Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 38
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 22
21. janúar–19. febrúar22. nóvember–21. desember
21. maí–20. júní 21. júní–22. júlí
Krabbinn
Kominn tími á u-beygju
Elsku magnaði Hrútur. Gefðu meira en þú þiggur og
elskaðu meira en þú þarft. Núna er með þér kraftur
sem mun fylgja þér út sumarið. Þú ert að byggja
upp magnaða framtíð! Grunnurinn er kominn en
þú sérð ekki alveg hvert næsta skref er og einmitt
þess vegna ertu að lesa þetta! Ef þú sest niður og
skoðar síðustu 12 mánuði þá sérðu að það hefur
ansi margt gerst. Nú er góður tími til að grípa um
stýrið í lífi þínu, setjast í framsætið og taka stóra
u-beygju. Það eru margir sem skulda þér greiða
þó svo að þú gefir allt skilyrðislaust. Þú finnur að
ákvarðanir þínar gefa þér kraft og það er áhrifa-
mikið fólk sem mun hjálpa þér næstu skrefin. Og
fyrir þá sem vantar ástina í líf sitt eru skilaboðin:
Þú finnur ekki ástina því hún mun finna þig.
Halló heimur, ég er kominn!
19. febrúar–20. mars22. desember–20. janúar
20. mars–20. apríl 20. apríl–21. maí
23. júlí–23. ágúst 23. ágúst–23. september 23. september–22. október 23. október–21. nóvember
Ný tækifæri fram undan
Elsku spennandi Naut. Það að gefast upp er ekki
til í þér. Þú hefur svo frábæra hæfileika til að laga
þig að aðstæðum en ég er ekki viss um að þú áttir
þig alveg á því. Þegar á reynir ertu kameljón, þér
gengur best þegar mikið er að gera og besta út-
koman hjá þér er þegar stressið er mest. Þú verður
að passa þig að festast ekki í viðjum vanans því það
er drepleiðinlegt. Sú hugsun að allt þurfi að vera
öruggt í kringum þig getur lamað framkvæmda-
orkuna þína. Þú ert svo dásamlega ástríðufullt
og getur vafið heiminum um fingur þér svo ekki
sætta þig við það næstbesta. Þú átt eftir að grípa
ný tækifæri og læra hvernig líf þitt getur orðið svo
miklu betra. En þú þarft að næra þig andlega og
gera þig reiðubúið í að henda þér í djúpu laugina.
Veröldin er sköpuð til að hafa gaman af!
Ekki hugsa of mikið
Elsku litríki Tvíburi. Um leið og þú trúir að þú getir
það sem þig langar til þá ertu kominn hálfa leið.
Skoðaðu vel öll samskipti þín við fólk og vertu
auðmjúkur þó svo að það geti verið erfitt á köflum.
Því auðmýktin gerir allt betra. Þú skalt fylgja til-
finningu þinni sem gerir þig spenntan, því það er
verið að sýna þér lífið í öðru ljósi. Þú munt skynja
í hvaða átt þú átt að fara svo drífðu þig bara. Ekki
stúdera lífið of mikið því þú þarft ekki að vita
allt! Þú þarft alls ekki að vanda þig svona mikið.
Elskaðu bara það sem þú ert að fara að gera og þá
halda þér engin bönd. Það eina sem er að stoppa
þig í að ná árangrinum sem þú átt skilið er að þú
ert búinn að hugsa í hringi. Mundu að um leið og
þú breytir hugsunum þínum þá breytist veröldin.
Lífið er að banka!
Burt með gömul leiðindi
Elsku Krabbi. Ég er svo spennt fyrir þína hönd!
Þú ert svo mikið að læra að láta ekki annað
fólk stjórna tilfinningum þínum að þú ert að fá
mastersgráðu í því! Þú hefur stundum tapað þér
í því að reyna að hafa alla góða en núna er sjálfs-
traustið að eflast og þér halda engin bönd. Þú átt
eftir að ná lengra en þú þorðir að vona. Því þú,
elsku Krabbi, hefur alltaf haldið áfram þó svo að
þú hafir misst allan mátt og fundist þú ekki geta
meira. Heilsa þín og orka eru svo tengd tilfinn-
ingum þínum og þess vegna er gott að gleyma
gömlum leiðindum til þess að þau eyðileggi ekki
daginn þinn. Næstu tveir mánuðir færa þér góðar
fréttir, styrkja undirstöður þínar og fjölskyldan þín
verður mjög stolt af þér.
Í upphafi skyldi ekki endirinn skoða!
Gerðu breytingar
Elsku Ljónið mitt. Þú hefur svo mikil áhrif á aðra,
hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Þú ert
sterk týpa og stundum stjórnar þú aðstæðum
þínum um of. Þú verður að vita að þegar verstu
hlutirnir eru að gerast í lífi þínu þá er það til þess
að færa þér hamingjuna. Gerðu bara þitt besta og
alheimurinn mun sjá um rest. Það eru búnar að
vera miklar sviptingar í tilfinningum þínum og þú
þarft að nýta þér þær til þess að gera breytingar.
Það er svo mikilvægt fyrir þig, hjartað mitt, að líta
vel út, svo leggðu aðeins meira á þig því að vel
útlítandi Ljón toppar allt. Það eru margir gamlir
vinir í kringum þig eða þeir eru að koma til þín.
Þú munt gleðjast yfir smáhlutunum. Það er það
sem skiptir öllu máli, vinir og litlu hlutirnir í lífinu.
Ég þarf ekki að sjá allan stigann til að taka
fyrsta skrefið!
Elskaðu af einlægni
Elsku hvetjandi Meyja. Þú ert að fara inn í sérstakt
tímabil á næstu þremur mánuðum þar sem þú
þarft að eyða miklum tíma í að hvetja sjálfa þig
áfram. Það er svo mikilvægt að þér finnist ekki
hlutirnir vera á móti þér því þá kallarðu bara til
þín enn verri tímabil. Það gengur allt betur núna
en þú þorðir að vona og þetta muntu sjá þegar
líður á ágúst. Miðað við kortin þín þá sé ég að þú
verður nokk ánægð með uppskeru þína. Þetta er
líka tímabil hreinsunar þar sem þú munt finna
þér leiðir til að fá betri orku og skýrari hugsun.
Besta leiðin til að fá það sem þú átt skilið er
að elska af einlægni og dæma engan. Þú tekur
frekar hvatvísa ákvörðun í tengslum við starf eða
samning einhvers konar.
Slappaðu af!
Trúðu á töfra!
Elsku andlega þenkjandi Vog. Mörgum finnst þú
vera mikil fyrirmynd og það er dáðst að þér úr
fjarlægð. Það er eins og að þú skynjir það bara
alls ekki. Þú hefur alltof miklar áhyggjur af því að
fólk frétti eða heyri eitthvað í kringum þig. Láttu
allt svoleiðis þig engu varða og mundu að þú ert
einn af máttarstólpum þjóðfélagsins og það er
alltaf til fólk sem sýnir öfund og illgirni. Besta
leiðin til að slá það fólk út af laginu er að gera
þær manneskjur að vinum þínum. Það er oft sem
maður bíður eftir því að einhverjir töfrar leysi
vandamálin manns og ef vandamálin þín eru ekki
að leysast þá er það af því að þú trúir ekki á töfra!
Framkvæmdu strax það sem þér dettur í hug. Ef
þú ert hræddur þá nær alheimsorkan ekki til þín.
Þori ég, vil ég, get ég? Já ég þori, get og vil!
Sterkur og sjálfstæður
Elsku Sporðdrekinn minn. Þú átt það til að vera
svolítið öfgafullur, hvort sem það er í mataræðinu
eða tilfinningasukki. Það getur dregið úr þér
kjarkinn til þess að sjá að þú hefur það sem þarf.
Hættu að fara í öfuga átt við það sem þig langar.
Ég sé það í þér að þú hrindir þér niður þegar best
gengur og reynir sjálfur að stöðva þig þegar þú
ert að komast í mark. Hættu að endurskoða þig
og farðu algjörlega eftir því að líta hvorki til hægri
né vinstri. Það er svo mikilvægt að þú sért sjálf-
stæður og núna er orkan að gefa þér möguleika á
að koma peningamálunum í jafnvægi. Það er gott
að spandera smá til að hressa sálina, svo notaðu
peningana sem þú ert að fara að afla í orku og til
að stýra því að kvíðinn nái ekki tökum á þér.
Hugsa minna, gera meira!
Spenna í hjarta
Elsku besti Bogmaður. Þetta er mánuðurinn þar
sem þú þarft að skína af rosalegu sjálfstrausti.
Fólk er að fylgjast með þér, hvernig þér gengur og
svona, og þú skalt svo sannarlega passa þig á því
að vera ekki að kvarta yfir einu eða neinu heldur
halda bara áfram. Það er eitthvað sem veldur þér
áhyggjum núna en ekki hugsa of mikið um það
heldur skoðaðu það sem gengur vel. Áætlanir
þínar eiga eftir að breytast og það verður þér fyrir
bestu! Það er spenna í hjartanu þínu og þeir sem
eru á lausu eru alveg tilbúnir i ástarævintýri. En
farðu varlega því að þú getur fengið þráhyggju
fyrir þeim sem passa þér ekki fullkomlega. Og
mundu að einhver sem þykist vera merkilegri en
einhver annar passar þér alls, alls ekki!
Ég er eins hamingjusamur og ég vil vera!
Efl du þig og taktu áhættu
Elsku sérstaka Steingeitin mín. Óöryggi getur
nagað þig inn beini og þá sést langar leiðir að
þér líður ekki vel. Það sem þú þarft að gera núna
er að efla líkama og huga. Þú þolir nefnilega
ekki þegar þú bregst sjálfri þér og framkvæmir
ekki það sem þú varst búin að skipuleggja. Það
er mjög mikilvægt fyrir þig að leita ráða hjá ein-
hverjum sem getur hjálpað til og ráðlagt þér um
næstu skref. Það eru margir fylgjendur í kringum
þig og einhver sem liggur hreinlega á þér og
dregur þig niður svo þú þarft að fara að sortera
fólk. Þeir sem eru á lausu í Steingeitinni verða að
þora að taka áhættu og standa með sér, því það
er allt sem þarf. Peningamálin verða betri en þú
bjóst við og þú átt eftir að geta leyft þér meira.
Ég hef hugrekki og með því sigra ég!
Þú nálgast takmarkið
Elsku Vatnsberinn minn. Að vera hamingjusamur
er hugarástand og þú þarft að framkvæma það
sem gerir þig hamingjusaman til þess að láta þér
líða betur! Hættu að lesa núna– hvað er það fyrsta
sem þér dettur í hug til þess að auka hamingjuna?
Skrifaðu það niður því fyrsta hugsunin er skilaboð
frá alheiminum til þín. Það fer allt á fulla fart hjá
þér í haust og þá raðast upp röð skemmtilegra
atvika sem eiga eftir að koma þér að takmarkinu
þínu. Mundu að stundum þarf að brjóta reglur eða
allavega beygja þær. Hafðu engar áhyggjur þótt þú
eyðir eitthvað um efni fram því þú munt enda á að
fá allt margfalt til baka. Sjórinn hefur mikil áhrif á
þig þannig að ef þú ert með kökk í hjartanu, farðu
þá og hentu erfiðleikunum á haf út.
Hamingjan felst í því að hlakka til!
Daðraðu við lífi ð
Dásamlegi Fiskur. Það sem einkennir þig mest þessa
dagana er að þú ferð bara þínar eigin leiðir. Það
kemur þó fyrir að þér finnist þú vera svo hjálparlaus
að þú gætir alveg misst máttinn. Þetta tímabil varir
bara í stutta stund því það er svo skemmtilegt hjá
þér fram undan. Það er svo magnað hvað þú verður
orðheppinn og þú munt meira að segja koma
sjálfum þér á óvart með það! Mátturinn býr nefni-
lega í orðunum þínum og fólk á eftir að sannfærast
um að það sem þú vilt sé það rétta. Þú ert búinn að
vera svo duglegur, hjartað mitt, en þú átt það til að
ofkeyra þig og þess vegna vilja allir hafa þig í vinnu.
Það er bara svoleiðis. Þú logar líka af sexappíl svo
margir eru að gefa þér auga. Nýttu þér þessa orku
og daðraðu við lífið, með blikandi brosi!
Ég horfi til himins og ber höfuðið hátt!
Lengri útgáfu af stjörnuspá visir.is/SiggaKlingSpáin gildir fyrir ágúst
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
Hvað er SONOS?
Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna
tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá
hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. Spilaðu það sem þú vilt hvar sem er á
heimilinu í gegnum Sonos kerfið sem er mjög einfallt í uppsetningu.
FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI Í ÖLLUM
HERBERGJUM
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
B
-C
5
0
4
1
5
9
B
-C
3
C
8
1
5
9
B
-C
2
8
C
1
5
9
B
-C
1
5
0
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K