Morgunblaðið - 02.12.2014, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.12.2014, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ættir að fara eftir eðlisávísun þinni í máli sem hátt rís á vinnustað þínum. Ekki trúa öllu sem þú sérð og heyrir. Hafðu samband við fólk sem þú átt forsögu með. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér líður vel og þú lítur tilveruna björt- um augum. Hvert viltu stefna? Kannski ertu í þann mund að átta þig á samhengi allra hluta. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Peningar vaxa ekki á trjánum – þeir vaxa í garði hugmyndaflugsins. Láttu þarfir annarra ganga fyrir þínum eigin þörf- um í dag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vonandi getur þú glaðst á þessum degi og litið framtíðina björtum augum. Þú munt gera þér grein fyrir tilfinningum sem þig hefur ekki órað fyrir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það eru ekki gallar sem þú sérð í speglinum, heldur einstakir eiginleikar sem gera þig að því sem þú ert. Nú hafa per- sónulegu málin forgang og krefjast athygli þinnar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú nýtur tímans sem þú verð með vinum eða í góðum hópi. Hún fær athygli án þess að kalla sérstaklega eftir henni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Að gera það sem maður þarf svo mað- ur geti gert það sem maður vill er algengt viðkvæði. Byrjaðu núna! 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Frelsi þitt skiptir þig gríðarlega miklu máli. Reyndu að forðast hann eftir megni og haltu ró þinni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að leiða efnishyggju jólahaldsins hjá þér og reyndu heldur að láta gleðina sem vellur í brjósti þér heldur í ljós. Eða þá að einhver býður þér í ferð á fram- andi slóðir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert bæði hugmyndarík/ur og skynsöm/samur og veist því oft ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Vellíðan þín gæti leitt þig út í gjörninga sem þú iðrast síðar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Varastu að gera nokkuð það sem getur sett blett á starfsheiður þinn. Annað- hvort munt þú leysa frá skjóðunni eða sýna skilning. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er til mikils ætlast af þér í vinnunni og þú þarft að leggja þig allan fram. Allt er á sínum stað og ekkert að van- búnaði til að njóta jólanna til fulls með ást- vinum sínum. Þversláin bjargaði Arsenal,“ sagðilýsandinn óðamála þegar Búr- úndímaðurinn knái Saido Berahino var hársbreidd frá því að jafna fyrir West Bromwich Albion í leik lið- anna í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu síðastliðinn laugardag. Víkverji kippti sér svo sem ekkert sérstaklega upp við þessi ummæli enda heyrt þau ósjaldan þegar tuðr- an smellur í slánni í kappleikjum. Hversu oft hefur þversláin ekki bjargað hinum og þessum liðum. Eða hvað? „Hvernig getur þversláin bjargað?“ spurði nefnilega sonur Víkverja, sem einnig var að fylgjast með leiknum. Skarplega athugað hjá unga manninum, þversláin er bara á sínum stað og hefur enga burði til að bjarga einu eða neinu. Eigi hún að bjarga marki þarf hún væntanlega að færa sig neðar og Víkverji þekkir engin dæmi þess að hún hafi tekið upp á þeim ósköpum. „Má þá ekki alveg eins segja að stúkan hafi bjargað, eða jafnvel áhorfendur, þegar skot fer framhjá markinu eða yfir það?“ spurði son- urinn í framhaldinu og þar með var Víkverji endanlega sannfærður. „Hér bjargaði sætaröð G Arsenal!“ eða „hér bjargaði fullorðinn maður með hatt Arsenal!“ Varla. x x x Margt kyndugt drífur á dagakylfinga í þeirri undarlegu íþrótt sem kölluð er golf. Þannig heyrði Víkverji magnaða sögu um helgina. Ágætum kylfingi hafði orðið á í messunni og misst boltann sinn út í jaðar vallarins. Gekk bölvanlega að finna hann enda þótt þeir félagi hans hefðu leitað boltans dyrum og dyngjum á svæðinu. Þar sem kapparnir voru í þann mund að verða örvæntingunni að bráð kallaði kona nokkur til þeirra, en hún var á heilsubótargöngu í grenndinni. „Eigið þið þennan golf- bolta?“ Það hélt kylfingurinn nú og kunni konunni bestu þakkir fyrir fundvísina. Hún hafði sumsé fundið boltann án þess að vera að leita að honum. Það sem sætir enn meiri furðu í þessu sambandi er sú stað- reynd að umrædd kona er eiginkona kylfingsins. víkverji@mbl.is Víkverji Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun ég alls eigi brott reka. (Jóhannesarguðspjall 6:37) Ný bók Bjarka Karlssonar, Ár-leysi árs og alda, er okkur vísnavinum kærkomin. Hún er fal- leg og fer vel í hendi, sem er auðvit- að kostur, en hitt sker úr um það að bókin er góð, að hún er skemmtileg og ekki við eina fjölina felld. Bókin er fallega myndskreytt af systur- dóttur Bjarka, Matthildi Margréti Árnadóttur, og hljóðbók og hljóm- plata fylgja með í kaupið, þar sem Hilmar Örn Hilmarsson allsherjar- goði kemur mjög við sögu. Fyrsta stakan í bókinni er ein á síðu andspænis skapara sínum. Ekki veit ég hvort hún á að vera sjálfslýsing eða ekki: Nískur er ég á mitt pund enda í fáum dráttum: fyrtinn, drýldinn, fúll í lund, forn í skapi og háttum. Bragarhættirnir eins og yrkis- efnin eru af ýmsu tagi, stundum kunnugleg: Amma skildi að skyldan bauð að skúraði hún og þvægi en afi minn fór á honum Rauð eitthvað suðrá bæi. Og vel er kveðið: Reiðskjóti hans, Rauður, held ég þjóti reisulega um grund og aldrei hnjóti. Vel sig spjarar fær til farar fram úr skarar, frækinn fararskjóti. Bókin er kaflaskipt og ber þriðji hlutinn yfirskriftina „Íslensk tunga“. Þar er ýmislegt sem ég er orðinn of gamall til að þekkja, en dýrt er kveðið: Þínum bekk við hékkum hjá, heitt að drekka fékkum þá. Grétum ekki en gekkum frá, góð og þekk við slékkum á. Yrkisefni Bjarka eru úr ýmsum áttum og persónur víðfrægar eins og Bastían bæjarfógeti. U Thant, Egill Skallagrímsson og Grettir. Hér er limra um valinkunnan sóma- mann úr Árnessýslu: Þegar Guðmundur bóndi í Grafningi gleypti í sig þrjú tonn af jafningi fékk sveitin að kynnast að seint myndi finnast í Grafningi Guðmundar jafningi. Og þessi er af svipuðum slóðum: Hann Þórður í Þingvallasveit í þjóðgarðinn sendi á beit Guðríði sína græðlinga að tína (en Guðríður þessi er geit). Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bjarki gefur skáldafákn- um Rauð lausan tauminn Í klípu „ÉG ER Í LAGI Í GEGNUM SÍMANN. ÉG Á BARA VIÐ VANDA AÐ STRÍÐA ÞEGAR ÉG ÞARF AÐ TALA VIÐ FÓLK Í EIGIN PERSÓNU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HÆGÐU Á ÞÉR... PASSAÐU KISUNA... BEYGJA TIL HÆGRI HÉR!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... best þegar við erum saman. GRETTIR, HVAÐ ER FIMM STAFA ORÐ FYRIR „FLATT BRAUÐDEIG, ÞAKIÐ TÓMATSÓSU, OSTI, KRYDDI, KJÖTI OG ALLSKYNS ÁLEGGI...“ ÞÚ HRINGIR ÞÚ PANTAR PABBI, Á ÉG AÐ TREYSTA ÖÐRU FÓLKI? EÐA ERU ALLIR BARA AÐ HUGSA UM SJÁLFA SIG... ...SAMA HVERJA ÞEIR SKAÐA Í LEIÐINNI? ÉG HELD AÐ MÓÐIR ÞÍN ÆTTI AÐ SVARA ÞESSARI SPURNINGU... Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja Goðaglösin eru rammíslensk hönnun með hin fornu goð í aðalhlutverki Hönnuður: Loftur Ólafur Leifsson, sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður Glösin koma í fallegum gjafaumbúðum og kosta kr. 2.990 stk. Frigg er höfuðgyðja og þekkir örlög manna Sif er fegurst gyðja Óðinn er æðstur guða, guð visku, sigurs og skáldskapar Þór erþrumuguð og sterkastur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.