Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 73

Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 73
KYNNING − AUGLÝSING Farsímar og fylgihlutir27. JÚNÍ 2015 LAUGARDAGUR 7 Það er ekki bara að þetta hulstur þoli rigningu held-ur er það algerlega vatns- helt. Ég fer með símann í sund og tek myndir af stráknum mínum kafa,“ segir Sigurður Helgason, eigandi verslunarinnar iStore í Kringlunni, um nýju vatns- og höggheldu Catalyst-hulstrin fyrir iPhone. „Þessi hulstur henta mjög vel fyrir sund, veiði, úti- legu, skíði og allt annað þar sem við erum hrædd um að síminn gæti skemmst. Þetta er fullkom- in vörn og þurfum við að hafa mjög einbeittan brotavilja til að laska símana okkar þegar þeir eru í þessum hulstrum,“ segir Sigurður. „Á sama tíma er hönn- unin þannig að síminn er ennþá jafn flottur og öll virkni hans er óbreytt. Þetta er grennsta vatns- helda hulstrið á markaðnum.“ Hulstrin eru ekki síður hent- ug fyrir ýmsa iðnaðarmenn að sögn Sigurðar því þau hindra að ryk og önnur óhreinindi komist að símanum. „Með þessu hulstri þolir síminn tveggja metra fall og hægt er að fara niður á fimm metra dýpi. Þrátt fyrir það eru þau afar nett og þægileg og hafa engin áhrif á notagildi símans. Við höfum áður selt vatnsheld hulstur en þessi skara algjörlega fram úr.“ Sérverslun með Apple vörur iStore í Kringlunni sérhæfir sig í sölu á Apple-vörum og býður auk þess mikið úrval fjölbreyttra aukahluta fyrir Apple-vörur. „Við erum að selja sömu vörur og hinir eru að gera, þar með talið iPhone-símana, iMac-borðtölv- ur og Macbook-fartölvur og oftar en ekki á lægra verði. Við leggj- um extra mikið upp úr að þjón- usta viðskiptavini með skjótum og sveigjanlegum vinnubrögð- um. Þegar þú kemur með tölvu, síma eða iPad í ábyrgðarviðgerð þá lánum við þér sambærilegt tæki meðan á viðgerð stendur. Við leggjum okkur fram um að veita framúrskarandi ráðgjöf til að hámarka ánægju viðskipta- vina og lítum á okkur fyrst og fremst sem þjónustufyrirtæki,“ segir Sigurður. Gera lífið betra iStore selur einnig frábæra púls- mæla frá Wahoo sem gefa mjög nákvæman lestur á púlsinum auk þess sem hann virkar m.a. með Apple Watch. „Ein mesta snilldin við púlsmælinn er að hann virkar með öllum þess- um helstu íþróttaöppum, t.d. RunKeeper og öðrum vinsælum öppum. Ein týpan sem við selj- um, TICK X, geymir til dæmis púlsinn og aðrar upplýsingar ef síminn er ekki nálægt. Það hent- ar mjög vel fyrir þá sem stunda líkamsrækt eins og Boot Camp þar sem síminn er ekki nálægt. Þá tekur tækið upp allar upplýs- ingar og svo þegar síminn er við höndina sendir það upplýsing- arnar um æfingarnar inn í sím- ann. Mælirinn greinir líka hreyf- ingar og hentar því vel þeim sem stunda hreyfingu á borð við hlaup, crossfit og fleiri greinar.“ Þá hefur Philips Hue þráð- lausa ljósakerfið slegið í gegn að sögn Sigurðar en með því er hægt að búa til og stýra lýsingu á ljósaperunum með iOS-tækjum heimilisins. „Þetta ljósakerfi er algjör snilld en því má til dæmis stýra úr símanum og reyndar líka með Apple Watch. Hægt er að hanna lýsinguna þannig að ljósin veki þig á morgnana, hægt er að setja ljósarendur undir hús- gögn og upp á vegg og víða auk þess sem hægt er að stýra ljós- unum að heiman. Byrjenda- pakkinn inniheldur þrjár perur og það er ekkert mál að bæta við fleiri perum síðar. Verslun okkar í Kringlunni er með svona perum og þar geta viðskiptavinir prófað sig áfram.“ Láta gott af sér leiða Frá stofnun hefur iStore kapp- kostað að láta gott af sér leiða. iBörn, samfélagssjóður iStore, hefur rétt hjálpar hönd til fjöl- margra fjölskyldna langveikra og hreyfihamlaðra barna með iPad gjöfum. „Þetta byrjaði á því að faðir stúlku sem var rúmlega tveggja ára og algjörlega lömuð sendi mér fyrirspurn hvort ég héldi að iPad gæti hjálpað dótt- ur hans.“ Á þessum tíma var lítil þekking á iPad sem hjálpartæki enda var varan nýlega komin á markað en Sigurður fékk svo sterkan áhuga á að skoða þetta og leitaði uppi ótal forrit sem gætu örvað hreyfingu hjá börn- um. „Ég fór svo með iPad til dóttur mannsins og fann að það gerðist kraftaverk. Í fyrsta skipti á sinni stuttu ævi fór hún að sýna markvissar hreyfingar, tárin í augum foreldranna spruttu fram og þetta varð svona augnablik þar sem ég fann að ég var kom- inn á einhverja braut sem ég vildi halda áfram á,“ segir Sigurður. Síðan þá hefur samfélagssjóð- ur iStore gefið tæplega 40 iPad og leitast við að bæta einni fjöl- skyldu við í hverjum mánuði. Taktu myndir á iPhone í sundi iStore er sérverslun með Apple-vörur í Kringlunni og býður einnig mikið úrval fjölbreyttra aukahluta fyrir Apple-vörur. Mynd tekin með iPhone síma í kafi af syni Sigurðar Helgasonar. MYND/ÚR EINKASAFNI Vatnsheldu hulstrin henta t.d. vel fyrir sund, útilegu, veiði og skíði að sögn Sigurðar Helgasonar, eiganda verslunarinnar iStore í Kringlunni. MYND/ERNIR iStore í Kringlunni sérhæfir sig í sölu á Apple vörum og býður auk þess mikið úrval fjölbreyttra aukahluta fyrir Apple vörur. MYND/ÚR EINKASAFNI 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 B -3 2 B C 1 6 2 B -3 1 8 0 1 6 2 B -3 0 4 4 1 6 2 B -2 F 0 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 1 0 4 s _ 2 6 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.