Morgunblaðið - 02.12.2014, Síða 10

Morgunblaðið - 02.12.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Svalaskjól - sælureitur innan seilingar Malín Brand malin@mbl.is G uðrún er fædd og upp- alin í Reykjavík en er sem fyrr segir hálfur Færeyingur og hálfur Íslendingur. Móðir Guðrúnar kenndi henni snemma að prjóna og hefur hún því nánast prjónað alla tíð. „Ég hef alltaf ver- ið með eitthvað á prjónunum,“ seg- ir Guðrún. Árið 2012 missti hún vinnuna og íhugaði þá vandlega hvað hún ætti til bragðs að taka og þá hófst fjörið! „Ég stofnaði fyr- irtækið Handverkskúnst með dótt- ur minni. Dóttir mín heklar og ég prjóna og við ákváðum að halda námskeið bæði í prjóni og hekli,“ segir hún. Námskeiðin hafa verið vel sótt og áhugi fólks á prjóna- skap er með eindæmum mikill. Hvorki rétta né ranga Guðrún hélt meðal annars námskeið í tvöföldu prjóni sem er áhugaverð prjónatækni sem notið hefur mikilla vinsælda hér á landi síðustu tvö árin. „Þetta er tækni sem byggist á því að þú ert að prjóna flík sem hvorki hefur réttu né röngu heldur eingöngu hlið A og hlið B. Þú getur snúið flíkunum við og notað á báða vegu og tvö- falda prjónið geturðu prjónað bæði með því að spegla mynstrin á sitt- hvora hliðina eða þá að prjóna flík sem er með sitthvort mynstrið og ert þá í raun komin með tvær gjör- ólíkar flíkur í einni,“ segir Guðrún. „Konurnar sem voru á námskeið- inu voru alltaf að biðja mig um Alltaf með eitthvað nýtt á prjónunum Sex ára gömul lærði Guðrún María Guðmundsdóttir að prjóna og hefur síðan þá prjónað ótal flíkur og fínirí. Guðrún er Færeyingur í aðra ættina og er alin upp við færeyska prjónahefð sem er ekki síður fjölbreytt en sú íslenska. Þar er til dæmis sterk hefð fyrir að börn fái haustpeysu að gjöf til að nota í skólanum. Guðrún hefur mikinn áhuga á tvöföldu prjóni og er nú komin út bók eftir hana um prjónið. Sniðug Guðrún María Guð- mundsdóttir vinnur við prjónið. Að flokka sorp er ekki endilega mjög flókið en mikilvægt er að gera það rétt til að allt skili sér á réttan stað í endurvinnsluna. Á vef SORPU, www.sorpa.is, er að finna gagnlegar upplýsingar um hvernig flokka á sorp. Til eru fimmtán mismunandi flokkunarmerki sem auðvelt er að læra því hver flokkur innan merkja- kerfisins hefur sinn lit til aðgrein- ingar. Í töflu sem skoða má með því að fara inn á slóðina hér að ofan eða skanna QR-kóðann hér til hliðar, er hægt að skoða vel upp setta flokk- unartöflu fyrir heimili. Fyrst er hlutum raðað niður eftir fyrrnefndum flokkunarmerkjum og flokki. Því næst er farið í hráefnið sjálft, því næst fráganginn og þar á eftir hvert á að skila því sem flokkað hefur verið. Töfluna má prenta út og t.d. hengja á ísskápinn eða á kork- töfluna í eldhúsinu. Vefsíðan www.sorpa.is/files/flokkunarreglur Ljósmynd/Getty Images/iStockphoto Sorp Áríðandi er að allir taki höndum saman og flokki sorp frá heimilum. Hvernig á að flokka rusl? nú í nóvember. The Color Run hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og yfir 200 hlaup hafa verið haldin í meira en 40 löndum. Hlaupið er hluti af norrænni herferð en árið 2014 hef- ur The Color Run verið haldið í Dan- mörku og Svíþjóð en Noregur og Finnland eru einnig fyrirhuguð árið 2015. Nákvæm hlaupaleið verður til- kynnt á næstu vikum en unnið er að því að finna hentuga leið í miðborg Reykjavíkur. „Grunngildi hlaupsins eru heilsa, hamingja og tjáningarfrelsi ein- staklingsins. Þetta verður fyrst og fremst skemmtilegt hlaup og kepp- The Color Run verður haldið í fyrsta skipti á Íslandi næsta sumar, nánar tiltekið laugardaginn 6. júní 2015. Hlaupið er 5 km langt þar sem lita- gleði og tónlist ræður ríkjum. Lyfja- fyrirtækið Alvogen er bakhjarl hlaupsins og meðal annarra sam- starfsaðila má nefna Nýherja og Bai5. The Color Run er tileinkað rétt- indum barna og stefnt er að því að 5 milljónir króna renni til góðgerðar- mála vegna viðburðarins. Fjöldi hlaupara verður takmark- aður við 6.000 en sá fjöldi hefur nú þegar staðfest komu sína á sam- félagssíðu hlaupsins sem fór í loftið endur verða vægast sagt skrautlegir við endamarkið eftir að hafa verið út- ataðir litum. Framlag og stuðningur Alvogen og annarra samstarfsaðila gerir okkur kleift að styðja með myndarlegum hætti við góðgerðar- mál sem tengjast réttindum barna. Það eru allir velkomnir í The Color Run og tímataka verður aukaatriði,“ segir Gestur Steinþórsson, einn af forsvarsmönnum hlaupsins. Hann segir viðburðinn hafa fengið frábær- ar viðtökur og ánægjulegt sé að geta boðið Íslendingum að taka þátt í þessu heimsþekkta hlaupi. Miðasala er hafin á miði.is Hlaupið The Color Run er tileinkað réttindum barna Litríkasta hlaupið haldið á Íslandi Hlaupið Grunngildi The Color Run eru heilsa, hamingja og tjáningarfrelsi. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Bókin Tvöfalt prjón – flott báðum meg- in, eftir Guðrúnu er nýkomin út. Tvennir Það er ekki amalegt að geta snúið vettlingum við til tilbreytingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.