Fréttablaðið - 06.05.2015, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 6. maí 2015 | MENNING | 21
Borealis Band er umfangsmikið
verkefni sem er ætlað að höfða
til íbúa vestnorrænu höfuð-
borganna. Þrír ungir tónlistar-
menn frá hverju landi taka þátt
og þar af alltaf einn söngvari frá
hverju landi. Íslenski söngvar-
inn er Unnsteinn Manuel Stefáns-
son og hann segir að það sé búið
að vera mjög gaman að taka þátt
í verkefninu. „Það er svo gaman
að kynnast fólki og við erum með
svo nátengda sögu. Við byrjuðum
í Þórshöfn þar sem við æfðum upp
prógrammið í þrjá daga og héldum
svo tónleika á fjórða degi. Þaðan
fórum við til Kaupmannahafnar
þar sem við spiluðum á Norður-
atlantsbryggju og loks til Græn-
lands og spiluðum í Nuuk. Það
var alveg frábært að koma þang-
að enda fólkið alveg yndislegt.
Síðustu tónleikarnir verða svo í
Hörpu á föstudagskvöldið og það
má enginn missa af því.
Það væri svo gaman að sjá
verða framhald á þessu verk-
efni með nýju fólki. Það er nefni-
lega frábært að fá að kynnast tón-
listarmönnum af þessu svæði og
við eigum svo margt sameigin-
legt og við getum líka lært margt
hvert af öðru. Sjálfur fattaði ég til
að mynda ekki Ísland fyrr en ég
kom til Færeyja sem eru eins og
smækkuð mynd af Íslandi.“ - mg
Ég fattaði Ísland í Færeyjum
Vestnorrænir tónlistarmenn halda tónleika í Hörpu á föstudagskvöldið.
BOREALIS BAND Unnsteinn Manuel
og félagar í Borealis Band á sviðinu í
Hörpu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Föstudagur 8. maí kl. 9 – 11
Norræna húsið
Opin dagskrá í tilefni af Norrænu höfuðborgaráðstefnunni í Reykjavík dagana 7.-8. maí.
Dagskráin er hluti af hátíðahöldum vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna.
Erindi flytja frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og
velgjörðarsendiherra tungumála á vegum UNESCO, Brynhildur Davíðsdóttir
prófessor í umhverfis- og auðlindastjórnun við Háskóla Íslands og Hrönn Egilsdóttir,
doktorsnemi við Háskóla Íslands sem rannsakað hefur súrnun sjávar.
Fundarstjóri er Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar.
Allir velkomnir
Fimmtudagur 7. maí kl. 16.30 – 18.00
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur
KONUR OG LOFTSLAGSBREYTINGAR
BORGIR OG LOFTSLAGSBREYTINGAR
Í tilefni af Norrænni höfuðborgaráðstefnu 2015 sem haldin er í Reykjavík dagana 7. – 8. maí kynnir
Reykjavíkurborg tvo opna fundi þar sem rætt verður um loftslagsbreytingar í heiminum og aðgerðir
gegn þeim út frá sjónarhorni norrænu höfuðborganna. Fundirnir eru öllum opnir.
NORRÆN
HÖFUÐBORGARÁÐSTEFNA 2015
Opinn fundur borgarstjóra norrænu höfuðborganna þar sem þeir fjalla um viðbrögð
og aðlögun höfuðborganna að loftslagsbreytingum.
Fundarstjóri er Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari.
Allir velkomnir
Stoppleikhópurinn býður til
sannkallaðrar hátíðarsýningar
í Gerðubergi í kvöld á verkinu
„Upp, upp“ – Æskusaga Hall-
gríms Péturssonar eftir Valgeir
Skagfjörð. Leikhópurinn hefur
í vetur farið víða um landið við
góðar undirtektir en nú er komið
að síðustu sýningu og segir Egg-
ert Kaaber leikari og einn af
forsvarsmönnum hópsins að
upphaflegt tilefni verksins hafi
verið 400 ára afmæli Hallgríms.
„Leikritið segir æskusögu Hall-
gríms Péturssonar og er að
stærstum hluta byggt á bók-
inni Heimanfylgju eftir Stein-
unni Jóhannesdóttur sem öðrum
fremur hefur gert Hallgrími
Péturssyni og konu hans, Guð-
ríði Símonardóttur, skil í verkum
sínum.“ Leikarar í sýningunni
eru auk Eggerts þau Katrín Þor-
kelsdóttir og Valgeir Skagfjörð
en sá síðastnefndi er einnig höf-
undur handrits og leikstjóri.
Eggert segir verkið sniðið að
ungum áhorfendum og miða að
því að veita börnum og ungling-
um innsýn í lífsbaráttu Íslend-
inga á 17. öld og hvaða merkingu
það hafði fyrir ungan dreng
eins og Hallgrím Pétursson að
alast upp í Skagafirði á þeim
tíma. „Hvaða áhrif hafði það á
hann að dvelja á biskupssetrinu
að Hólum í Hjaltadal og ganga
í skóla á æðsta menntasetri
landsins og kynnast því merka
fólki sem þar bjó? Stórviðburðir
sögunnar á borð við Kötlugos,
farsóttir, hamfaraveður, galdra-
brennur og Tyrkjaránið settu
svip sinn á uppvöxt þessa mesta
stórskálds þjóðarinnar. Þetta er
mikið að melta fyrir þá sem eru
á unglingsárum í dag.
Krökkunum finnst einnig
gaman að sjá og heyra að Hall-
grímur þótti vera baldinn og
hrekkjóttur þegar hann var
á þeirra aldri, en við fylgjum
honum fram til þess tíma sem
hann heldur til Danmerkur í
nám.
Þess má geta að Stoppleikhús-
ið, sem samanstendur alfarið af
atvinnuleikurum, er tuttugu ára
um þessar mundir. Á þessum
tuttugu árum höfum við sett upp
25 íslensk leikverk og við erum
stolt af þessum árangri. Okkur
finnst því sérstaklega skemmti-
legt að geta boðið fólki í leik-
húsið í kvöld því það er enginn
aðgangseyrir. Hins vegar hvetj-
um við fólk til þess að panta sér
miða í síma 898-7205 svo það
komi ekki að yfirfullu húsi í
Gerðubergi í kvöld og þurfi frá
að hverfa því það verður aðeins
þessi eina sýning.“ - mg
Bjóða í leikhús
HALLGRÍMUR PÉTURSSON Tilgátu-
mynd af Hallgrími ungum eftir Sigur-
björgu A. Eiðsdóttur.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
B
-0
D
5
C
1
6
3
B
-0
C
2
0
1
6
3
B
-0
A
E
4
1
6
3
B
-0
9
A
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K