Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 32
Farsímar og fylgihlutir LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 20152
Ómar keypti sinn fyrsta síma í byrjun níunda ára-tugarins. „Fyrsti síminn
minn var stór og mikill hlunk-
ur og maður varð slæmur í bak-
inu af að bera hann. Þetta var
með allra fyrstu farsímunum og
verðið var skelfilega hátt, en ég
ákvað það frá fyrsta degi að þessi
sími myndi aldrei verða aðskil-
inn frá mér,“ segir Ómar glett-
inn. Ástæða kaupanna var starf
Ómars sem fréttamaður. „Þetta
var gjörbylting fyrir fréttamann,
að hægt væri að ná í mann hvar
sem maður var staddur. NMT-
stöðvarnar voru reyndar mjög
fáar en þar sem ég er f lugmaður
gat ég verið í óvenju miklu sam-
bandi.“
Breiðir út fréttaelda
Tilkoma farsímans auðveldaði
Ómari mjög starfið. „Hann gerði
mér kleift að vera með lágmarks
viðbragðstíma þegar eitthvað
fréttnæmt gerðist. Ég leit enda á
mig sem nokkurs konar frétta-
slökkvilið en öfugt við slökkvi lið
sem reynir að stöðva útbreiðslu
eldsins reyni ég að breiða út frétta-
eldinn sem hraðast og víðast,“
segir Ómar og hlær sínum kunn-
uglega hlátri. „Ég er enda alltaf á
24 klukkustunda vakt enn þann
dag í dag, þótt ég sé ekki lengur í
föstu starfi.“
Ævintýrasímar
Ómar hefur ekki tölu á öllum
þeim símum sem hann hefur átt
enda hafa þeir margir týnt töl-
unni við hinar ýmsu aðstæð-
ur. „Farsímarnir mínir hafa lent
í jafn mörgum ævintýrum og ég
sjálfur enda er ég alltaf með þá á
mér,“ segir Ómar og nefnir nokk-
ur dæmi.
„Einn farsíminn datt úr 412
metra hæð úr mastrinu á Gufu-
skálum. Það er hæsta fall sem far-
sími hefur lifað af. Við fundum
hann eftir nokkra leit og það var
hægt að kveikja á honum. Hins
vegar eyddi hann tíu sinnum
meira rafmagni en áður. Ég hef
stundum gleymt símum á þak-
inu á bílum. Einu sinni ók konan
mín af stað með símann á þak-
inu en hann fannst nú við hring-
veginn. Einn síminn varð eftir á
stéli á f lugvél þegar ég f laug til
Vestmannaeyja. Þegar ég kom til
baka uppgötvaði ég að ansi marg-
ir Fokkerar höfðu lent á símanum
og hann lá í méli á f lugbrautinni.
Eitt sinn datt ég ofan af kletti í
Noregi og í Guðnafjörð, þá fór
síminn fjandans til.“
Koma að gagni í ýmsum aðstæðum
Þeir sem þekkja Ómar vita að
hann svarar í símann við alls
kyns aðstæður. „Þegar ég tók
v ið Edduv iðu rken n i ng u n n i
núna síðast var sýnt skot þar
sem ég stóð á hafísjaka í frétt-
um Stöðvar 2 og ætlaði að fara
að taka svokallað standup. Þá
hringdi síminn og við tók mikið
fum og fát við að svara í símann
á sleipum hafísjakanum,“ segir
Ómar og hlær. Þá minnist hann
á annað atvik sem Sigurður
Grímsson tók upp af Ómari þar
sem hann var nýkominn úr gos-
inu á Vatnajökli að klippa eld-
ingu og tala yfir texta. „Á sama
tíma er ég með farsímann við
eyrað að tala við undirleikarann
minn. Við vorum þá að halda
símaæfingu til að æfa lög fyrir
landsfund sjálfstæðismanna
sem ég mætti á eftir fréttir.“
Misskilningur á miðnætti
Ýmis skondin tilvik hafa tengst
símanotkun Ómars. „Ég fór oft á
fótboltaæfingar á fimmtudags-
kvöldum milli ellefu og tólf á
kvöldin. Á þeim tíma var ég með
spurningaþættina „Hvað held-
urðu?“ og var búinn að segja við
Baldur Hermannsson spurn-
ingameistara að hann gæti
hringt í mig hvenær sem væri
til að ræða skipulagninguna. Ég
geymdi stóra símann við hliðar-
línuna. Um korter í tólf hringdi
síminn og þar sem ég var með
boltann sá ég mér færi að grípa
símann en halda áfram að spila
boltanum fram völlinn. Ég var í
hasarleik og mjög móður,“ segir
Ómar sem fannst fyndið að heyra
í Baldri sem baðst margsinnis af-
sökunar fyrir að hringja á þess-
um tíma næturinnar. „Enda hélt
hann að ég væri að gera eitthvað
allt annað en að spila fótbolta,“
segir Ómar og skellir sér á lær.
„Baldur sagði mér það seinna
að hann hefði furðað sig á því að
ég skyldi svara í símann sama á
hverju gengi.“
Úr einum síma til að finna hinn
Ómar gengur með þrjá síma á sér.
„Ég er með tvo síma sem kostuðu
4.900 krónur hvor og ég held mikið
upp á svona galdratæki sem kosta
svipað og ein búðarferð í Bónus,“
segir Ómar sem notar annan sím-
ann til að finna hinn enda ekki
óalgengt að hann leggi símana
frá sér á óvenjulegum stöðum.
Þriðji síminn er snjallsími. „Þetta
er ódýrasti Samsung-síminn sem
er með Skype en Skype er eitthvað
sem mann dreymdi alltaf um,“
segir Ómar sem geymir snjallsím-
ann á sérstökum stað í jakkanum.
„Ef ég þarf að tala í Skype eða leita
að einhverju á skjá færi ég kortið
úr aumingjasímanum yfir í snjall-
símann. Svona símar með skjá
eyða nefnilega svo miklu meira
rafmagni.“
Ómar segist annars mjög léleg-
ur að nota símann sem tölvu. „Ég
reyni alltaf að vera með spjaldtölv-
una mína með mér en set þá kröfu
að spjaldtölvur séu með lyklaborði
eins og ritvél. Ég get með engu
móti verið að pikka þetta með
puttunum eins og margir gera,“
segir hann og brosir. „Draumur-
inn núna er að eignast minnstu
slíku spjaldtölvuna sem er samt
nógu stór til að vera með lykla-
borði.“
Hringt í kistuna
Aðdáun Ómars á símum nær
út fyrir gröf og dauða enda ber
hann með sér leyndan draum
um að fá símtal í kistuna. „Það
væri mjög skemmtilegt ef sím-
inn myndi hringja inni í kist-
unni þegar verið væri að molda
hana í kirkjunni,“ segir Ómar og
skellir upp úr. „Það væri í mínum
anda en ég er þó ekki viss um að
þeim sem standa fyrir jarðarför-
inni muni finnast þetta sniðug
hugmynd.“
Með þrjá síma í vösunum
Ómar Ragnarsson var einn fyrsti Íslendingurinn til að festa kaup á farsíma, á tíma þar sem símarnir voru á stærð við ferðatöskur. Í dag
gengur Ómar með þrjá síma enda gott að eiga einn til vara þegar eitthvað kemur fyrir hina eins og svo oft vill verða með símana hans Ómars.
Á ferð og flugi. Ómar talar hér í einn af þremur símum sínum en með í för eru hinir símarnir tveir auk fartölvunnar. MYND/GVA
Einn síminn
varð eftir á stéli
á flugvél þegar ég flaug
til Vestmannaeyja. Þegar
ég kom til baka
uppgötvaði ég að ansi
margir Fokkerar höfðu
lent á símanum.
40.000 fréttaþyrstirnotendur
Smelltu þér á
Fréttablaðsappið
og lestu blaðið
hvar sem er og
hvenær sem er.
Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna
og snjallsímann með Fréttablaðsappinu.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-3
2
B
C
1
6
2
B
-3
1
8
0
1
6
2
B
-3
0
4
4
1
6
2
B
-2
F
0
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K