Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 40
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 24 Stundum er ég að gera teppi sem er margir fermetrar. Ég þarf yfir- leitt í kringum fjögur kíló af ull í hvern fer- metra. Teppin eru mjög þykk og slitsterk og munu endast margar kynslóðir. Tónlistarmaðurinn Birgir Örn Steinarsson, líklega best þekktur sem Biggi í Maus, sendir frá sér nýja plötu í komandi viku, sem ber nafnið 10 short stories. Um er að ræða fyrstu plötuna sem hann gefur út undir listamannsnafn- inu Bigital en það er svokallað „tónlistar pródúsersverkefni“ Birg- is Arnar. „Þetta er ekki sólóverk- efni því að ég er ekkert endilega í forgrunni þó ég sé við stýriborðið. Ég var í átta ár að vinna að henni og var ekkert endilega að gera plötu, ég var bara að semja og taka upp,“ segir Birgir um verkefnið. Hann er nú að gefa út tónlist í fyrsta sinn í átta ár og var far- inn að missa trúna. „Ég var alveg búinn að missa trúna á mér sem tónlistarmaður, maður var allt- af að dæma þetta svo harkalega í hausnum á sér. Ég fór svo að hugsa að ég gæti ekki gert listaverkunum mínum þetta og tók upp lagerinn af lögunum aftur og valdi þrettán lög og sendi til útgáfunnar,“ útskýrir Birgir. Umrædd útgáfa er útgáfu- fyrirtækið Believe Digital, sem dreifir meðal annars tónlist lista- manna á borð við Ásgeir Trausta og Björk stafrænt. „Ég gef þetta út sjálfur og geri í raun allt sjálf- ur. Ég fæ aukahljóðfæraleikara og söngvara með mér. Annars hef ég ekki gert neinn samning, sem er mikill léttir fyrir mig, því þá er enginn milliliður og ég get komið henni að hvar sem er. Believe Dig- ital aðstoðar mig bara við að koma tónlistinni inn á helstu tónlistar- veiturnar.“ Platan er tekin upp í London, Reykjavík og Kaupmanna- höfn. Tvö smáskífulög hafa komið út af plötunni, lagið Abstrakt! sem flutt er af Heimi Björnssyni rapp- ara úr Skyttunum og Bandalag dauðra dúfna sem er sungið af Kolbrúnu Magneu Kristjánsdótt- ur. Annað lagið er hipphopp-lag blandað indie-rokki og í hinu er argentínskum tangó blandað við indie-rokk. 10 short stories kemur út á vínyl í haust en Birgir hefur misst alla trú á geisladisknum og ætlar ekki að gefa út á slíku formi. „Geisla- diskurinn er kannski ekki dáinn á Íslandi en eins og þetta virkar í Evrópu og Bandaríkjunum þá er fólk hætt að kaupa geisladiska. Fólk kaupir frekar vínyl með download-kóða. Vínyllinn er orðinn sterkur aftur. Ég hugsa að geisla- diskurinn verið dauður eftir tvö ár. Ég hef ekki keypt mér geisladisk í svona fjögur eða fimm ár en kaupi mér nokkrar vínylplötur í hverjum mánuði,“ segir Birgir. Hann stefnir á að halda útgáfutónleika í haust. Birgir býr í Kaupmannahöfn en er um þessar mundir staddur á landinu og ætlar að spila með hljómsveitinni sinni Maus víða um land um verslunarmannahelgina, á Innipúkanum í Reykjavík í kvöld, Þjóðhátíð í Eyjum annað kvöld og á Græna hattinum á Akureyri á sunnudag. „Það er mikil tilhlökk- un í bandinu. Maus hefur til dæmis aldrei spilað á Þjóðhátíð áður. Það er þvílíkur heiður að fá að spila á undan flugeldasýningunni,“ segir Birgir, sem lofar bara slögurum á tónleikum Maus um helgina. gunnarleo@frettabladid.is Var búinn að missa trúna á mér sem tónlistarmaður Tónlistarmaðurinn Birgir Örn Steinarsson sendir frá sér sína fyrstu plötu undir nafninu Bigital í vikunni en hún ber nafnið 10 short stories. NÝ PLATA Birgir Örn Steinarsson gefur út sína fyrstu plötu undir nafninu Bigital í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA bio. siSAM SPARBÍÓ VARIETY CHICAGO SUN TIMES FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS OG GUARDIANS OF THE GALAXY EMPIRE TOTAL FILMVARIETY HITFIX THE HOLLYWOOD REPORTER VARIETY MISSION IMPOSSIBLE 5, 8, 10:35(P) PIXELS 1:45, 5, 8 ANT-MAN 3D 10:35 SKÓSVEINARNIR 2D 2, 4 MINIONS 2D 6 TED 2 10:15 JURASSIC WORLD 2D 8 INSIDE OUT 2D 2 TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL 2 POWERSÝNING KL. 10:35 SÝND MEÐ ÍSL OG ENS TALI Sigrún Lára Shanko tileinkaði líf sitt listinni árið 2003 eftir að hafa starfað í fjármálageiranum. Hún stofnaði sitt eigið stúd- íó árið 2012 þar sem hún hóf að framleiða teppi sem eru innblás- in af íslenskri náttúru og unnin í svokölluðum flos-stíl. Merk- ið hennar heitir Shanko Rugs. Teppin gerir hún öll sjálf en það getur tekið allt upp í tvo mánuði að ljúka við eitt teppi. Hún var lengi sú eina hér á landi ásamt Sigríði Ólafsdóttur sem starfaði í teppaiðnaðinum á Íslandi en nú hefur Sigrún þjálfað upp Þóru Björk Schram og deila þær saman vinnurými. Sigrún hefur sýnt verk sín um allan heim en hún segir áhugann vera mikinn utan landsteinanna. „Ég er búin að ferðast víða til þess að sýna og byggja upp tengsla- net. Fólk er hrifið af því að þetta endur speglar íslenska náttúru. Núna um daginn seldi ég teppi sem líkist glóandi hrauni í glæsi- íbúð í Seattle. Ég sýndi fyrst á Hönnunarmars 2012 og þá birtist mynd af teppi frá mér í tímarit- inu Elle. Svo hefur það líka birst á tískusíðunni WGSN.“ Vinnustofa Sigrúnar er í Gufu- nesinu en hún segist þurfa mikið pláss til þess að vinna. „Stundum er ég að gera teppi sem er marg- ir fermetrar. Ég þarf yfirleitt í kringum fjögur kíló af ull í hvern fermetra. Teppin eru mjög þykk og slitsterk og munu endast marg- ar kynslóðir. Flos er textílaðferð sem var mjög vinsæl á árunum í kringum 1970. Ég lærði þetta af mömmu og var að kenna með henni á námskeiðum þegar ég var ung. Ég er með handavinnuna í blóðinu.“ Sigrún er hreyfihömluð og þess vegna vinnur hún ekki alla daga. Hún er þó dugleg að ferðast til þess að koma verkum sínum á framfæri. „Ég var í Flórens í vor og svo var ég beðin um að sýna á lúxushóteli í London. Svo fór ég til Seattle í október í fyrra. Þessi ferðalög kosta sitt en þau eru þess virði. Ég er til dæmis komin með umboðsmann sem ég kynntist í Flórens. Svo hef ég líka verið að selja hér heima. Hótel Rangá hefur keypt nokkur verk eftir okkur Siggu og það er stórt verk eftir mig í Nýsköpunarstöðinni og hjá einka- aðilum sem hafa verið að versla við mig.“ gunnhildur@frettabladid.is Gerir teppi innblásin af íslenskri náttúru Sigrún Lára býr til teppi í fl os-stíl. Hún er ein af fáum á landinu sem framleiða teppi sem geta tekið allt að tvo mánuði í framleiðslu. TEPPAGERÐARKONA Sigrún Lára gerir öll teppin sem hún hannar sjálf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 B -D 8 C 4 1 5 9 B -D 7 8 8 1 5 9 B -D 6 4 C 1 5 9 B -D 5 1 0 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.