Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 30
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Dýrmætur bakpoki Og þessi sunnudagsmorgunn hjá Moonif er ekki sá besti. Þetta er gerðarlegur, rúm- lega fertugur sýrlenskur faðir tveggja barna frá Aleppó. Hann er með tárvot augu. Af hverju? Af hverju? stynur hann í sífellu fyrir framan hótelið og heldur utan um eigin konuna. En smyglararnir höfðu, síðustu nótt, þegar bátnum var ýtt úr vör, tekið af honum bakpokann og hent honum í sjóinn – þar sem hann hvarf niður í myrkr- ið. Þeir öskruðu á hann að bakpokinn væri of stór, að nú opnaðist pláss fyrir einn far- þega í viðbót og þúsund evrur meira í vas- ann fyrir þá. „Í bakpokanum var allt það sem mér var kærast, myndir af pabba og mömmu, mynd af fyrstu tönn elstu dótt- urinnar, fjölskyldumyndir, sparifötin og síðustu aurarnir okkar. Af hverju?“ spyr Moonif. Áfengi og svínakjöt í boði Um kvöldið kemur ungur en þykkur Kan- adabúi færandi hendi. Fyrr um daginn hafði hann rambað fram hjá hótelinu og fundið til með fólkinu. Hann ákveður því að bjóða til smá veislu. Hann keypti þrjá kassa af bjór og lét elda fyrir sig pasta- pottrétt með ódýrasta kjötinu. „Svo allir fái nú eitthvað,“ segir hann. Hann verður síðan miður sín þegar enginn, þótt allir séu sár- svangir, snertir matinn. Kjötið er nefnilega svínakjöt, en það, eins og áfengi, er á bann- lista hjá múhameðstrúarmönnum. Hann er nokkuð við skál þegar ég sé hann hverfa upp í leigubíl, með matinn og bjórinn, sem hann hafði ekki þegar drukkið. Einkadóttirin óhult Morguninn eftir hlæjum við Ammar að þessum miskunnsama Samverja, menn- ingarklaufa, eins og hann kallaði hann. En Ammar, nokkuð aldraður menntaskóla- kennari frá Damaskus með fallegt and- lit sem hefði getað orðið sláandi portrett, vill engar myndatökur. „Jú, allt í lagi að mynda hana, dótturina, litlu dótturdótt- urina, en ekki mig.“ Vegna þess að hann er á leið heim aftur, heim til Damaskus, þar sem veik eiginkonan, ófær til ferðalaga, bíður hans. Í þrjá mánuði hafa þau feðginin ferðast, fyrst í gegnum stríðið í Sýrlandi, síðan 2.000 kílómetra leið í gegnum Tyrk- land, til Bodrum. Nú er einkadóttirin komin í evrópskt skjól. Hann er á leið til baka í hryllinginn, til að hlúa að eiginkonunni. Og eftir tíu til fimmtán daga eru svo mæðgurnar á leið til Aþenu. Því Grikkir hafa ekki efni á því að halda uppi flótta- mönnum, hvað þá að fylla eyjuna. Þannig að á hverju kvöldi eru hundruð flóttamanna send, á kostnað gríska ríkisins, með ferju til Aþenu. Þaðan er leiðin greið, norður eftir álfunni, og jafnvel til Íslands. Þar sem væri auðvitað vel tekið á móti þessu frábæra fólki, eða hvað? SJÁLFSMYND Loksins kominn með far til Aþenu– Evrópa bíður. ANDSTÆÐUR 250 metra frá flóttamannabúðunum sitja túristar og sleikja sólina. MÓÐIR OG BÖRN Qamar hefur komið sér fyrir undir berum himni. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 B -4 B 6 C 1 6 2 B -4 A 3 0 1 6 2 B -4 8 F 4 1 6 2 B -4 7 B 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 1 0 4 s _ 2 6 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.