Fréttablaðið - 06.05.2015, Síða 10
6. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Til hvers að flækja hlutina?
365.is | Sími 1817
SJÁLFKRAFA
í BESTA ÞREP!
FYRIRTÆKJALAUSNIR
Net, borðsími, farsími og Office 365 frá 12.100 kr. á mánuði.
Fyrirtækjapakki Símans inniheldur Internet, borðsíma- og farsímaþjónustu, ásamt Office 365 skýþjónustu sem
tryggir nýjustu útgáfur af forritum og aðgang að vinnuskjölum hvar sem er. Fullkomin yfirsýn og fyrirsjáanlegur
rekstrakostnaður með föstu mánaðargjaldi. Hafðu samband í síma 800 4000 eða á 8004000@siminn.is.
Þú getur meira með Fyrirtækjalausnum Símans
E
N
N
E
M
M
/
N
M
6
6
3
5
0
Allt sem fyrirtækið
þarf í einum pakka
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 22,9 millj.
119,0 m² sumarhús
Hallkelshólar8 0 1 S e l f o s s
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Land Hallkelshóla í Grímsnes og
Grafningshreppi
Innst í botnlanga
Um 70 km frá Reykjavík
Tveir sólpallar / Eigin borhola
Laust
strax
ÞÝSKALAND Þýski blaðamaðurinn
Jürgen Todenhöfer, sem kominn er
yfir sjötugt, dvaldi á síðasta ári hjá
vígamönnum „Íslamska ríkisins“ í
Sýrlandi og Írak, samtals í tíu daga
og varð fyrsti vestræni blaðamað-
urinn sem slapp þaðan heill á húfi.
Um helgina birti hann á vef-
síðu sinni opið bréf til Abu Bakr al
Bagd adí, leiðtoga samtakanna, en
sá er nú sagður alvarlega særður
eftir loftárás í síðasta mánuði.
Todenhöfer þakkar Bagdadí
kærlega fyrir að hafa tekið vel á
móti sér og staðið í einu og öllu
við loforð um að sér yrði ekki gert
mein. Niðurstaða sín eftir þessa
tíu daga heimsókn sé síðan sú
að flestar gerðir Íslamska ríkis-
ins séu andstæðar íslamstrú: „Þú
ættir að gefa ríki þínu nýtt nafn
og kalla það And-íslamska ríkið,“
segir Todenhöfer. Hann segir
síðan að Bagdadí sjálfur sé alger
andstæða Múhameðs spámanns:
„Múhameð var miskunnsamur,
þér eruð miskunnarlaus. Múham-
eð var framsýnn byltingarmaður,
þér eruð aftur haldssamur fortíð-
arsinni.“
Todenhöfer vitnar óspart í Kór-
aninn, sem hann segist hafa lesið
oft sér til ánægju þrátt fyrir að
vera kristinnar trúar.
Hann segir að Bagdadí brjóti
nánast öll boð-
orð Kóransins,
ekki síst þetta:
„Ef maður drep-
ur mann, þá er
það eins og hann
hafi drepið allt
mannkyn. En
ef hann bjargar
mannslífi, þá er
eins og hann hafi
bjargað öllu mannkyninu,“ og bein-
ir síðan máli sínu beint að Bagdadí:
„Þú hefur aldrei bjargað mannslífi.
Alltaf bara drepið án allrar mis-
kunnar. Þú skaðar þar með allan
hinn íslamska heim. Þú ert núna
versti óvinur íslams.“
Todenhöfer hefur oft ferðast til
átakasvæða í Mið-Austurlöndum
og skrifað um það nokkrar bækur.
Í gær birti Todenhöfer síðan
áskorun til Vesturlandabúa, sem
haldið hafa til Írans eða Íraks að
berjast með „Íslamska ríkinu“.
„Enginn gleðst meira yfir ódæð-
um ykkar en óvinir íslams. Stund-
um gæti maður haldið að þið væruð
uppfinning þeirra,“ segir í áskorun-
inni. gudsteinn@frettabladid.is
Segir vígamönnum
ISIS til syndanna
Jürgen Todenhöfer hefur birt opið bréf til leiðtoga hins svokallaða „Íslamska ríkis“,
sem hann segir að ætti að heita „And-íslamska ríkið“. Todenhöfer hefur oft ferðast
til átakasvæða í Mið-Austurlöndum og heimsótti vígasveitir ISIS á síðasta ári.
ABU BAKR AL BAGDADÍ Leiðtogi „Íslamska ríkisins“, sem nú er sagður liggja alvar-
lega sár eftir loftárás í síðasta mánuði. NORDICPHOTOS/AFP
JÜRGEN
TODENHÖFER
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
B
-8
3
D
C
1
6
3
B
-8
2
A
0
1
6
3
B
-8
1
6
4
1
6
3
B
-8
0
2
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K