Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 42
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| SPORT | 26 Ég gerði nákvæm- lega það sem ég ætlaði að gera og geng því sáttur frá borði. Hörður Axel Vilhjálmsson landsliðsmaður visir.is Meira um leik gærkvöldsins FLÓTTINN MIKLI ÞESSIR HAFA FLÚIÐ ÚR DIGRANESINU Í SUMAR Atli Karl Bachmann Víkingur 11 leikir og 27 mörk. Daði Laxdal Gautason Grótta 25 leikir og 51 mark. Garðar Svansson FH 23 leikir og 53 mörk. Guðni Már Kristinsson Á leið í Aftureldingu 24 leikir og 62 mörk. Leó Snær Pétursson HK Malmö 26 leikir og 106 mörk. Þorgrímur Smári Ólafsson Fram 27 leikir og 120 mörk. Lárus Helgi Ólafsson Grótta Lárus er öflugur markvörður. HANDBOLTI „Við erum búnir að missa helvíti mikið. Það er ekki hægt að neita því,“ segir Bjarki Sigurðsson, þjálfari HK, en hann hefur mátt sjá á bak heilum sjö lykilmönnum í sumar. Það er heilt lið í handbolta. HK féll úr Olís-deildinni síð- asta vetur og bestu menn liðsins hafa ákveðið að reyna fyrir sér með öðrum liðum í efstu deild og einn fór til Svíþjóðar. Þó svo þetta sé mikið högg þá er Bjarki ekki af baki dottinn. „Ég verð áfram með liðið og Jón Gunnlaugur Viggósson mun aðstoða mig ásamt því sem hann sér um 2. og 3. flokk. Þetta verð- ur bara uppbygging hjá okkur og kannski bætum við við okkur eldri leikmönnum til að fá smá reynslu.“ Bjarki segir að það séu ekki til neinir peningar fyrir útlend- ingum og liðið verði byggt upp á þeim strákum sem eru eftir hjá félaginu. „Annar flokkurinn okkar er mjög efnilegur. Það verður álag á þeim strákum næsta vetur. Við ætlum að vinna með þessa drengi og sjá til þess að þeir beri uppi merki félagsins um ókomin ár. Þetta eru hungraðir strákar sem vilja æfa eins og skepnur.“ Bjarki segir að umhverfið í handboltaheiminum í dag geri liðum afar erfitt fyrir að byggja upp lið. „Ég er auðvitað svolítið fúll yfir því að flóttinn sé svona svaðalegur hjá okkur. Ég geri mér að sama skapi grein fyrir því að menn vilja spila í efstu deild. Þessir samningar í dag eru líka bara eitt plús eitt ár. Það eru í raun bara eins árs samningar. Leikmenn geta því alltaf hlaupið í burtu hvert sumar. Ég er búinn að vera í þessu lengi og veit að það tekur að minnsta kosti eitt ár að búa til lið. Í gamla daga voru þetta 2 plús einn samningar og þá var þetta auðveldara.“ - hbg HK búið að missa heilt byrjunarlið í sumar Bjarki Sigurðsson ætlar ekki að gefast upp sem þjálfari HK þó svo hann sé búinn að missa marga lykilmenn. GEFST EKKI UPP Bjarki ætlar að byggja upp nýtt HK-lið með ungum HK-strákum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ FÓTBOLTI KR vann öruggan 4-1 sigur á ÍBV í undanúrslitum Borgunar- bikars karla í gær en þetta er fjórða árið í röð sem KR-ingar slá Eyjamenn út úr bikarkeppninni. Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði tvívegis fyrir KR og Óskar Örn Hauksson og Þorsteinn Már Ragnarsson sitt markið hvor. Bjarni Gunnarsson gerði mark ÍBV. KR-ingar mæta Valsmönnum í úr- slitaleiknum 15. ágúst. - iþs KR og Valur mætast í bikarúrslitum í fyrsta sinn síðan 1990 FÓTBOLTI Afturelding rær lífróð- ur í Pepsi-deild kvenna en liðið er aðeins með eitt stig á botni deild- arinnar þegar tólf umferðum er lokið. Til að hjálpa sér í botnbarátt- unni sem fram undan er hafa Mosfellingar samið við þrjá portúgalska leikmenn í félaga- skiptaglugganum; Isabel Osório, Danielu Filipu Alves og Söru Granja. Osório er þrítugur varnarmað- ur, Alves 23 ára gamall framherji og Granja 26 ára gamall miðju- maður. Þær hafa allar leikið með yngri landsliðum Portúgals. Þá hefur Afturelding einnig fengið Sigríði Þóru Birgisdóttur að láni frá Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar. Afturelding skipti einnig um þjálfara fyrr í mánuðinum, þegar Theodóri Sveinjónssyni var sagt upp. Við starfi hans tók Júl- íus Ármann Júlíusson sem var aðstoðarþjálfari Theodórs. Stjarnan hefur einnig verið aðsópsmikil í leikmannaglugg- anum en liðið hefur fengið fjóra erlenda leikmenn til sín; Rac- hel Pitman, Jaclyn Nicole Softli, Francielle Manolo Alberto og Pol- iana Barb osa Medeiros. Þær tvær síðastnefndu hafa leikið með brasilíska landsliðinu og Poliana var í leikmannahópi Brasilíu á HM í Kanada fyrr í sumar. Franc ielle hefur farið vel af stað með Stjörnunni og skor- að fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Garðabæjar- liðinu. - iþs Portúgölsk innrás í Mos- fellsbæinn ERFITT Afturelding er í vondri stöðu í Pepsi-deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ HANDBOLTI Björgvin Hólmgeirsson, besti og markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar á síðasta tímabili, er væntanlega á leið til Dúbaí þar sem hann mun leika með handbolta- liði Al Wasl SC. „Það er líklegt að þetta gangi eftir en það er ekki búið að staðfesta neitt,“ sagði Björgvin í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann vonast til að skrifa undir tíu mánaða samning við Al Wasl um helgina. „Ef þetta gengur upp þá verður þetta ævintýra- mennska en ekki atvinnumennska hjá okkur fjölskyldunni,“ sagði Björgvin sem var um tíma í viðræðum við sænska liðið Skövde en gaf það frá sér í fyrradag. „Maður nennir ekki að standa í einhverju harki. Frekar vill maður taka ævintýramennskuna á þetta og lifa lífinu. Í versta falli verður þetta langt sumarfrí,“ sagði Björgvin. - iþs Björgvin á leið til Dúbaí GULLSKALLI Hólmbert Aron Friðjónsson skorar hér annað mark KR gegn ÍBV með skalla eftir fyrirgjöf Óskars Arnar Haukssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPORT KÖRFUBOLTI „Nú er fjörið að byrja. Það var kominn fiðringur í mann en nú er bara mikil spenna,“ segir Hörður Axel Vilhjálmsson, lands- liðsmaður í körfubolta, í samtali við Fréttablaðið, en strákarnir okkar hófu æfingar fyrir Evrópu- mótið í Berlín í síðustu viku. Hörður hefur verið lykilmaður í landsliðinu í nokkur ár og má fast- lega búast við honum í lokahópnum á Evrópumótinu í Berlín. Hópur- inn var skorinn niður í vikunni og æfa þeir Emil Barja, Darri Hilm- arsson og Ólafur Ólafsson ekki oftar með liðinu fram að móti. Verðum að njóta Ísland er í dauðariðlinum á sínu fyrsta stórmóti, en í Berlín mætir liðið heimamönnum frá Þýska- landi og Serbíu, Tyrklandi, Spáni og Ítalíu. Sigurlíkur Íslands eru litlar sem engar. „Ég held að þetta verði bara ævintýri. Við verðum mikið saman og þetta er líka svo skemmtilegur hópur. Það ná allir svo vel saman og því verður bara gaman að taka þátt í þessum,“ segir Hörður Axel. „Að njóta er lykilorðið í þessu. Við erum ekki að fara að vinna Spán með 20 stiga mun eða eitt- hvað þannig. Við þurfum bara að njóta þess að fá að vera með og sjá svo hvað gerist.“ Ánægður með veturinn Eftir fall með Valladolid á Spáni í fyrra sneri Hörður Axel aftur til MBC í Þýskalandi og spilaði með liðinu í efstu deild. Hann kveðst ánægður með þá ákvörðun og spilamennsku sína í vetur. „Ég var mjög sáttur eftir erfitt tímabil á Spáni þar á undan. Það var gott að koma til baka og reyna að endurræsa ferilinn. Ég gerði nákvæmlega það sem ég ætlaði að gera og geng því sáttur frá borði þaðan,“ segir Hörður Axel sem er nú samningslaus og leitar liðs. „Ég er með umboðsmann í þessu sem sér um mín mál. Ég reyni að hugsa ekkert um þetta en maður er samt alltaf að hugsa um þetta. Maður veit ekki hvar maður er að fara að spila eftir EM og lifa næsta árið. Þessi körfuboltaheimur er skrítinn.“ Eins og fleiri samningslausir í landsliðinu vill Hörður frekar semja fyrir EM til að taka ekki neina áhættu. „Það er rosalega hættulegt að semja eftir EM því þá verða flest lið búin að semja við alla sína menn. Ég vil semja fyrir Evrópu- mótið þannig að ég geti bara notið þess að spila,“ segir Hörður, en að bíða með að semja gæti líka haft áhrif á frammistöðu hans í Berlín. „Ef ég er líka eitthvað að bíða með þetta verður miklu meiri pressa á mér að standa mig. Maður vill bara njóta þess að spila þarna og sjá hvar maður stendur gegn þessum bestu í heimi.“ Æfir mikið Hörður Axel er þekktur fyrir að æfa mikið og leggja ótrúlega mikið á sig. Á því er engin breyt- ing þetta sumarið og hefur hann fengið hjálp frá margfalda Íslands- meistaranum Gunnari Einarssyni, fyrrverandi leikmanni Keflavíkur, sem er gríðarlega fær einkaþjálf- ari. „Ég tók góða pásu eftir tíma- bilið en er búinn að vera í fjórar vikur með Gunna Einars og Hauk- ur Helgi hefur komið með mér,“ segir Hörður Axel, en þeir æfðu í Keflavík. „Það er samt skemmtilegra að vera kominn aftur í landsliðshóp- inn að æfa. Nú getum við spilað aðeins í staðinn fyrir að maður sé bara einn að „drilla“ eitthvað.“ Trúin skiptir sköpum Sem fyrr segir er riðillinn sem Ísland er í nánast lygilegur. Þarna eru saman komnar fimm af svona tíu bestu þjóðum Evrópu í einum og sama riðlinum. Vanmatið verð- ur mikið, segir Hörður Axel, og því er um að gera að nýta það. „Það er ótrúlegt að öll þessi lið geti dregist saman. Ef við horf- um á þetta raunsætt líta hin liðin á leikinn gegn okkur sem hvíldar- dag. Við verðum að notfæra okkur það og mæta tvíefldir til leiks í hverjum einasta leik og trúa að við getum gert eitthvað á móti þessum liðum,“ segir Hörður sem klæjar í puttana að fá að spreyta sig á móti mörgum af bestu leikmönnum álf- unnar og heimsins. „Auðvitað er maður spenntur að spila á móti þessum gaurum sem maður hefur fylgst með alla ævi. Ég hef samt spilað við marga í þessu spænska liði og þýska þann- ig að ég þekki nokkra þarna,“ segir Hörður Axel Vilhjálmsson. tomas@365.is Líta á okkur sem hvíldardag Hörður Axel Vilhjálmsson, landsliðsmaður í körfubolta, hlakkar til að sjá hvar hann stendur gegn þeim bestu í heiminum. Mótherjar Íslands á EM munu vanmeta strákana okkar og því er um að gera nýta sér það. HAXEL Hörður Axel Vilhjálmsson, oft kallaður „Haxel“, er spenntur fyrir fyrsta stórmóti sem Ísland fer á. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 B -E C 8 4 1 5 9 B -E B 4 8 1 5 9 B -E A 0 C 1 5 9 B -E 8 D 0 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.