Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 31. júlí 2015 | SKOÐUN | 13 Í DAG Sif Sigmarsdóttir rithöfundur ISUZU D-MAX ER EINN HAGKVÆMASTI OG STERKASTI PALLBÍLL SEM UM GETUR 35OO kg EYÐSLA AÐEINS 7,4 l/1OO km* • • • • • • • • • • • • • E N N E M M / S ÍA / N M 7 0 2 0 2 – * M ið as t vi ð b ei n sk ip ta n b íl í b lö n d u ð u m a ks tr i. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 NÝTT MEIRI DRÁTTARGETA Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. Það besta í veröldinni er ókeypis, það næstbesta er fok- dýrt. Svo sagði Coco Chanel. Sumir segja að peningar kaupi manni ekki hamingju. En þeir gera það upp að vissu marki. Rannsóknir sýna það. Forrest Gump sagði að lífið væri eins og konfektkassi. Ég er þeirrar skoðunar að sé lífinu líkt við matvæli sé snertiflötinn að finna á síðari stigum málsins. Lífið er eins og stíflað klósett. Ástæðu þess að glasið hjá mér er hálftómt – eða klósettskálin að flæða yfir – kann að vera að finna í þeirri staðreynd að ég kann ekki á peninga. Ég fatt- aði það ekki fyrr en um síðustu helgi. Ég hélt að ég kynni á þá. Ég hélt að með peningum keypti maður hluti. Ég hélt að með pen- ingum uppfyllti maður tilgang lífsins: að sanka að sér dóti til að geyma inni í skáp. Þegar skáp- arnir væru orðnir fullir geisp- aði maður golunni. Var það ekki þess vegna sem allir vildu mikið skápapláss? En nei. Peningar eru svo miklu meira. Sá sem varð til þess að ég sá villu míns vegar var fjölmiðlamógúllinn Björn Ingi Hrafnsson. Hann keypti sér útgáfufélag um síðastliðna helgi. Umrætt útgáfufélag hafði verið dálítið óstýrilátt. Það böggaði ríkisstjórnina reglu- lega. Agnúaðist annað slagið út í Framsóknarflokkinn. En Björn Ingi vissi sem var, máttur pen- inga felst ekki aðeins í því að gera fólki kleift að eignast hluti. Með peningum er líka hægt að láta hluti hverfa. Með pening- um má losa sig við hluti sem fara í taugarnar á manni. Björn Ingi straujaði kortið og BAMM: Framsóknarmenn um land allt fundu hamingjuna á ný. Verslunarmannahelgin geng- ur nú í garð. Leikurinn „Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér í gær?“ verður vafalaust leikinn í hinum fjölmörgu umferðarstíflum sem þjaka munu ferðalanga. En hvernig væri að flikka upp á þennan útjaskaða leik? Spila hann í anda Björns Inga og veifa seðlunum af uppátækjasemi. Leikurinn gæti fengið heitið: „Hvað ætlarðu að láta hverfa með peningunum sem Fram- sóknarflokkurinn gaf þér í gær?“ Þetta er innkaupalistinn minn: Runkeeper: Hvað kemur það mér við að þú hafir ekkert betra við tíma þinn að gera en að hlaupa maraþon? Hvað með friðhelgi sófakart- öflunnar? Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Veit fólk ekki hvernig fór fyrir Pheidippidesi? Ekki ætlast til að ég standi upp af sófanum mínum og mæti í jarðarförina þína þegar þú færð hjartaáfall og deyrð löngu áður en skáparnir þínir eru orðnir fullir af drasli. Hippsteraskeggið: Íslensk hjarðhegðun hefur ekki verið jafnloðin síðan lopapeysan gekk í endurnýjun lífdaga. Og talandi um hjarðhegðun: Vinsældavagninn. Það eru allir komnir um borð. Jesús er orðinn drusla, Bubbi er orðinn Pírati … Hvað verður það næst? Brynjar Níelsson gerist femínisti. Sjálfshjálparbækur um núvitund: Ég myndi kaupa þær, brenna þær og dansa kringum bálköst- inn án þess að njóta andartaks- ins. Krafan um núvitund er orðin svo hávær og andartakið sem ætlast er til að við njót- um svo óendanlega lítið að allt stefnir í að það falli senn saman undan eigin massa svo úr verður risastórt svarthol í miðju há- glansa-eldhúsinu í Garðabænum sem sogar í sig allar iittala-skál- arnar og Royal Copenhagen- stellið uns ekkert er eftir annað en fortíð og framtíð. Það eina sem er verra … … en sjálfshjálparbækur eru sjálfshjálparráð á Facebook. Einn Facebook-vina minna deildi með mér eftirfarandi ráði í vik- unni: „Ef eitthvað er ekki eins og það á að vera, lagaðu það. En æfðu þig í að hafa ekki áhyggjur, áhyggjur laga ekki neitt.“ Þetta væri kannski ágætis ábending um hvernig skal höndla lífs- hamingju ef hún kæmi ekki frá Ernest Hemingway, drykkfelld- um og skapþungum rithöfundi sem var fjórum konum lélegur eiginmaður og skaut sig að end- ingu í hausinn. Auglýsingastofur: „Hún áorkaði því sem allar góðar auglýsingar áorka; að framkalla í brjóstinu kvíða sem aðeins verður lægður með kaup- um.“ Þannig fangaði rithöfund- urinn David Foster Wallace heit- inn kjarna auglýsingabransans. Ef það væru ekki til auglýs- ingastofur væru ekki til aug- lýsingar. Ef það væru ekki til auglýsingar þyrftum við ekki sjálfshjálparbækur. Eða næst- um því. Og síðast en ekki síst: Hvað myndi ég láta hverfa með peningunum sem Framsóknar- flokkurinn gaf mér í gær? Björn Inga Hrafnsson. Því ef Björn Ingi Hrafnsson heldur áfram að kaupa og gelda alla fjölmiðla sem voga sér að reka við í átt að Framsóknarflokknum verður ekkert bitastætt lesefni eftir til að slóra yfir í vinnunni. Frúin í Hamborg og hamingja framsóknarmanna Leikurinn „Hvað gerðirðu við pening- inn sem frúin í Hamborg gaf þér í gær?“ verður vafalaust leikinn í hinum fjölmörgu umferðarstíflum sem þjaka munu ferða- langa. En hvernig væri að flikka upp á þennan útjaskaða leik? Spila hann í anda Björns Inga og veifa seðlunum af uppátækja- semi. Leikurinn gæti fengið heitið: „Hvað ætlarðu að láta hverfa með pening- unum sem Framsóknar- flokkurinn gaf þér í gær?“ 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 B -C 9 F 4 1 5 9 B -C 8 B 8 1 5 9 B -C 7 7 C 1 5 9 B -C 6 4 0 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.