Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 2
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 VEÐUR SJÁ SÍÐU 18 Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Lokað 1. 2. og 3. ágúst 11 KWÖflugur gashitari Eldstæði Norðanátt, allt að 10 metrar á sekúndu. Á sunnanverðu landinu verður sólríkt og hitinn gæti farið upp í 16 stig þegar best lætur. Norðan til nær hitinn varla 10 stigum, það verður skýjað og fer að rigna um kvöldið. LÖGREGLUMÁL Öll lögregluum- dæmi, þar sem hátíðarhöld fara fram um verslunarmannahelgina, hyggjast svara fyrirspurnum fjöl- miðla um fjölda kynferðisbrota, að lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu og í Vestmannaeyjum undanskildum. Eins og fram hefur komið eru það nýmæli hjá lögreglunni í Vest- mannaeyjum að greina ekki frá þeim fjölda kynferðisbrota sem kemur upp á Þjóðhátíð í Eyjum, stærstu útihátíð verslunarmanna- helgarinnar. Samantekt frétta- vefsins Bleikt segir að sextán nauðganir hafi verið tilkynntar til lögreglu á þjóðhátíð frá árinu 2004. Upplýsingagjöf til fjölmiðla verður með óbreyttum hætti hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Fjölmiðlar munu ekki geta hringt með fyrirspurnir um helgina en þess í stað sendir lögreglan frá sér varðstjórapóst þrisvar á sólarhring. „Við upplýsum um þau mál sem koma upp en oftar en ekki þá eru ákveðin mál ekki látin fylgja með sökum eðlis þeirra. Kynferðisbrot eru ein þeirra,“ segir Þórir Ingv- arsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Oftar en ekki, þegar þau [kyn- ferðisbrot] koma upp, þá eru þau viðkvæm og það hefur ekki verið talið efni til að setja þau í þess- ar færslur frekar en önnur við- kvæm mál sem lögreglan er að sinna, svo sem mannslát,“ bætir Þórir við. Fréttablaðið hafði samband við lögregluna á Akureyri, þar sem Ein með öllu og Unglingalandsmót UMFÍ fara fram um helgina. Þar feng ust þau svör að lögregl- an svari oft- ast fyrirspurn- um til lögreglu. Það gildi í raun engar reglur um það. Það sama var uppi á teningnum hjá lögreglunni á Vestfjörðum þar sem Mýrarbolt- inn fer fram. Enn verður hægt að fá upplýsingar um fjölda uppkom- inna mála fyrir vestan, af hvaða tagi sem þau eru. Jón Vilhelmsson, yfirlögreglu- þjónn á Austurlandi, segir að engar breytingar verði gerðar á upplýsingagjöf til fjölmiðla. „Ég svara fyrirspurnum fjölmiðla. Við höfum ekki átt í neinum vandræð- um með þetta.“ Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir það óeðlilegt ef upplýsingar um fjölda kynferðis- brota mega ekki koma fram. „Mér finnst óheppilegt að slíkar aðgerð- ir gagnast þeim sem síst skyldi. Þeim sem fremja þessi brot og eins þeim sem vilja halda flekk- lausri ásýnd þessara samkoma.“ snaeros@frettabladid.is Tvö umdæmi segja ekki frá nauðgunum Almennt mun upplýsingagjöf lögreglu til fjölmiðla um skemmtanahald verða með liðlegasta móti um verslunarmannahelgina. Talskona Stígamóta segir það alvar- legt ef ekki má ræða kynferðisbrot. Í Reykjavík mun enginn svara fyrirspurnum. STUÐ Búist er við miklum fjölda á Akureyri þar sem bæði Unglingalandsmót UMFÍ og Ein með öllu fara fram um helgina. Þar mun lögreglan svara fyrirspurnum fjöl- miðla ef kynferðisbrot koma upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR NÁTTÚRUVERND „Viðbrögð Ólafs vekja mikil vonbrigði en til þessa hef ég átt gott samstarf við hann og ráðlagt honum og Þingvalla- nefnd heilt um málefni þjóð- garðsins. Þar byggi ég m.a. á áratugareynslu af rannsóknum í Þingvallavatni, sem enn standa yfir,“ segir Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminja- safns Íslands, en Ólafur Örn Har- aldsson þjóðgarðsvörður sagði í Fréttablaðinu í gær að Hilmar færi með rangt mál þegar hann staðhæfði að skólpvatn sytri út í umhverfið úr þróm í þjóðgarð- inum og á vatnasviði Þingvalla- vatns. „Fyrir aðeins rúmri viku fór ég á Þingvöll ásamt fræðimönn- um sem þekkja vel til náttúru svæðisins gagngert til að spá í fráveitu mál. Þar var rætt við tvo starfsmenn Ólafs Arnar um fráveitumál á Hakinu, við þjón- ustumiðstöðina á Leirum og fleiri stöðum. Þær upplýsingar sem starfsmennirnir veittu um ástand mála staðfesta mitt mál og stang- ast á við orð Ólafs Arnar,“ segir Hilmar. Hilmar segir enn fremur að viðbúið sé að á álagstímum, þegar mikill fjöldi heimsækir þjóðgarð- inn, sytri skólpvatn út í umhverf- ið, enda séu langflest kerfin á staðnum sett upp með það í huga, samkvæmt þeim gögnum sem hann hefur undir höndum um fyrir komulag við rotþrær, sytur- lagnir og tæmingu þróa. Hilmar ítrekar þá skoðun sína, sem Ólafur segir vera aulabrand- ara, að á meðan fráveitukerfi í þjóðgarðinum séu ekki afkasta- meiri en gögn bendi til sé eðlilegt að gestir hlífi þjóðgarðinum eftir bestu getu. Nánar má lesa um afstöðu Hilmars í aðsendri grein hans á visir.is. - fbj Segir viðbrögð þjóðgarðsvarðar valda vonbrigðum og skólp berist víst í vatnið: Frásögn starfsmanna ólík Ólafs DEILT UM SKÓLP Upplýsingar starfs- manna Þingvallaþjóðgarðs stangast á við orð yfirmanns þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAG „Þetta er opinber stofnun sem sinnir málefnum hreyfihaml- aðra en hún getur ekki tekið á móti þeim,“ segir Bergur Þorri Benja- mínsson, varaformaður Sjálfsbjarg- ar, Landssambands fatlaðra, um það að útibú Sýslumannsins á Suður- landi í Vík í Mýrdal sé ekki aðgengi- legt hreyfihömluðum. Útibúið er á annarri hæð í lyftulausu húsi. Bergur hefur sett sig í samband við sýslumanninn og Arion banka hf. sem er eigandi hússins, og kraf- ist þess að farið verði í framkvæmd- ir til þess að tryggja aðgengi fyrir hreyfihaml- aða. „Þetta geng- ur ekki svona og ég bíð bara eftir að þingið komi saman í haust og hefst þá handa við að gera eitthvað í málinu,“ segir Bergur. Hann segir einn einstakling í hjólastól búa í Vík í Mýrdal og það séu fleiri sem eigi erfitt með gang. „Það er bara ekki til fjármagn til að bæta úr því,“ segir Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaðurinn á Suð- urlandi, og bætir við að embættið hafi ekki fjármagn til framkvæmda, hvorki í formi hækkaðrar húsaleigu eða beinnar greiðsluþátttöku í fram- kvæmdunum. „Okkur þykir þetta afskaplega leitt. Við þjónustum þó einstaklinga sem ekki komast til okkar á annan hátt, til dæmis fara starfsmenn á heimili viðkomandi,“ segir Anna. - ngy Ekki er aðgengi fyrir hreyfihamlaða í útibúi sýslumannsins í Vík í Mýrdal og ekki er til fjármagn til framkvæmda: Fólk í hjólastól kemst ekki til sýslumannsins BERGUR ÞORRI BENJAMÍNSSON SÝSLUMAÐUR Þess er krafist að farið verði í framkvæmdir við húsnæði útibús sýslumannsins í Vík í Mýrdal. MYND/SIGURÐUR ÍSRAEL Öfgamaður stakk að minnsta kosti sex manns í gleðigöngu hins egin fólks í Jerúsalem í gær. Árásarmaðurinn, Yishai Schlissel, er nýlega sloppinn úr fangelsi en hann réðst með sama hætti á göngufólk árið 2005. Ein kona er lífshættulega slösuð og tveir karlar alvarlega slasaðir eftir árásina. Þúsundir tóku þátt í göngunni í ár en mikil öryggisgæsla var á staðnum. Þrátt fyrir árásina var ákveðið að gangan skyldi halda áfram að upphaflegum áfangastað sínum. - snæ Öfgamaður gekk berserksgang og beitti göngufólk ofbeldi: Gleðiganga í Ísrael fór úrskeiðis ÖNGÞVEITI Lífshættulega slösuð var konan flutt burt á sjúkrabörum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA ÍSRAEL Ísraelsþing samþykkti í gær lög sem heimila læknum að neyða mat ofan í fanga í hungur verkfalli. Samkvæmt lögunum mun þó þurfa leyfi dómara í hverju tilfelli. Lögin eru sett vegna fjölda pal- estínskra fanga sem fara í hungur- verkfall til að mótmæla fangelsun sinni án dóms og laga. Læknasamband Ísraels for- dæmdi löggjöfina í gær og sagði það að neyða mat ofan í einhvern jafngilda pyntingum. Þá hvatti læknasambandið lækna til að taka ekki þátt í athæfinu. Fjörutíu kusu á móti frumvarp- inu en 46 með því. - þea Samþykkja nýja löggjöf: Ísraelar neyða mat í fanga NEYTENDUR Engin salmonella greindist í erlendum alifugla- afurðum í eftirliti Matvæla- stofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitar félaga. Tíðni kampýlóbakter var þá minni en almennt gerist í ali- fuglakjöti erlendis enda afurð- irnar sem hingað koma til lands frosnar. Tekin voru 115 sýni af hráu, frosnu erlendu kjöti. Stærsti hluti erlends alifuglakjöts sem flutt er inn hingað til lands kemur frá Þýskalandi og Dan- mörku. - srs Könnuðu innflutt kjöt: Alifuglakjötið bakteríulaust 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 B -C 5 0 4 1 5 9 B -C 3 C 8 1 5 9 B -C 2 8 C 1 5 9 B -C 1 5 0 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.