Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 1
LÍFIÐ MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Föstudagur Sími: 512 5000 31. júlí 2015 178. tölublað 15. árgangur Víðast upplýst um brot Öll lögregluumdæmi þar sem hátíðarhöld fara fram um helgina munu svara fyrirspurnum fjöl- miðla um möguleg kynferðisbrot, að undanskildum umdæmunum í Vestmannaeyjum og á höfuðborgar- svæðinu. Talskona Stígamóta segir það alvarlegt ef ekki megi ræða kynferðisbrot. 2 Barist við lúpínuna í Hveragerði Hvergerðingar ætla að halda lúpínu og skógarkerfli í skefjum. Bæjar- starfsmenn slá nú í gríð og erg. 4 Heit lind í Holuhrauni Ferðamenn hafa nýtt sér heita lind sem myndast hefur í Holuhrauni. 6 SKOÐUN Sif Sigmarsdóttir skrifar um kaup Björns Inga Hrafnssonar á fjölmiðlum. 13 SPORT Mikilvægt að nýta sér vanmat stórþjóðanna á Evrópumótinu í Berlín. 26 12 GOTT UM HELGINASigurrós Jóns Bragadóttir viðskiptafræðingur er mikill matgæðingur og býður lesendum upp á grillaða bleikju og ljúffenga sælgætis- ostaköku. Síða 2 Lífi ð 31. JÚLÍ 2015 FÖSTUDAGUR Auður Ögn Árnadóttir Sunna Björg næringarfræðingur HOLLUR MATUR EYKUR ANDLEGA VELLÍÐAN 4 Eyþór Rúnarsson matreiðslumeistari NAUTASTRIMLAR OG BLEIKJA Á GRILLIÐ 8 Tíska og trend fyrir helgina ÞESSIR ÁTTA HLUTIR ERU ÓMISSANDI 10 FRÉTTIR 2 SÉRBLÖÐ Lífið | Fólk 22 Driscolls Jarðarber 250 g askja 229 kr. ÚTSÖLU- LOK Saltið var skrifað í skýin Auður Ögn Árnadóttir er stofnandi og eigandi Salt Eldhúss sem heldur reglulega framandi matreiðslunám- skeið. Hér ræðir hún um makrónuna sem kom Salt Eldhúsi á kortið, Jane Austen-leshringinn í Bretlandi, ástríðuna fyrir matargerð og hvernig örlögin tóku í taumana og stýrðu henni á vit ævintýranna. LÍFIÐ Sigrún Lára Shanko gerir teppi sem hafa vakið athygli um allan heim. 40 MENNING Lára Bryndís leik- ur og syngur á þrennum tón- leikum í Hallgrímskirkju. 25 Ragnheiður Elín Árnadóttir ræðir gagnrýnina, meint aðgerðarleysi sitt í ferðaþjónustu, lífið í Keflavík, að þingmenn geri mistök eins og aðrir og náttúrupassann sem hún trúir enn að sé góð leið til gjald- töku. Hún fór Gullna hringinn um síðustu helgi og þurfti ekkert að bíða eftir klósettinu. Síða 8 FÖSTUDAGSVIÐTALIÐ Beið hvergi í röð eftir klósettinu DÓMSMÁL Sæbjörgu Rut Guð- mundsdóttur, 31 árs gamalli konu, sem er búsett á Akureyri, hefur ekki tekist að skilja við eigin- mann sinn, Mindaugas Bytaut as, tólf árum eftir að hún sleit sam- vistum við hann og sex árum eftir að hún fór fram á skilnað. Ástæða þess er að ekki hefur tekist að hafa upp á Bytautas og birta honum stefnu. Bytautas, sem er frá Litháen, hefur ekki búið hér á landi frá árinu 2006. Sæbjörg höfðar nú í annað sinn dómsmál gegn Bytautas til þess að fá viðurkenndan lögskilnað en hún er nú í sambandi með öðrum manni og á með honum barn. Dögg Pálsdóttir, aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykja- vík, segir ekki unnt að fá skiln- að fyrir dómstólum nema full- reynt þyki að makinn finnist ekki til að birta honum stefnu. Dómstólar vísi hjónaskilnaðar- málum frá hafi birting ekki tek- ist eða allra leiða ekki verið leit- að annarra en stefnubirtingar í Lögbirtingarblaðinu að sögn Daggar. Maðurinn er ekki með skráð heimilisfang í Litháen og segjast stjórnvöld þar í landi ekki vita hvort hann sé búsettur í landinu. Því geti þau ekki birt honum stefnu. Dögg segist sjálf hafa rekið sambærileg mál fyrir dómi. „Ég þekki af eigin raun hvaða vanda þetta getur sett fólk í. Manni finnst að það ættu að vera ein- hver úrræði. Stundum getur þetta verið partur af einhverri meinfýsi, að skilja makann eftir og hann getur ekki skilið,“ segir Dögg. - ih Dómstólar vísa hjónaskilnaðarmálum frá ef ekki tekst að birta stefnu: Enn gift því makinn finnst ekki Ég þekki af eigin raun hvaða vanda þetta getur sett fólk í. Manni finnst að það ættu að vera einhver úrræði. Dögg Pálsdóttir, aðjúnkt við lagadeild HR. 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 B -C 0 1 4 1 5 9 B -B E D 8 1 5 9 B -B D 9 C 1 5 9 B -B C 6 0 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.