Morgunblaðið - 02.12.2014, Side 31

Morgunblaðið - 02.12.2014, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Sjálfsagt hefur margur taliðhljómsveitina Nýdanska afeða svo gott sem fram-liðna í ljósi þess að frá henni hefur lítið komið annað und- anfarin ár en endurútgáfur og end- urvinnsla á gömlum (góðum) lög- um. Þá gleyma menn að ekki eru nema sex ár síðan breiðskífan Turninn, sem var býsna góð, kom út. Endanleg sönnun þess að Ný- dönsk er sprelllifandi er svo platan Diskó Berlín sem kom út í tveimur hlutum á árinu, fimm lög rafrænt í vor og restin á diski fyrir skemmstu, sýnir að þeir Ný- danskrafélagar eru langtífrá búnir að syngja sitt síð- asta. Þó sveitin hafi talsvert breyst frá því fyrstu lögin komu út má segja að aðal hennar hafi verið verið grípandi lög með beittum textum og upphafslag skíf- unnar er einmitt í þeim anda, skemmtilegt lag með húmorískum ævintýratexta sem reynist hárbeitt ádeila við nánari skoðun – lifum við ekki einmitt í hryllingsmynd sem er bönnuð börnum, uppvakninga heljarmartröð: „Þetta er hryggðar- mynd af ljótum köllum / sem éta fjölskyldurnar frá börnununum.“ Afbragðs lag og þau eru fleiri góð á plötunni, til að mynda „And- litsbókhaldið“ um mann í afþrey- ingarsýndarheimi sem situr fastur i fjarska nánu sýndarveruleikafjar- sambandi – fönkkryddað rokk og röddunin í lokin innblásin. Í næsta lagi er heldur en ekki skipt um gír, nú er rokkið skreytt draumkenndri raftónlist með hæfilega gamaldags hljómum, en svo snúið í meira rokk í næstu lögum þar til við erum komin í „Mánagyðju“, nýdanskasta lagið á plötunni, rokklag sem fer ekki hefðbundnar leiðir í fram- vindu. Að því sögðu er fátt hefð- bundið við plötur Nýdanskra yfir- leitt, þær hafa jafnan verið fjölbreyttar, safn sýnishorna úr rokkfræðunum þar sem menn leika sér með hugmyndir og pælingar og leyfa sér að segja hvað sem er. Í lokalaginu, sem er og titillag plötunnar, er svo myljandi diskó- stemmning, þó sveitin haldi sér fast í rokkið. Stuðið er þó ómengað og lagið hentar væntanlega vel til rafrænnar endurvinnslu, eða þá til að æsa upp fjör á tónleikum eða balli. Þeir Daníel Ágúst og Björn Jör- undur standa sig báðir afbragðsvel á skífunni, eins og jafnan reyndar því þeir eru báðir frábærir söngv- arar, og útsetningar og spila- mennska fyrsta flokks, sem kemur ekki á óvart. Afbragðs plata og á henni ekki nema einn snöggur blettur; lagið „Túristan“ – ágætt lag en heldur stefnulaust. Umslag plötunnar er gott, en bæklingurinn með henni afleitur. Nýdönsk er sprelllifandi Sprelllifandi Aðal Nýdanskrar er grípandi lög með beittum textum eins og heyra má á Diskó Berlín. Nýdanskt rokk Nýdönsk – Diskó Berlín bbbbn Hljómsveitina skipa Daníel Ágúst Har- aldsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Stefán Hjörleifsson, Jón Ólafsson og Ólafur Hólm. ÁRNI MATTHÍASSON TÓNLIST „…víðáttan raular / döpur inní mér“ (12) segir í einu ljóði þessa litla, hóf- stillta en áhugaverða ljóðakvers Ás- dísar Óladótt- ur, Innri rödd úr annars höfði. Ljóðin eru flest knöpp og vel meitluð, og fjalla flest um hugar- ástand, andleg þyngsli og dep- urð eins og fyrrnefnt ljóð, „Grjót“ þar sem ljóðmælandinn heyrir grjót skrölta inni í sér. Ljóð bókarinnar eru 35 og sjá má viðfangsefni þeirra á titlum á borð við „Skammdegi“, „Hugarangur“, Ráðvillt“, „Þunglyndisþula“ og „Næturgalinn I - V“ – í síðastnefndu er ekki ort um fuglinn heldur svart- an tíma sólarhringsins þar sem „Augu gneista / í svartholi nætur“, þar sem ljóðmælandi hleypur undan ókindafans, „undan afturgöngum / og angistar vofum“ gegnum blek- myrkur, þar sem Milli martraðar og einmana morgunverðar í vökudraumi, myndast sprungur í andlit uns það sundrast. Ljóðmælandi annarra ljóða óttast að þrumuský hrapi yfir sig og að „vonin ráfi / döpur um rökk- urstíga…“, hann finnur eitthvað læðast aftan að sér eins og „innri rödd / úr annars höfði“, og meira að segja í ljóðum sem kennd eru við sumarmánuði, júlí og ágúst, og ættu því frekar að vera uppljómuð og sól- björt, verður gráblátt húm að bleikri nætursól og landslagið fjarar út í þo- kuúða. Þetta er áleitinn ljóðheimur og þunginn í honum sannfærandi en lesendinn skynjar líka íróníu og á köflum hressilega fjarlægð við ástandið sem lýst er og drungalegar myndirnar, sem eru smekklega sam- an settar. Skáldinu fer líka vel að smíða hugvekjandi og tærar myndir, eins og hér í smáljóðinu „Hamars- fjörður“: Líkt og sannleikur glitrar á tærum haffleti sólgult fjall. Í svartholi nætur Morgunblaðið/Kristinn Skáldið „Ljóðin eru flest knöpp og vel meitluð, og fjalla um hugar- ástand, andleg þyngsli og depurð,“ segir um bók Ásdísar Óladóttur. Ljóð Innri rödd úr annars höfði bbbnn Eftir Ásdísi Ólafsdóttur. Veröld, 2014. 48 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Athugasemdir um mælskufræði og málverk er yfirskrift fyrirlesturs sem Giorgio Baruchello prófessor í heimspeki við Háskólann á Akur- eyri heldur í Ketilhúsinu á Akur- eyri í dag kl. 17. „Þar mun hann fjalla um hin ævagömlu en gleymdu tengsl milli mælskufræði og mál- verka og sýna fram á hvernig aðal- hugtök mælskufræðinnar hafa ver- ið notuð í sköpun listaverka og túlkun þeirra,“ segir í tilkynningu. Giorgio Baruchello lauk doktors- námi í heimspeki frá Háskólanum í Guelph í Kanada. Hann ritstýrir veftímaritinu Nordicum- Mediterraneum sem vistað er innan háskólans á Akureyri. Ba- ruchello flytur erindi sitt á ensku og er aðgangur ókeypis. Mælskufræði og málverk Giorgio Baruchello - með morgunkaffinu mbl.is alltaf - allstaðar Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Lau 27/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Sun 28/12 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00 Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Lau 3/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00 Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Sun 4/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Lau 10/1 kl. 13:00 Fös 26/12 kl. 13:00 Sun 11/1 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins! Bláskjár (Litla sviðið) Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00 Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 6/12 kl. 20:00 Sun 7/12 kl. 20:00 Lau 13/12 kl. 20:00 Nýjar aukasýningar komnar í sölu! Beint í æð (Stóra sviðið) Fim 4/12 kl. 20:00 20.k. Fös 12/12 kl. 20:00 Lau 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 5/12 kl. 20:00 21.k. Lau 13/12 kl. 20:00 aukas. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas. Lau 6/12 kl. 20:00 22.k. Sun 14/12 kl. 20:00 aukas. Sun 7/12 kl. 20:00 23.k. Fös 19/12 kl. 20:00 aukas. ATH janúar sýningar komnar í sölu! Jesús litli (Litla sviðið) Mið 3/12 kl. 20:00 3.k. Fim 11/12 kl. 20:00 6.k. Sun 28/12 kl. 20:00 Fim 4/12 kl. 20:00 4.k. Fös 12/12 kl. 20:00 7.k. Mán 29/12 kl. 20:00 Fös 5/12 kl. 20:00 5.k. Sun 14/12 kl. 20:00 8.k. Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun! Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið) Lau 6/12 kl. 13:00 4.k. Sun 14/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00 Lau 6/12 kl. 15:00 5.k. Sun 14/12 kl. 15:00 aukas. Sun 21/12 kl. 15:00 aukas. Sun 7/12 kl. 13:00 aukas. Lau 20/12 kl. 13:00 Lau 13/12 kl. 13:00 aukas. Lau 20/12 kl. 15:00 aukas. Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl. ★★★★ – SGV, MblHamlet – Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Ævintýrið um Augastein (Aðalsalur) Lau 6/12 kl. 17:00 Sun 7/12 kl. 17:00 Sun 14/12 kl. 14:00 MP5 (Aðalsalur) Fös 5/12 kl. 20:00 Fös 12/12 kl. 20:00 Mán 15/12 kl. 20:00 Útlenski drengurinn (Aðalsalur) Fim 4/12 kl. 20:00 Lau 6/12 kl. 20:00 Lífið (Aðalsalur) Sun 7/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 15:00 Lísa og Lísa (Aðalsalur) Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00 Aðventa (Aðalsalur) Sun 7/12 kl. 20:00 Sun 14/12 kl. 20:00 Miðasala og nánari upplýsingar á midi.is og í Gamla bíói 2 klst. fyrir sýningar s: 563 4000 Gamla bíó býður á barnaball » Sun. 14. des kl. 13.00 og 16.00 X-mas, styrktartónleikar X977 » Þri. 16. des kl. 20.00 Útgáfutónleikar AmabAdamA » Fim. 18. des kl. 22.00 Skötuveisla með Andreu Gylfa » Þorláksmessa - 23. des kl. 11.30 Nýárs gala kvöld í Gamla bíó » Fim. 1. jan 2015 kl. 18.00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.