Fréttablaðið - 06.05.2015, Síða 28

Fréttablaðið - 06.05.2015, Síða 28
 | 8 6. maí 2015 | miðvikudagur Kristín Jóhannsdóttir, samskipta- stjóri Nasdaq Iceland, ákvað eftir tíu ára starf hjá Kauphöllinni að breyta til og opna eigin almanna- tengslaskrifstofu. Nýja fyrirtækið hennar hefur fengið heitið Apríl almanna- tengsl. Kristín hefur þó ekki að fullu sagt skilið við fyrri vinnu- stað sinn því að hún hefur samið um ráðgjafarstörf fyrir Nasdaq á Íslandi, ásamt því að taka að sér önnur verkefni. Eftir stúdentspróf ákvað Krist- ín að verða kennari. Að loknu námi kenndi hún á unglinga- stigi í sex ár, bæði á Dalvík og í Reykjavík. Eftir það fór hún svo til Skotlands í meistaranám í almannatengslum við University of Stirling. Kristín, sem alla jafna er köll- uð Kitta, er alin upp á Dalvík. „Ég hugsa að það móti alla að hafa alist upp fyrir norðan. Maður ólst upp í þessu umhverfi sem er frið- sælt og fallegt og maður kann að meta þá nánd við náttúruna sem maður hefur þar. Mér þykir alltaf gott að koma heim og ég á föður þar,“ segir hún. Hún segir að upp- runi hennar hafi mótað hana af því að hún fór ung að vinna og sjá fyrir sér. „Það var algengt á Dalvík og örugglega í fl eiri smá- bæjum,“ segir hún. Ef Dalvíking- ar vilji mennta sig þá þurfa þeir að fara að heiman fi mmtán ára gamlir. „Og það getur verið svo- lítið erfi tt,“ segir Kristín. Kristín segir að áhugamál sín séu einkum þau að elda fyrir fjöl- skylduna og kæra vini. Hún les einnig mjög mikið, fjölbreytt efni, skáldsögur, reifara, vinnu- tengt og ljóð. Þessa dagana er hún meðal annars að lesa ljóð eftir Ingunni Snædal vinkonu sína. Þá segist Kristín einnig hafa gaman af innanhúsbreytingum og hönnun. „Fjölskyldan fær oft að njóta fjölbreyttra pælinga minna í formi breytinga á heim- ilinu. Þetta getur oft verið mjög skemmtilegt og skapandi. Oft fyrir mig meira en aðra reynd- ar,“ segir hún. Kristín segist líka gjarnan vilja gefa sér meiri tíma fyrir jóga. Hún segist helst vilja hafa nóg fyrir stafni og fólkið sitt i kringum sig, fjölskyldu og vini. „Maður er manns gaman,“ segir Kristin Kristín á sér leynda hæfi leika. Hún lærði ekki bara að verða kennari og almannatengill, held- ur er hún líka með fi mmta stig í söng. „Tónlist er mér hugleikin,“ segir hún en neitar því þó að hún syngi reglulega fyrir aðra. Hún sé meira að syngja fyrir sjálfa sig. Heimildir Markaðarins herma þó að Kristín troði reglulega upp á Fiskideginum mikla á Dalvík, sem haldinn er ár hvert. Og hljóti jafnan góðar undirtektir. Kristín er gift Rúnari Dýr- mundi Bjarnasyni og eiga þau þrjú börn saman. jonhakon@frettabladid.is Gaman að elda fyrir fjölskyldu og kæra vini Kristín Jóhannsdóttir hætti störfum hjá Nasdaq Iceland í síðustu viku eftir tíu ára starf. Hún hefur stofnað Apríl almannatengsl. FAGMAÐUR FRAM Í FINGURGÓMA DALVÍKINGUR Kristín segir að það hafi mótað sig að alast upp fyrir norðan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kristín er kona sem allir vildu hafa í sínu liði. Hún bíður ekki eftir að hlutirnir gerist af sjálfu sér heldur einhendir sér í verkefnin af fítonskrafti. Hún er fagmaður fram í fingurgóma, er leitandi og óhrædd við að kasta sér út í djúpu laugina – allt í þeim tilgangi að gera betur í dag en í gær. Kristín nýtur sín hvergi betur en í mannlegum samskiptum. Hún gefur afskaplega mikið af sér, eins og þeir sem hafa átt í samskiptum við hana, innan sem utan Kauphallarinnar, geta borið vitni um. Kristín er hreinskiptin. Hún segir skoðun sína umbúðalaust en er alltaf tilbúin að sjá fleiri en eina hlið á málunum. Þannig hafa mismunandi sjónarmið getað tekist á án þess að nokkur væri sár á eftir. Samstarfið við hana hefur verið í senn gefandi og lærdóms- ríkt. Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq á Íslandi „Við erum á fullu í markaðssetn- ingu á lambakórónunni í Rúss- landi. Við sendum svolítið út í haust og höfum verið að dreifa því til nokkurra aðila í veitingabrans- anum,“ segir Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfi rðinga. Í stuttu máli má segja að lambakóróna sé í raun fi lle með rifjum. Kaupfélag Skagfirðinga flutti í fyrra um 60-70 tonn af lamba- kjöti til Rússlands. Þar af voru um sjö tonn af lambakórónu. „Það er mikill markaður fyrir lamba- kjöt í Rússlandi þannig og það eru ákveðin tækifæri fyrir okkur að markaðssetja vöruna þar,“ segir Ágúst. Hann segir að Rússland sé ekki stærsti markaður fyrir Kaupfélag Skagfi rðinga í dag, en sennilegast sá markaður þar sem fyrirtækið ver mestum peningum til mark- aðssetningar núna. Þetta er gert í gegnum fyrirtækið Icecorp í Pét- ursborg sem er dótturfélag Kjöt- afurðastöðvarinnar. „Við erum að selja mikið til Spánar,“ segir Ágúst. Þá sé líka fl utt mikið til Noregs í heilum skrokkum, en ekki sé mikið markaðsstarf á bak- við það. „En við erum að senda um 200 tonn til Bandaríkjanna,“ segir hann svo. „Rússland er einn af þeim mörk- uðum sem við leggjum áherslu á núna og ætlum að gera núna á næstu árum. Að reyna að byggja upp markað fyrir íslenskt lamba- kjöt og íslensk matvæli í gegnum fyrirtækið okkar Icecorp í Péturs- borg.“ Ágúst segir að kreppan í Rúss- landi hafi vissulega haft áhrif á viðskiptin, fjárflæðið og annað slíkt. „Við höfum alveg þurft að lifa við það. En það sem er kannski mikilvægt í þessu er að gefast ekki upp heldur líta á þetta sem lang- tímaverkefni, því að þarna eru náttúrulega gríðarleg tækifæri til lengri tíma litið. Vörunni okkar er vel tekið og við erum með áætlan- ir um að byggja þetta hratt og vel upp á næstu árum,“ segir hann. jonhakon@frettabladid.is Kaupfélagið setur stefnuna á Rússland Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga leggur mesta áherslu á markaðssetningu í Rússlandi. Kreppan þar setur strik í reikning- inn. Forstöðumaðurinn segir þó mikilvægt að horfa til lengri tíma. KJÖTAFURÐASTÖÐ KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA. Velta Fríhafnarinnar nam 8,6 milljörðum króna í fyrra, sam- kvæmt ársreikningi sem nýlega var birtur í ársreikningaskrá. Hagnaður ársins nam um 17,4 milljónum króna og eignir nema rétt tæplega 1,6 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall er 49,3 prósent. Hagnaðurinn er umtalsvert minni í fyrra en hann var árið áður en þá nam hann 73 milljónum króna. Í ársreikningnum kemur fram að nýr húsaleigusamningur við Isavia ohf. tók gildi 1. janú- ar 2015 og gildir hann til ársloka 2018. Þá er Fríhöfnin einnig með húsaleigusamning vegna Dutyfree Fashion. Gjaldfærð húsaleiga beggja þessara samninga á árinu 2014 nam rúmlega 2.879 milljónum króna. - jhh Velta Fríhafnarinnar 8,6 milljarðar króna í fyrra samkvæmt reikningi: 2,9 milljarðar í leigu VERSLUN FRÍHAFNARINNAR Hagnaðurinn er umtalsvert minni í ár en hann var í fyrra. Íslandshótel hafa ákveðið að fjölga hótelherbergjum á Fáskrúðsfi rði og verða með 47 herbergi. „Við erum að opna 21 herbergi þar á næsta ári í viðbót,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastóri Íslandshótela. Fosshótel, sem eru í rekstri Íslandshótela, opnuðu hótel í Franska spítalanum í fyrra og þar eru nú 26 herbergi. Nú verður byggt nýtt hús við hlið Franska spítalans. „Það stendur eitt og sér en er í raun húsaþyrping, læknabústaðurinn, franski spítalinn, kapellan og sjúkraskýlið,“ segir Davíð Torfi . Davíð Torfi segir að reksturinn fyrir austan hafi gengið mjög vel. Það hafi verið uppselt allt sumarið í fyrra, en veturinn gengið merki- lega vel líka. „Við bindum miklar vonir við þetta svæði og alveg eins með Vestfi rðina. Við rekum hótel á Patreksfi rði og opnuðum það 2013. Það hefur komið mjög vel út og við höfum mikla trú á því svæði,“ segir Davíð Torfi . Hann býst við því að þegar vegasamgöngur batni á Vestfjörð- um þá eigi ferðaþjónusta þar eftir að vaxa enn meira. - jhh Íslandshótel hyggjast byggja við Franska spítalann og auka gistirými: Fjölga herbergjum á Fáskrúðsfirði um 21 Ég á þrjár systur og hún er bara eins og fjórða systir mín. Dásamleg vinkona í alla staði. Fjölhæf með eindæmum; saumar sér galakjóla, sem klæða hana fáránlega vel, án þess að nota snið; töfrar fram stjörnumáltíðir sem maður kemst ekkert í tæri við á venjulegum veitingahúsum. Fádæma skemmtileg, kann að vera til og hafa gaman og vera góð við alla í kringum sig. Svo þyrftu fleiri að fá að njóta sönghæfileika hennar sem hún hefur erft frá föður sínum. Lífskúnstner sem ég er þakklát fyrir að þekkja. María Pálsdóttir, leikkona og vinkona. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 B -E 1 A C 1 6 3 B -E 0 7 0 1 6 3 B -D F 3 4 1 6 3 B -D D F 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.