finnum fyrir
að eldra fólk sækir meira í smokkana
en nokkurn tíma áður,“ segir Ásgeir
Steinsson, framkvæmdastjóri heild-
sölunnar Halldórs Jónssonar, sem
flytur inn Durex-smokka.
Íslensk ungmenni
kærulaus í bólinu
Yfi rfélagsráðgjafi hjá embætti landlæknis segir unga fólkið furðulega rólegt yfi r
smithættu kynsjúkdóma og kynfræðingur segir hér á landi mikla pillumenningu.
Auk þess sem ég hef
heyrt í mínu starfi að
mikið sé um að fólki þyki
einfaldlega erfitt að
biðja bólfélagann um að
nota smokk.
Sigga Dögg, kynfræðingur.
SIGGA DÖGG
MIKILVÆGT AÐ PASSA SIG Sigurlaug Hauksdóttir segir ýmsar ástæður liggja að
baki því að unga fólkið kjósi að hundsa smokkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gunný Ísis Magnúsdóttir
eiginkona
Tolli er
bæði
mikill
húmanisti og
húmoristi,
það er gott
þegar þetta
tvennt helst
í hendur.
En Tolli er frábær manneskja og
tekst á við lífið af miklu hugrekki
hvort sem það tengist myndlist-
inni eða hinu ófyrirsjáanlega eins
og veikindunum sem hann hefur
þurft að takast á við nýlega.
Sólveig Eiríksdóttir
vinkona
Hann
Tolli
er ótrúlega
traustur, mjög
skemmtilegur
og hann er
líklegast
ofvirkur
og hann er
svona vinur þinn sem stendur
með þér í gegnum allt. Það
fyndna við hann er að hann
gefur það sama af sér sama í
hvaða ástandi hann er. Við erum
líklegast búin að þekkjast í um
tuttugu ár og ég og konan hans
erum bestu vinkonur. Það er svo
gott að eiga hann Tolla að.
Bergþór Morthens
bróðir
Það er
eigin-
lega ekkert
hægt að
tala um
hann nema
á jákvæðu
nótunum.
Hvað á
maður að segja, kallinn er bara
náttúruafl. Það sem hann gerir
og tekur sér fyrir hendur gerir
hann alveg af hug og hjarta.
Svo þykir manni náttúrulega
óumræðilega vænt um hann.
Tolli
Morthens
Myndlistarmaður
ALDUR 61
MAKI Gunný Ísis Magnúsdóttir
BÖRN Ásdís Þorláksdóttir, Kristín Þorláks-
dóttir, Magnús Freyr Morthens, Karen Lísa
Morthens.
Tolli var í einlægu föstudagsviðtali hjá Frétta-
blaðinu. Hann hefur glímt við erfið veikindi undanfar-
ið eftir að hann greindist með krabbamein í blöðru.
Nú lítur út fyrir að hann sé laus við meinið og
hann stígur út í lífið þakklátur fyrir að hafa
tækifæri til þess að njóta lífsins.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-4
1
8
C
1
6
2
B
-4
0
5
0
1
6
2
B
-3
F
1
4
1
6
2
B
-3
D
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K