Morgunblaðið - 02.12.2014, Side 14

Morgunblaðið - 02.12.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Nóg járn ámeðgöngu Hvernig er best að viðhalda járnþörf líkamans eðlilegri? Ef þú þjáist af járnskorti ámeðgöngu þá þarftu að borðamikið af járnríkummat til að leiðrétta það. Mörgumófrískum konumfinnst erfitt að borða það magn semþarf til að hækka og viðhalda járnbirgð- um líkamans. Þá þurfa þær önnur ráð, Floradix hágæða járnbætandi blanda getur hjálpað til að ná upp járnbirgðum líkamans hratt. Floradix inniheldur járn sem frásogast auðveldlega í líkamanumásamt C-vítamíni, ávaxta- og jurtaþykkni til að bæta enná upptökuna. Þessar sérstöku blöndur innihaldamýkjandi jurtir sem hjálpa til að haldameltingunni góðri og koma í veg fyrir harðlífi sem járntöflur geta valdið. Mikilvægt er að nýbakaðarmæður haldi áfram að taka Floradix eftir fæðingu til að viðhalda góðum járnbúskap og byggja upp orku og kraft. Því litla barnið þarfnast þess að eigamömmu semer full af orku og áhuga. Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnt er að hita öll hús í Vestmanna- eyjum með varma úr Golfstraumnum. Það er tæknilega framkvæmanlegt með stórri varmadælu og myndi spara mikil rafmagnskaup en á mörk- unum að vera fjárhagslega hagkvæmt vegna þess að hitaveitan í Eyjum á yf- irleitt kost á svokallaðri ótryggri orku á hagstæðu verði. Verkefnið Orkubóndinn sem Ný- sköpunarmiðstöð hratt af stað fyrir fáeinum árum með fræðslustarfi um möguleika smávirkjana um allt land hefur leitt af sér rannsóknarverkefnið Landsvarma sem snýst um að koma upp varmadælum fyrir þorp og bæi sem nú reka fjarvarmaveitur. Er þetta norrænt verkefni sem stofnanir og einkafyrirtæki standa að auk aðila í Noregi, Færeyjum og Grænlandi. Sparar mikil raforkukaup Kristján M. Ólafsson verkefnis- stjóri segir að hér á landi séu átta bæ- ir með fjarvarmaveitur. Aðstæður séu bestar í Vestmannaeyjum til að setja upp varmadælu, bæði vegna stærðar bæjarins og aðgangs að tiltölulega hlýjum sjó. Hugmyndin um sjóvarmadælu í Vestmannaeyjum hefur verið útfærð. Ætlunin er að bora eftir 6-8 gráða heitum sjó og nýta varmann úr honum til að hita upp vatnið í hitaveitunni í stað þess að hita það beint með raf- magni eða olíu þegar rafmagn fæst ekki. Með þessu er unnt að spara tvo þriðju af rafmagninu sem hitaveitan kaupir nú. Það kostar hátt í milljarð að koma upp varmadælu fyrir Vestmannaeyj- ar. Er það á mörkunum að sparnaður í rafmagnskaupum dugi til að borga niður stofnkostnaðinn. Ívar Atlason, tæknifræðingur hjá HS veitum sem reka hitaveituna í Eyjum, vonast til að hægt verði að þoka þessu verkefni áfram á komandi ári. Hann segir að verð ótryggrar orku hafi hækkað og ljóst að rafmagnsverð muni hækka á næstu árum. Það drífi verkefnið áfram að koma í veg fyrir að hitaveitu- reikningar íbúanna hækki stórkost- lega. Hins vegar vanti frekari hvata til að gera framkvæmdina enn áhuga- verðari. Kristján segir að lágt verð á raf- orku tefji fyrir uppsetningu varma- dæla. Það stuðli að raforkuorkusóun því unnt sé að draga mjög úr raforku- kaupum með því að nota varmadælur. „Það er mín skoðun að stjórnvöld geti flýtt fyrir þessari þróun með því að tryggja að fyrirtæki sem nota varma- dælur fái rafmagn áfram keypt á lágu verði. Það er besta aðferðin til að verja íbúa á „köldum svæðum“ gegn þeim raforkuverðshækkunum sem boðaðar eru. Það voru framsýnir stjórnmálamenn sem byggðu upp hitaveiturnar á sínum tíma og við þurfum framsýna stjórnmálamenn til að ljúka hitaveituvæðingunni.“ Öfugur ísskápur Golfstaumurinn sem kemur upp að suðurströndinni skapar einstök skil- yrði í Vestmannaeyjum. Hitinn í hon- um er í raun sólarorka sem safnaðist upp þegar sjórinn í straumnum var við miðbaug. Kristján segir að rann- saka þurfi aðstæður betur á hinum stöðunum sem hafa fjarvarmaveitur og í fjölmörgum öðrum „köldum þorp- um“ sem nýtt gætu tæknina. Ívar Atlason verður var við það að fólk í Eyjum eigi erfitt með að átta sig á því hvernig hægt sé að nýta sjóinn til að hita upp íbúðarhúsin. Tæknin er þekkt og nýtt við upphitun húsa um allt land. Einfaldast er að skýra hana út með því að líkja henni við öfugan ís- skáp. Varminn er nýttur en kuldanum hent, öfugt við það sem gerist í ísskáp þegar kuldinn er nýttur en varmanum hent. Golfstraumurinn hitað Vestmannae  Unnið að undir- búningi sjóvarma- dælu í Eyjum Vestmannaeyjar Hlýr sjór við Vestmannaeyjar skapar góðan grundvöll til að reisa risastóra varmadælu til að hita upp öll hús í bænum og spara mikil raforkukaup. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Skattgreiðendum verður samkvæmt heimildum Morgunblaðsins gefið færi á að haka við náttúrugjaldið á skattframtalinu, líkt og gert er t.d. með heimilistryggingu. Einnig verð- ur sett upp sérstök vefsíða og sjálf- salar þar sem hægt verður að kaupa passa. Fjármunir sem koma af gjaldinu fara í ríkissjóð og er út- hlutað þaðan til ferðaþjónustunnar gegnum fjárlög, líkt og gistinátt- askatturinn. Ekki er búið að leggja frumvarp Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðn- aðar- og viðskiptaráðherra fram á Alþingi en í Morgunblaðinu sl. laug- ardag kom fram að leggja ætti til 1.500 króna gjald fyrir náttúrupassa sem allir yfir 18 ára aldri ættu að greiða, Íslendingar jafnt sem út- lendingar. Rukka á gjaldið í þrjú ár og gjaldtaka að hefjast 1. september 2015. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er búinn að samþykkja frumvarpið, það var gert sl. föstudag, sama dag og ráðherra lagði það fram í rík- isstjórn. „Sitt sýnist hverjum“ Sigrún Magnúsdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir ekki hafa unnist tíma til að kynna frumvarp Ragnheiðar Elínar á síðasta þingflokksfundi en það verði gert á þeim næsta, á morgun, miðvikudag. Hún segir enga aðra skýringu á því að ekki tókst að af- greiða málið á síðasta fundi, mörg mál hafi verið til umfjöllunar þar sem leggja þurfti fram þingmál fyr- ir 1. desember í síðasta lagi, nema að leitað yrði afbrigða. Sigrún segist hafa lesið frum- varpið um náttúrupassa og spurð hvernig henni hafi litist á segir hún: „Ég skynja það eins og allir aðrir að eitthvað þarf að gera til að styrkja innviði ferðamannastaða. Allir eru ánægðir með að það er verið að hugsa um þessi mál og reyna að finna lausn. Sitt sýnist hverjum um gjaldtökuna sjálfa og í hvaða formi hún eigi að vera. Ég hef sagt það áður að ég skynja andann hjá okkur þannig að skiptar skoð- anir eru um hvaða leiðir eigi að fara. Það er bara eins og víða í samfélag- inu en við finnum lausn.“ Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa ekki fengið að sjá frumvarpið og aðeins heyrt af því gegnum fjöl- miðla. SAF tjá sig ekki Skapti Örn Ólafsson, fram- kvæmdastjóri SAF, segir samtökin ekki tjá sig efnislega fyrr en búið er að leggja frumvarpið fram. Hins vegar sé ljóst að grípa þurfi sem fyrst til aðgerða til að vernda nátt- úruna á fjölsóttum ferðamannastöð- um. „Við höfum lagt fram okkar hug- myndir um náttúrugjald og vonumst eftir áframhaldandi góðu samstarfi við ráðherra ferðamála um þessi mál,“ segir Skapti og vísar þar til hugmynda sem samtökin sendu frá sér í síðustu viku. Þar er áformum um náttúrupassa í raun hafnað en lagt til að sett verði á sérstakt náttúrugjald sem ferða- menn myndu greiða á hverja gisti- nótt, nokkurs konar viðbót við gisti- náttaskatt. Í yfirlýsingu stjórnar SAF er talað um „hóflegt“ gjald, eða um 1 evru, jafnvirði um 155 króna á hverja gistinótt. Morgunblaðið/Golli Ferðamenn Nái frumvarp ráðherra fram að ganga geta ferðamenn greitt gjaldið á vefsíðu eða í sjálfsölum. Hægt að greiða náttúru- passa gegnum framtalið  Einnig gegnum vefsíðu og sjálfsala  Beðið eftir Framsókn Umdeilt mál » Skiptar skoðanir hafa verið innan ferðaþjónustunnar og í samfélaginu um gjaldtöku til uppbyggingar á ferða- mannastöðum. » Á aðalfundi SAF í fyrra var vel tekið í hugmyndir um nátt- úrupassa. Í kjölfarið fóru að renna á menn tvær grímur. Á Íslandi höfðu 311 manns greinst með HIV/alnæmi í lok ársins 2013 frá upphafi greininga árið 1983. Þar af eru 218 karlar og 93 konur. Ef skoðuð er dreifing HIV eftir smitleiðum voru 38% gagnkyn- hneigðir, 37% samkynhneigðir og 20% sprautufíkla. Samantektin var tekin saman og birt á vef Land- læknisembættisins í tilefni af því að gær var alþjóðlegi HIV- dagurinn. Ellefu greindust með HIV árið 2013 en það er minna en árin þar á undan. Átján greindust HIV- jákvæðir árið 2012, 20 árið 2011 og 24 árið 2010. Flestir sem greinst höfðu voru á aldrinum 20-49 ára, eða 87% allra Ellefu greindust í fyrra  Alþjóðlegi HIV- dagurinn var í gær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.