Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 46
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 30 FÖSTUDAGSLAGIÐ SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Hljómsveitin Vaginaboys spilaði á sínum fyrstu tónleikum þann 26. maí síðastliðinn þegar þeir komu fram með Sin Fang, tæpu ári eftir að þeirra fyrsta lag, Elskan af því bara, kom út. Á huldu er hverjir meðlimir hljómsveitarinnar eru, á tónleik- um spila þeir með grímur, syngja í gegnum talgervil og á Facebook-síð- unni er engin grein gerð fyrir nöfn- um meðlima en þeir spila draum- kennda raftónlist. Huldumenn á bak við tjöldin „Við viljum bara láta tónlistina tala fyrir það sem við erum að gera. Síðan eru huldumenn á bak við tjöldin,“ segir söngvari sveitarinn- ar leyndardómsfullur um ástæður grímanna en á sviðinu eru þeir jafn- an tveir og þegar hann er spurður að því hvort að í hópi fyrrnefndra huldumanna leynist einhverjir þekktir tónlistarmenn er svarið stutt og laggott: „Ég ætla ekkert að tjá mig um það,“ segir hann glaður í bragði og bætir við að dularfullt sé sexý. Vaginaboys hafa gert tónlist saman í rúm tvö ár en verið vinir talsvert lengur. „Við erum æskuvin- ir. Ætli þetta hafi ekki bara byrjað í grunnskóla. Við höfum mikinn áhuga á tónlist og lifum fyrir tón- list.“ Þeirra fyrsta lag, Elskan mín af því bara, var gefið út þann 31. ágúst á síðasta ári. Það var þó ekki fyrr en fyrir nokkrum mánuðum að lagið sprakk út og öðlaðist talsverð- ar vinsældir á samfélagsmiðlum og þakkar hinn grímuklæddi og nafn- lausi söngvari nokkrum tónlistar- mönnum fyrir að hafa hjálpað til við að koma því á kortið. „Emmsjé Gauti, Sin Fang og Gísli Pálmi áttu sinn þátt í því,“ segir hann. Nóg í pokahorninu Lagið Í svefn kom út á dögunum í tengslum við Druslugönguna og eru hljómsveitarmeðlimir strax farnir að huga að útgáfu næsta lags, Ekki nóg. Við það mun einnig koma út myndband sem frumsýnt verður á Vísi og verður útgáfudagur til- kynntur síðar. „Róm var ekki byggð á hverjum degi,“ segir hann léttur í lund og segir þá félaga eiga nóg af efni í pokahorninu og stefnan sett á að gera eitt þúsund góð lög. „Svo kemur bara út geisladiskur, vínill og kassetta í framtíðinni.“ Þegar hann er spurður að því hvort einhver útgáfudagur sé áætlaður er markmiðið skýrt: „Ætli við verðum ekki bara að stefna á að þetta verði jólaplatan í ár.“ Vilja breyta merkingunni Orðið vaginaboy, sem hljómsveitin dregur nafn sitt af, er notað á nei- kvæðan hátt um stráka sem þykja ekki nógu harðir af sér eða fara að einhverju leyti gegn ríkjandi karl- mennskuhugmyndum. „Þetta er svona feminísk pæl- ing. Það er svo sorglegt að það sé verið að nota svona fallegt orð, vag- inaboy, í niðrandi tilgangi,“ segir hann og bætir við: „Við vildum nota þetta yfir okkur og ef við verðum kúl í framtíðinni verður kannski kúl að vera kallaður vaginaboy.“ Það er nóg um að vera hjá hljóm- sveitinni og mun hún meðal annars spila á Innipúkanum í kvöld klukk- an 21.00 á skemmtistaðnum Húrra. „Við erum líka að byrja með dj- sett þannig að það verður þægilegt að fá okkur í veislur, brúðkaup og jarðarfarir.“ Fá klapp á bakið Grímurnar sem hljómsveitarmeð- limirnir tveir bera á tónleikum vekja forvitni, ætíð er um sömu grímur að ræða en söngvarinn segir nýjungar væntanlegar. „Þetta eru alltaf sömu grímurnar núna, en það eru einhverjar týpur í vinnslu veit ég,“ og segir hann þá jafnframt ekki gera mikið úr því að halda dulargervinu uppi fyrir fram- an vini og fjölskyldu, enda noti þeir grímurnar aðallega þegar þeir eru að spila en ekki í daglegu lífi. „Það fá allir að vita það sem vilja vita það í kringum okkur. Og þeir sem nenna að standa í að finna út hverjir við erum fá bara klapp á bakið.“ gydaloa@frettabladid.is Spila með grímur og láta tónlistina tala Vaginaboys koma alltaf fram með grímu og hafa verið vinir frá því í grunnskóla. Þeir eiga nóg af efni í pokahorninu og ætla að gefa út breiðskífu, vínilpötu og kassettu. DULARFULLIR Hljómsveitin Vaginaboys vonast til að það dragi úr neikvæðri merkingu orðisins vaginaboy með nafni hljóm- sveitarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þetta eru alltaf sömu grímurnar núna, en það eru einhverjar týpur í vinnslu veit ég. HÁSKÓLABÍÓ 15. ÁGÚST 2015 ROKKABILLÝBANDIÐ TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á MIÐI.IS HEIÐURSTÓNLEIKAR „Það verður allavega erfitt að missa af okkur um helgina,“ segir Stein- unn Jónsdóttir, söngkona reggí- hljómsveitarinnar AmabaDama. Sveitin leikur á fimm tónleikum um verslunarmannahelgina, á Innipúk- anum í kvöld þar sem sveitin stígur á svið ásamt Jakobi Frímanni Magn- ússyni, Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum annað kvöld, í Húsdýragarðinum á sunnudag og þá kemur sveitin fram á tvennum tónleikum á Akureyri á sunnudag. Steinunn segir hljómsveitina vel undirbúna fyrir þessa miklu keyrslu. „Þetta verður skemmtilegt, við verð- um samt líklega í bjórbanni þang- að til á sunnudagsnóttina. Ætli við förum svo ekki í spa á mánudag,“ segir Steinunn og hlær. Svo að dagskránni verði ekki rask- að mun hljómsveitin sigla frá Eyjum strax að loknum tónleikum á einka- bát. Reynsluboltarnir í Nýdönsk buðu unglömbunum að sigla með sér. „Við siglum með þeim í Nýdönsk og Jóni Jónssyni upp á land eftir að við erum búin að spila, það verður bara gaman,“ segir Steinunn og bætir við; „Ekkert okkar hefur farið á Þjóðhá- tíð þannig að við vitum ekkert við hverju við eigum að búast, nema það sem fólk hefur sagt okkur.“ Reggísveitin og Jakob Frímann hafa undanfarna daga æft af kappi fyrir tónleika sína saman og vill Steinunn meina að útsetningarnar á lögunum séu einkar grípandi. „Það hefur gengið vel að æfa með Jak- obi, þetta eru lög sem fólk þekkir. Við tökum fjögur lög eftir hann sem koma úr mismunandi verkefnum hans. Við reggívæddum lögin aðeins og ég hef allavega verið með þau á heilanum á milli æfinga.“ - glp Einkabátur fenginn fyrir unglömbin Hljómsveitin AmabaDama leikur á fi mm tónleikum um helgina og siglir á einkabát með Nýdönsk og Jóni Jóns. ÚTI UM ALLT Hljómsveitin Amaba- Dama leikur á fimm tónleikum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ „Föstudagslagið mitt er Tonight Again með sjarmatröllinu Guy Sebastian. Lagið er með geggjað grúv og hann syngur það svo fárán- lega vel þannig að maður kemst alltaf í fíling.“ María Ólafsdóttir söngkona 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 B -D 3 D 4 1 5 9 B -D 2 9 8 1 5 9 B -D 1 5 C 1 5 9 B -D 0 2 0 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.