Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 2
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
Prumpulykt um borð
„Það getur verið frekar mikil prumpulykt
hérna,“ sagði Birgitta Michaelsdóttir í
vikunni, en hún siglir um heimsins höf
á danska skólaskipinu Georg
Stage sem smíðað var 1934.
Eftir útskrift úr Kvenna-
skólanum ákvað Birgitta
að sækja um nám í sjó-
mennsku á skólaskip-
inu og verður með
samnemendum
sínum fimm mán-
uði um borð.
FIMM Í FRÉTTUM KJARASAMNINGAR OG KÝTINGUR Í KENÍA
➜ Ragna Árnadóttir, formaður
stýrihóps um framtíð innan-
landsflugvallar,
skilaði skýrslu
hópsins í fyrra-
dag. Í skýrslunni
kemur fram
að flugvöllur í
Hvassahrauni
sé vænlegasti
kosturinn.
Gná Guðjónsdóttir
kærði ráðningu innan-
ríkisráðuneytisins á
þremur körlum í emb-
ætti aðstoðaryfirlög-
regluþjóna. Úrskurðar-
nefnd jafnréttismála
úrskurðaði fyrir síðustu helgi að ráðu-
neytið hefði farið á svig við lög.
Áslaug Hulda Jónsdóttir,
formaður bæjarráðs
Garðabæjar, vill sporna
gegn því að Garðbæingar
verði hlutfallslega of
gamlir. Ný skýrsla leiddi í
ljós að íbúar Garðabæjar
væru hlutfallslega eldri en annarra bæja.
Þórunn Helgadóttir,
f ormaður ABC Barnahjálp-
ar í Kenía, hefur staðið í
deilum við ABC á Íslandi.
Hún segir ABC á Íslandi
greiða eldri drengjum
í skólanum til að halda
honum í herkví og starfsfólki ABC úti.
Ólafur G. Skúlason, for-
maður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga,
undir ritaði kjarasamn-
inga í vikunni. Hann
segir hugsanlegt að
undirritunin muni koma
í veg fyrir að kjör stéttarinnar verði
ákveðin í gerðardómi.
VEÐUR
Í dag blæs áfram hressilega af austri
með suðurströndinni, en annars staðar á
landinu verður vindur ekki til skaða. Það
verður bjart norðan- og vestanlands og hiti
að 20 stigum, en rigning á Suðausturlandi
og Austfjörðum og mun svalara þar.
SJÁ SÍÐU 84
MANNRÉTTINDI „Ég hef tekið dæmi
af setningarhátíð 17. júní á Austur-
velli,“ segir Ellen Calmon, formað-
ur Öryrkjabandalagsins, um þá
mismunun sem fatlaðir þurfa að
þola.
E l len sg i r
stundina hafa
verið hátíðlega
fyrir þátttak-
endur og marga
sem fylgdust
með í sjónvarpi.
„En þarna vant-
aði alveg túlk
og engin textun
var í sjónvarpi. Upplifunin fyrir
heyrnarlaust fólk, hvort sem það
sat heima eða var á Austurvelli,
var þrúgandi útilokun. 17. júní er
ekki skyndiviðburður og því ætti að
vera auðvelt að sjá til þess að túlk-
un og textun sé klár fyrir daginn.“
Væri samningur Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi fatlaðs fólks full-
giltur á Alþingi segir Ellen að mætti
koma í veg fyrir að fötluðu fólki yrði
úthýst úr samfélaginu með þessum
hætti. Öryrkjabandalagið berst
fyrir því að Alþingi fullgildi samn-
inginn á haustþingi sínu. „Við höfum
safnað undirskriftum síðan í haust
og stefnum á þrjátíu þúsund.“
Ísland undirritaði samninginn í
mars árið 2007 en hefur enn ekki
fullgilt hann. 155 önnur ríki hafa
undirritað samninginn og þar af
hafa 132 ríki fullgilt hann. Í álykt-
un Alþingis um framkvæmda-
áætlun í málefnum fatlaðs fólks
til ársins 2014 er kveðið á um að
samningurinn skyldi fullgiltur eigi
síðar en á vorþingi 2013.
„Við vitum að þetta er til með-
ferðar í innanríkisráðuneytinu
en því miður er tilfinningin sú að
mannréttindi fatlaðs fólks séu ekki
sett í forgang,“ segir Ellen. Ísland
sé eitt af fjórum löndum í Evrópu
sem ekki hafi fullgilt samninginn.
Auk Íslands séu þetta Írland, Hol-
land og Finnland, en Finnar klári
ferlið í haust.
Rannveig Traustadóttir, pró-
fessor í fötlunarfræði, segir samn-
inginn afar víðtækan sáttmála um
réttindi fatlaðra. „Rannsóknir hafa
sýnt að aðrir sambærilegir mann-
réttindasáttmálar hafi ekki náð til
fatlaðs fólks og fatlað fólk er 15
prósent jarðarbúa þannig að það
er stærsti minnihlutahópurinn í
heiminum.“
Sáttmálinn tekur á málefnum
fatlaðra sem mannréttindamáli
en ekki velferðarmáli. Rannveig
segir það vera nýjung í sáttmál-
um af þessum toga. „Sáttmálinn
myndi hafa miklar breytingar í för
með sér. Þar er kveðið stíft á um
að fatlað fólk eigi að ráða sér sjálft
og ef það er í erfiðri aðstöðu til að
geta nýtt sér þau réttindi þá er það
skylda samfélagsins að aðstoða
fólkið við það svo það eigi rétt á að
lifa án aðgreiningar.“
stefanrafn@frettabladid.is
RANNVEIG
TRAUSTADÓTTIR
NÝ HUGSUN
Sáttmáli
Sameinuðu
þjóðanna
um rétt-
indi fatlaðs
fólks tekur
á málum
fatlaðra sem
mannrétt-
indamáli
frekar en vel-
ferðarmáli.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Ísland eftirbátur í
málefnum fatlaðra
Ísland er eitt fjögurra Evrópuríkja sem á eftir að fullgilda sáttmála Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Formaður Öryrkjabandalagsins segist upplifa
það sem svo að stjórnvöld forgangsraði ekki í þágu fullgildingar samningsins.
Þarna vantaði
alveg túlk og
engin textun
var í sjónvarpi.
Upplifunin
fyrir heyrnar-
laust fólk, hvort sem það sat
heima eða var á Austurvelli,
var þrúgandi útilokun.
Ellen Calmon,
formaður Öryrkjabandalags Íslands
FRAKKLAND Flóttamenn reyna unnvörpum að komast óséðir um borð
í flutningabíla við Ermarsundsgöngin í Frakklandi. Flóttamennirnir
hafa reynt að nýta sér það þegar bílalestir eru stopp að komast óséðir
inn í bílana til þess að komast yfir til Bretlands. Neyð þeirra er mikil
og vonast þeir til þess að komast til Bretlands þar sem þeir geti hafið
nýtt líf. - vh
Flóttamenn í Frakklandi freista þess að fela sig í vörubílum:
Reyna að lauma sér til Bretlands
Í LEIT AÐ BETRA LÍFI Flóttamennirnir, sem staddir eru í Frakklandi, vilja freista
þess að öðlast betra líf í Bretlandi. NORDICPHOTOS/GETTY
SVEITARSTJÓRNARMÁL Aukafundur í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar fer fram á mánudaginn þar sem ræða á
breytingar á stjórnskipulagi Hafnarfjarðar. Forsvars-
menn minnihlutans í bæjarstjórn telja það skrítna
stöðu því síðastliðinn miðvikudag hafi bæjarstjórn
farið í tveggja mánaða sumarfrí.
Guðlaug Kristjánsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar, tilkynnti bæj-
arfulltrúum það í gær að til stæði
að senda út formlegt fundarboð við
fyrsta tækifæri.
Rósa Guðbjartsdóttir, formað-
ur bæjarráðs, sagðist ekkert hafa
um málið að segja því ekki væri
formlega búið að boða til þessa
aukabæjar s tjórnarfundar.
Formlegt fundarboð var sent út í
gærkvöld og eitt mál á dagskrá. Úttekt hefur staðið
yfir á rekstri sveitarfélagsins og fyrirtækja innan
þess. Í kjölfar hennar verði tekin ákvörðun um hag-
ræðingu í rekstri bæjarins.
Gunnar Axel Axelsson, oddviti Samfylkingarinnar
í bænum, segir fundarefnið undarlegt. „Engar stjórn-
kerfisbreytingar hafa verið ræddar í bæjarráði, sem
þó fer með formlegt umboð til meðferðar mála sem
snerta stjórnkerfi og fjármál sveitarfélagsins. Engar
tillögur að breytingum hafa verið þar til meðferðar,“
segir Gunnar Axel. - sa
Bæjarstjórn á aukafund fimm dögum eftir að hún fór í sumarfrí:
Stjórnskipulaginu umturnað
ERFIÐ STAÐA Fjárhagsleg staða sveitarfélagsins er erfið og
hefur úttekt verið unnin um rekstur þess. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GUNNAR AXEL
AXELSSON
ALÞINGI Nefndarfundur var á
Alþingi í gær. Á meðal stórra
mála sem tekin voru fyrir má
nefna frumvarp sjávarútvegs-
ráðherra um makríl og frumvörp
fjármálaráðherra tengd hafta-
losun.
Losun hafta er mál sem þarfn-
ast mikillar yfirlegu og líklegt er
að þegar um þingfrestun semst
verði nokkrir þingdagar sérstak-
lega lagðir undir það.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru skiptar skoðanir
varðandi makrílinn á milli þeirra
sérfræðinga sem nefndin hefur
heyrt í. Ekki tókst að ná lendingu
í málinu í gær, en vonast er til að
það gerist eftir helgi, líkt og með
höftin. - kóp
Nefndir störfuðu í gær:
Makríll og höft
í næstu viku
DÓMSMÁL Endurupptökunefnd
hefur ákveðið að taka upp að
nýju mál manns sem dæmdur var
fyrir að verða barni að bana með
því að hrista það harkalega. RÚV
greindi frá málinu í gær.
Níu mánaða drengur sem var í
daggæslu hjá Sigurði Guðmunds-
syni og þáverandi eiginkonu
hans, lést 4. maí 2001 og var Sig-
urður dæmdur í þriggja ára fang-
elsi í Héraðsdómi 2002 fyrir að
hafa hrist drenginn sem á að hafa
valdið því að hann fékk heila-
skaða og lést. Hæstiréttur mild-
aði dóminn í 18 mánuði. Hann sat
í fangelsi í ár, þar sem hann lenti
í slysi sem gerði hann að öryrkja.
Sigurður hefur barist fyrir end-
urupptöku málsins síðan þá. - vh
Dæmdur fyrir að hrista barn:
Mál dagföðurs
tekið upp að nýju
F ÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
Lukkulíf á
Mallorca
Síðustu sætin í júlí
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444
Verð frá 64.400 kr.*
*m.v. 2 fullorðna og 2 börn í eina viku.
Verð fyrir 2 fullorðna 94.500 kr.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-2
8
D
C
1
6
2
B
-2
7
A
0
1
6
2
B
-2
6
6
4
1
6
2
B
-2
5
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K