Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 12
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | FERÐAÞJÓNUSTA Virðisaukaskatt- skyld velta bílaleiga jókst um 165 prósent milli áranna 2010 og 2014 og velta í gistirekstri jókst um 119 prósent á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hag- stofu Íslands. Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir vöxtinn í þessum greinum hafa verið í samræmi við fjölda ferðamanna sem hafi verið tvöfalt fleiri í fyrra en árið 2010. Það komi hins vegar á óvart hve hægst hafi á vexti veltu far- þegaflugs milli landa. „Það sem slær mann strax er að vöxtur flug- þáttarins síðustu ár er ekki í takt við fjölgun ferða- manna,“ segir Helga. Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur veltan í farþegaflutningum í flugi aukist um þriðjung frá árinu 2010 en aðeins um tvö prósent á síð- asta ári og sjö prósent árið 2013. „Skýringin á þessu er væntanlega m.a. að mikil fjölgun hefur verið yfir vetrartímann þegar flugverð hafa verið almennt lægri en eins hafa fleiri erlend flugfélög verið að sækja hingað heim,“ segir hún. Vöxturinn í veltu veitingageir- ans hefur verið hægari en fjölg- un ferðamanna, eða 52 prósent frá árinu 2010. „Þar er auðvitað stór hluti viðskiptavina Íslendingar,“ segir Helga og því sé veltan ekki endilega samanburðarhæf við fjölgun ferðamanna. Velta ferðaskrifstofa, ferðaskipu- leggjenda og farþegaflutninga er ekki í úttektinni þar sem þeir aðil- ar eru undanskildir virðisauka- skatti. Út frá tölum um fjölgun starfa má þó áætla að mikill vöxt- ur sé í skipulagningu ferða en 1.800 manns störfuðu í þeim geira í maí síðastliðnum miðað við 900 í maí árið 2011. Störfum í ferðaþjónustu hefur fjölgað hratt síðustu ár. Í maí á þessu ári voru 18.500 starfandi í ferðaþjónustu samanborið við 16.900 árinu áður. Því fjölgar störf- um um 1.600 milli ára sem er í sam- ræmi við fjölgun starfa síðustu ár. „Það er ekkert smáræði og þetta styður það sem við höfum verið að tala um, að fjölgun starfa frá hruni hafi fyrst og fremst verið í ferða- þjónustunni,“ segir Helga. Í nýlegri skýrslu Íslandsbanka um ferða- þjónustu er áætlað að 45 prósent nýrra starfa frá árinu 2010 hafi orðið til í ferðaþjónustu. ingvar@frettabladid.is 12 VIRÐISAUKASKATTSKYLD VELTA Í FERÐA- ÞJÓNUSTU Í MILLJÖRÐUM KRÓNA 200 150 100 50 0 2010 2011 2012 2013 2014 ■ Farþegaflug ■ Rekstur gististaða ■ Veitingasala og -þjónusta ■ Leiga á ökutækjum 16 1, 24 22 ,2 9 22 ,2 9 4 2, 57 42 ,5 7 9, 97 9, 97 14 ,2 4 14 ,2 4 17 ,9 5 17 ,9 5 21 ,5 9 21 ,5 9 26 ,4 3 26 ,4 34 6, 80 46 ,8 0 50 ,7 4 50 ,7 4 57 ,7 6 57 ,7 6 64 ,8 1 64 ,8 1 27 ,2 0 27 ,2 0 32 ,8 3 32 ,8 3 40 ,2 0 40 ,2 0 48 ,7 9 48 ,7 9 16 6, 65 19 6, 82 21 1, 39 21 4, 72 FJÖLDI STARFA Í FERÐAÞJÓNUSTU Í MAÍ 1500 1000 500 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 11 .6 00 12 .7 00 13 .8 00 15 .4 00 16 .9 00 18 .5 00 Velta bílaleiga og hótela vex hraðast Virðisaukaskattskyld velta hótela og bílaleiga hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2010. Hægari vöxtur er í farþegaflugi enda samkeppnin við erlend flugfélög hörð. Störfum innan ferðaþjónustu hefur fjölgað um ríflega 1.500 á ári síðustu ár. HELGA ÁRNADÓTTIR BÍLALEIGA AKUREYRAR Velta hjá bílaleigum hefur aukist mikið síðustu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Námskeið í að meðhöndla hesta með höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð Haldið 01. -04. október 2015 Námið er kennt í önnum og eru fimm annir til að klára námið og geta orðið skráður græðari. Á námskeiðinu lærir þú grunninn í vinnu með Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð á hestum. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, sýnikennslu og æfingum. Hægt er að yfirfæra námið á alla fjórfætinga. Kennari er Sandi J. Hewlett frá Canada. Nánari upplýsingar um námið og skráningu hjá Erlu Ólafsdóttur sjúkraþjálfar í síma 8630610 eða erla@upledger.is, www.upledger.is afsláttur af Nicorette QuickMist til 12. júlí.15%PIPAR\TB W A • SÍ A www.apotekarinn.is Fáðu þér alvöru ferskt loft! Apótekarinn er með lausnir fyrir þig ef þú þarft hjálp við að hætta að reykja. STJÓRNSÝSLA Innanríkisráðuneytið hefur ekki afgreitt mál hinnar ellefu ára gömlu Harrietar Cardew ári eftir að kæran barst. Foreldrar Harrietar kærðu þá úrskurð Þjóðskrár Íslands um að neita Harriet um vegabréf á grundvelli þess að nafn hennar væri ekki samþykkt af mannanafnanefnd. „Mannanafnanefnd er eitt en það að hún fái ekki nein skilríki og vegabréf er svolít- ið alvarlegt,“ segir Kristín Cardew, móðir Harrietar. Harriet og bróðir hennar, hinn þrettán ára gamli Duncan Cardew, hafa verið skráð sem stúlka og drengur Cardew í Þjóð- skrá frá fæðingu. Því má áætla að Þjóð- skrá muni einnig neita Duncan um vega- bréf verði óskað eftir því. Kristín segir að börnin sín hafi í raun verið sett í farbann. Innanríkisráðuneytið hefur tvívegis sent Ragnari Aðalsteinssyni, lögmanni fjöl- skyldunnar, bréf þar sem beðist er afsök- unar á hve langan tíma afgreiðsla málsins hafi tekið. Fyrra bréfið barst í nóvember þar sem fram kom að niðurstöðu væri að vænta seint í janúar. Í mars barst svo annað bréf þar sem fram kom að niður- stöðu væri að vænta í lok maí, fyrir einum mánuði. - ih Kæra foreldra Harrietar Cardew til innanríkisráðuneytisins er óafgreidd ári eftir að hún barst: Fær ekki vegabréf því að hún heitir Harriet KÆRAN AFHENT Kristín Cardew afhenti starfsmanni innanríkis- ráðuneytisins kæruna þann 26. júní 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NOREGUR Minni umsvif í olíuiðn- aðinum í Noregi hafa leitt til þess að flugfarþegum hefur fækkað í innanlandsfluginu. Hlutafélagið Avinor, sem rekur 46 flugvelli í Noregi, hefur þegar hafið sparnað og niðurskurð. Félagið býr sig nú undir að þurfa að grípa til frekari sparn- aðaraðgerða, eins og að fresta eða hætta við fyrirhugaða stækkun nokkurra flugvalla, fari flugfarþegum ekki fjölgandi á ný. - ibs Færri flugfarþegar í Noregi: Ræða frestun framkvæmda 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 1 0 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 B -5 5 4 C 1 6 2 B -5 4 1 0 1 6 2 B -5 2 D 4 1 6 2 B -5 1 9 8 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 1 0 4 s _ 2 6 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.