Morgunblaðið - 02.12.2014, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 02.12.2014, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Kvikmyndin Vonarstræti eftir leik- stjórann Baldvin Z var valin besta frumraunin á kvikmyndahátíðinni Tallinn Black Nights í Eistlandi fyr- ir helgi. Kvikmyndin var í keppnis- flokki sem nefnist Tridens en í hon- um eru myndir sem eru ýmist fyrsta eða önnu kvikmynd leik- stjóra frá Eystrasalts- og Norður- löndunum. Leikstjóri og framleiðendur myndarinnar hljóta 5000 evrur í verðlaun. Annar framleiðenda myndarinnar, Júlíus Kemp, veitti verðlaununum viðtöku í Tallinn og leikið var myndband þar sem Bald- vin Z þakkaði fyrir sig. Baldvin komst ekki á verðlaunaafhend- inguna þar sem hann er önnum kaf- inn við tökur á sjónvarpsþáttaröð- inni Ófærð. Baldvin er einn leikstjóra þáttanna en hinir eru Baltasar Kormákur og Óskar Þór Axelsson, skv. tilkynningu. Morgunblaðið/Ómar Í tökum Baldvin Z komst ekki á verðlaunaafhendingu í Tallinn þar sem hann var upptekinn við tökur á sjónvarpsþáttunum Ófærð. Besta frumraunin í Tallinn Þorfinnur Guðnason er einnfærasti sagnameistariþjóðarinnar. Brennandiáhugi hans og aðdáunar- verð virðing fyrir viðfangsefnum sínum hefur skilað sér í heimildar- myndum sem löngum hafa hreyft við og skemmt áhorfendum, hvort sem söguhetjan er hagamúsin Óskar, ut- angarðsmaðurinn Lalli Johns eða náttúra „Draumalandsins“ Íslands. Í nýjustu mynd sinni, Vikingo, fylgir Þorfinnur bóndasyninum Jóni Inga Gíslasyni eftir á vit framandi ævin- týra í Dóminíska lýðveldinu. Þar hefur Jón búið um árabil, samlagast landi og þjóð og stundað ræktun á verðlaunuðum bardagahönum sem líkt og hann sjálfur hafa hlotið heið- ursnafnbótina Vikingo. Myndin er drifin áfram af mannlífslýsingum en þó má með réttu segja að hanaatið sé þungamiðja hennar enda er það helsta ástríða Jóns og þjóðarsport í hans nýju heimkynnum. Þorfinnur reynir að hafa sem minnst áhrif á breytni persóna þótt augljóslega geti nærvera mynda- vélar aldrei tryggt fullkomið hlut- leysi. Söguhetjur tala nokkrum sinn- um beint í myndavélina en að öllu jöfnu heldur Þorfinnur sig til hlés. Persónur eru ófeimnar og virðast fullkomlega eðlilegar í umhverfi sínu sem gerir frásögnina afar sterka. Framvindan er línuleg, líkt og í klassískum frásagnarkvikmyndum en sögusviðin eru tvö, Ísland og Dóminíska lýðveldið, svo myndin miðlar tveggja heima sýn þar sem þverþjóðlegir menningarheimar kallast á. Jón Ingi og Chinola, kona hans, hafa aðsetur í báðum löndum og menning beggja þjóða skiptir þau máli. Munur á efnahag landanna er sláandi, íslenskar tekjur skötuhjú- anna framfleyta þeim hér á Fróni en ágóðinn af hanaræktuninni ytra fer í að reka búið og halda uppi fólkinu sem þar vinnur. Búinu er stýrt af Rodolfo, stóískum ungum fjöl- skylduföður sem ólst upp við ræktun bardagahana. Hann sá fljótt hvaða mann íslenski aðkomumaðurinn hafði að geyma og ákvað að gera hann að konungi í hanaatsræktun- inni. Jón Ingi tekur einnig undir sinn verndarvæng unga skóburstar- ann og senuþjófinn Gabríel, sem læt- ur afar stórkarlalega en er í raun einlægur og þrautseigur pjakkur sem þráir að hefja sig upp úr fátækt og gera mömmu sína stolta. Markvisst er klippt milli sena sem gerast á framandi hanaati eða í ís- lenskum fjárréttum þar sem menn koma saman í afgirtum hringum og metast um skepnur sem þeir hafa lagt æru sína í að rækta og byggja lífsviðurværi sitt á. Í báðum tilvikum byggist ræktunin á samheldni eigin- legra stórfjölskyldna þar sem átök og uppskeruhátíðir skiptast á. Þjóð- arsport og stolt hvors lands myndar glettnar hliðstæður með tilheyrandi hjátrú, hefðum og trúarbrögðum. Nokkrar dóminískar aukapersónur hnykkja svo kankvíslega á samlík- ingunni við íslenskan veruleika. Tannlaus trúbador þenur sig líkt og monthani eða stoltur hrútur og syngur um ástarævintýri með fögr- um fljóðum eins og íslenskir bændur gera gjarnan í réttum og vúdú- nornin Amarilis kastar fram váleg- um fyrirboðum sem drífa söguna áfram, líkt og kvenskörungar gerðu áður í Íslendingasögunum. Hanaat er vissulega umdeilt og hanaslagir myndarinnar bæði átakanlegir og blóðugir. Þeir geta komið illilega við kaunin á áhorfendum en það er þó hananum eðlislægt að reyna að drepa hvern þann hana sem vogar sér inn á hans umráðasvæði. Bar- dagahanar eru aldir lengi í vellyst- ingum og miklu frjálsræði en síðan þjálfaðir líkt og afreksíþróttamenn. Slíkt er algjör andstæða við hlut- skipti hænsna sem ræktuð eru til manneldis. Líkt og kjötið af fjalla- lömbum sem fer úr sláturhúsinu og upp á disk Íslendinga fer dauði han- inn í pottrétt hinna fátæku í Dómin- íska lýðveldinu. Titillag myndarinnar er afar dill- andi og hrynjandi myndefnisins al- mennt hrífandi. Þorfinni bregst ekki bogalistin fremur en fyrri daginn, hann heldur stöðugt áfram, líkt og söguhetjurnar Jón Ingi og Gabríel, að elta drauma sína af þrautseigju víkingsins og finna sér þar með far- veg heim. Hver vegur að heiman er vegurinn heim Hanaatskóngur Jóni Ingi Gíslason stígur dans í kjölfar sigurs Vikingo-bardagahana í hanaati í heimildarmynd Þor- finns Guðnasonar, Vikingo. Þorfinni bregst ekki bogalistin frekar en fyrri daginn, segir meðal annars í gagnrýni. Sambíóunum Kringlunni, Keflavík og Akureyri Vikingo bbbbn Leikstjórn: Þorfinnur Guðnason. Fram- leiðsla, kvikmyndataka og klipping: Þor- finnur Guðnason og Jón Atli Guðjóns- son. Heimildarmynd, 80 mín. Ísland, 2014. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier er hættur að neyta áfeng- is og eiturlyfja og farinn að sækja AA-fundi. Í viðtali við danska dag- blaðið Politiken segist hann óttast að leikstjórnarferill sinn sé á enda þar sem hugmyndirnar hafi streymt til hans þegar hann hafi verið undir áhrifum vímuefna. „Ég veit ekki hvort ég get búið til fleiri myndir og það angrar mig,“ segir von Trier. Viðtalið er það fyrsta sem hann veitir eftir að hafa hneykslað fjölmiðla á kvik- myndahátíðinni í Cannes árið 2011 þegar hann sagðist skilja Adolf Hit- ler. Von Trier segir engin merkileg listaverk hafa verið sköpuð af fyrr- um drykkjumönnum eða eitur- lyfjafíklum. Hann segir að þegar hann hafi skrifað handritin að kvik- myndum sínum hafi hann drukkið heila vodkaflösku á dag og tekið inn skynörvandi efni. Von Trier óttast að ferlinum sé lokið AFP Edrú Leikstjórinn Lars Von Trier. TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is 7 12 POWERSÝNING KL. 10 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð L MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 5:30 - 7 - 10 (p) MÖRGÆSIRNAR Sýnd kl. 5 DUMB & DUMBER TO Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:20 NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 8 - 10:30 ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.