Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 22
4 • LÍFIÐ 31. JÚLÍ 2015 Það kannast flestir við það af eigin reynslu að neysla á holl- um matvælum hefur ekki einung- is jákvæð áhrif á líkamsvöxt og hreysti, heldur einnig á andlega líðan. En af hverju líður okkur vel þegar við borðum næringar- ríkan hollan mat? Rannsóknir hafa sýnt að vissar fæðutegundir geta létt lundina með því að auka framleiðslu á svokölluðum „gleði- hormónum“ og öðrum efnum sem geta aukið vellíðan. Amínósýran tryptófan Fæðutegundir sem innihalda amínósýruna tryptófan eru til dæmis egg, þorskur, kjúklingur, hafrar, ýmsar baunir, hnetur og fræ. Við neyslu á þessum fæðu- tegundum umbreytir líkaminn amínósýrunni í gleðihormónið og taugaboðefnið serótónín, sem hefur meðal annars það hlutverk að auka sælutilfinningu í líkam- anum. Við frekari efnaskipti er serótóníni umbreytt í hormón- ið melatónín. Melatónín er oft kallað svefnhormón þar sem það hjálpar okkur bæði að festa svefn og bæta gæði svefnsins. B-vítamínið níasín Tryptófan getur einnig nýmynd- að vatnsleysanlega vítamínið B3 eða níasín. Skortur á níasíni getur valdið andlegri vanlíðan, orkuleysi og höfuðverk en fæða sem er rík af níasíni er til dæmis túnfiskur, sólblómafræ, lamba- kjöt, sveppir og kjúklingur. Um- frammagn vatnsleysanlegra vít- amína varðveitast ekki í líkam- anum til lengri tíma (eins og fituleysanlegu vítamínin gera) og þess vegna er mikilvægt að neyta þeirra á hverjum degi. Taugaboðefnið dópamín Neysla á laxi, appelsínum, ban- önum, spínati, ferskjum, möndl- um og ýmsum fræjum ( t.d. gras- kers- og sesamfræjum) hefur verið tengd við losun á dópamíni frá undirstúku heilans. Dópamín er taugaboðefni sem eykur sælu og umbunartilfinningu í líkaman- um. Amínósýran týrósín finnst í fyrrnefndum fæðutegundum og er undanfari dópamíns og er þess vegna nauðsynleg fyrir myndun á boðefninu. Að þessum örfáu atriðum upp- töldum um jákvæð áhrif matar- æðis á vellíðan er augljóst að hollt mataræði hefur áhrif á and- lega líðan okkar og getur haft já- kvæð áhrif í baráttu við sjúk- dóma eins og þunglyndi og dep- urð. Hugsum því vel um mataræð- ið og andlegu heilsuna og njót- um þess að borða hollan, góðan og næringarríkan mat. www.fjar- naering.is HOLLUR MATUR EYKUR ANDLEGA VELLÍÐAN Það skiptir máli fyrir heilsu og heila að vanda valið þegar kemur að mat Sunna Björg Skarphéðinsdóttir næringafræðingur É g las frábæran pist- il nýverið þar sem eldri kona átti ekki til orð yfir það hversu heppin dótt- ir hennar væri í maka- vali. Það að karlmaður skipti um bleyju og passi börnin og jafnvel vaski upp! Svona voru mennirn- ir ekki í hennar tíð og hún skyldi sko þakka sínum lukkustjörnum fyrir að hafa nælt í svona nútíma- mann. Það hefur sumsé orðið ein- hver stökkbreyting í karlmönnum tuttugustuogfyrstu aldarinnar og geta þeir nú hluti sem menn gátu ekki gert áður. Ég fæ oft að heyra þetta. Ég á góðan mann sem stendur mér jafnfætis í lífinu en samt fæ ég að heyra hvað ég sé heppin að hafa nælt mér í hann, ekki öfugt. Fólk liggur við signir sig yfir því að hann sjái um endurvinnsluna, kúkableyjurnar og sæki á leik- skólann. „Sigga mín, þú mátt ekki vera of hörð við hann, leyfirðu honum ekki örugglega að fara út með strákunum?“ Það að hann sýni sambandinu okkar, og börn- unum, þá tillitssemi að kanna hvort það henti að fara út ákveðið kvöld og er að biðja mig um leyfi. Og ef ég segi að það henti illa þá er ég gribban sem bannar honum að hitta vini sína. Svo ég tali nú ekki um ef maður spyr hvenær von sé á viðkomandi heim. Hvaða rugl er þetta?! Fara kröfur saman við makaleit? Ein frábær vinkona mín hefur vandað valið í makaleitinni. Hún er reglulega minnt á að fjölgunar- klukkan sé farin að tifa ansi hátt og fólk veltir því fyrir sér hvort hún sé ekki alltof kröfuhörð þegar kemur að maka. Svo hlýt- ur líka eitthvað að vera að henni að vera á lausu svona lengi. Ég meina, er virkilega enginn nógu góður fyrir hana? Getur hún ekki aðeins slakað á kröfunum, eng- inn er nú einu sinni fullkominn. Það er út af svona röfli sem ég hringdi nýlega í hana og hrós- aði henni fyrir að standa með sér og ekki slá af kröfunum. Þú átt ekki að veita afslátt af lífsham- ingju bara af því að öðrum þykir óþægilegt að þú sért ein. Önnur vinkona mín sagði einmitt að hún vildi ekki fara í samband nema viðkomandi myndi bæta líf henn- ar en ekki vera dragbítur á það. Ég man að orð hennar sátu í mér því þau meika sens. Betra er autt rúm en illa skipað. Makaleit með lista Eitt skipti sat ég á kaffihúsi með dagbókina mína, og eins og svo oft áður, hripaði ég niður hug- renningar nema í þetta skipti voru það ekki málefni líðandi stundar sem ég velti fyrir mér heldur var það makaleitin. Eftir að hafa rekist á nokkur mislukkuð eintök af einstaklingum þá fædd- ist listinn yfir hinn fullkomna maka. Sko, minn fullkomna maka. Á listanum voru furðulegir hlut- ir eins og að hann ætti að eiga ákveðna tegund af peysu eða vera til í að vera í þannig peysu og svo að fara í langa göngutúra, vera til í að ferðast um hnöttinn, kunna að koma mér á óvart og yrði að vera glaðlyndur. Þegar loksins kom að því að renna yfir hinn ágæta lista (sem var löngu grafinn ofan í kassa en hafði greypst vand- lega í hugann) þá kom það mér skemmtilega á óvart hvað þetta var áreynslulaust og skemmtilegt. Það að segja hvað skiptir þig máli í sambandi er góð æfing og slíp- ar fólk saman. Ef þið hafið ekki sömu grunngildin þá getur það verið stór hindrun í sambandinu. Skítt með peysuna en að vera náttúrulega neikvæður? Nei takk! Engin aukakíló takk Þú þarft ekki að nenna lengur að sitja uppi með einhverja með- virka drullusokka sem drekka frá sér vit og rænu, kunna ekki að litaskipta í þvottavél og væla yfir hvað matseldin hennar mömmu sé best í heimi. Maki á að bæta við líf manns en ekki vera eins og auka hundrað kílóa hnúður á bakinu, við getum alveg séð sjálf um að bæta á okkur aukakílóum án þess að fá hans farangur yfir á okkur. Stattu með þér í maka- leit og leyfðu þér að hafa kröfur því þú veist best hvað hentar þér og sá eða sú sem ekki getur tekið því má bara halda áfram að sötra bjór á barnum með félögunum. ÞÚ ERT SVO HEPPIN MEÐ MAKA! Hefur þú lent í því að vinna í makalottóinu jafnvel þó að þú hafir kröfur sem mörgum þykja óraunhæfar? Lestu áfram. Ef þú hefur spurningu um kynlíf þá getur þú sent Siggu Dögg póst og spurningin þín gæti birst í Fréttablaðinu. sigga@siggadogg.is VILTU SPYRJA UM KYNLÍF? „Þú þarft ekki að nenna lengur að sitja uppi með einhverja meðvirka drullusokka sem drekka frá sér vit og rænu, kunna ekki að litaskipta í þvottavél og væla yfir hvað matseldin hennar mömmu sé best í heimi.“ 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 B -D D B 4 1 5 9 B -D C 7 8 1 5 9 B -D B 3 C 1 5 9 B -D A 0 0 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.