Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 8
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Ítarlegra og lengra viðtal við Ragnheiði má hlusta á í hlað- varpinu Föstudagsviðtalið á Vísi. visir.is FÖSTUDAGSVIÐTALIÐ Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is „Ég ætla ekki að dvelja við þetta. Ég ætla að hugsa eins og þau gera í nýsköpuninni. Hjá frumkvöðlunum er það svoleiðis að þeir koma með hugmyndir og hugmyndin kannski rennur út í sandinn. Þá er regla númer eitt: lærðu af því sem miður fór. Komdu aftur. Gott dæmi er Þorsteinn í Plain Vanilla. Þeir fóru á hausinn með fyrstu hugmyndina og eftir það fengu þeir ekkert fjár- magn á Íslandi. Svo þeir fóru til Bandaríkjanna og þá var sagt: eruð þið búnir að fara á hausinn og mis- takast? Frábært,“ segir Ragnheið- ur Elín Árnadóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra, sem segist vissu- lega svekkt yfir því að frumvarp hennar um náttúrupassa hafi ekki hlotið brautargengi. Hún segist þó enn vera sannfærð um að náttúru- passinn sé góð leið til gjaldtöku á ferðamönnum, en er meðvituð um að passinn sé ekki gallalaus. Vill tekjurnar frá ferðamönnum „Náttúrupassinn gekk ekki upp. Hvað viljum við þá gera? Þeir sem gagnrýndu náttúrupassann hvað mest, vildu eitthvað annað. Þetta annað – það hefur heldur ekki náðst samstaða um það. Ef við ætlum að leggja komugjöld á ferðamenn, þá eru líka kostir og gallar við það. Mér finnst helsti gallinn sá að vegna alþjóðlegra skuldbindinga þurfum við líka að setja það á innanlands- flug. Íslendingar þurfa að borga það þegar þeir fljúga innanlands. Það var eitt af markmiðunum með náttúrupassanum, að fá nýjar tekjur af ferðamönnum en ekki meira af Íslendingum. Við borgum margt innan málaflokksins með sköttum.“ En áttu Íslendingar ekki líka að borga fyrir náttúrupassa? „Jú, 500 krónur á ári sem hefðu lagst á Íslendinga. Við vorum að tala um að fá 3-5 milljarða á þremur árum og 85-90 prósent tekna áttu að koma frá erlendum ferðamönnum. Mér hugnast síst að fara blandaða leið, kroppa af öllum. Ég vil afnema gistináttagjald, vegna þess að það er vondur skattur. Þar eru ótal marg- ir innheimtuaðilar fyrir lágar upp- hæðir og ef við förum að hækka hann mikið fer það að búa til flækju- stig sem mér hugnast ekki. Ef við ætlum að taka þetta í gegnum gisti- þjónustuna er virðisaukaskatturinn betur til þess fallinn.“ Almenn einföldun á skattkerfinu Hver eru rökin fyrir því að almennir kaupmenn borgi 24 prósenta virðis- aukaskatt en gistiþjónustan 14%? „Við erum ekki bara að keppa inn- anlands, heldur við hótel í öðrum löndum. Í flestum Evrópulönd- um er hótelgisting í lægsta virðis- aukaþrepi. Þar sem það hefur verið hækkað, til dæmis í Danmörku, hafði það mikil áhrif á eftirspurn á sínum tíma. Við þurfum að horfa á þetta samhengi. Ég útiloka ekki að við gerum einhvern tíma breyting- ar, en það er ekki hægt að hækka virðisaukaskatt á gistingu og til- kynna það í fjárlagafrumvarpi sem tekur gildi nokkrum mánuð- um seinna, án nokkurs samráðs við greinina eins og síðasta ríkis- stjórn. Þess vegna tókum við til baka þá ákvörðun sem hafði verið lögfest. Við erum að breyta virðis- aukaskattskerfinu almennt, hækka neðra þrepið og lækka efra þrep- ið, minnka bilið með það að mark- miði að það verði bara eitt almennt virðisaukaþrep. Við afnemum þess- ar undanþágur og fækkum sértil- vikum sem við höfum séð of mikið af. Við stefnum í einföldun á skatt- kerfinu. En þetta er svolítið eins og að snúa olíuskipi. Virðisaukaskatts- kerfið veitir okkur gríðarlega mikl- ar tekjur þannig að þessar breyting- ar eru teknar í skrefum.“ Menn eru fljótir að gleyma Ragnheiður setti ferðamannaþjón- ustu í forgang frá fyrsta degi. „Ég var nýkomin úr kosningabaráttu þar sem meginlínan hjá flestum stjórnmálaflokkum var að skoða hugmyndir um náttúrupassa. Menn eru fljótir að skipta um skoðun og gleyma, en ef maður fer til baka og skoðar ályktanir stjórnmála- flokka, míns flokks, Framsókn- arflokksins, stjórnarsáttmálann, tillögur hagræðingarhóps ríkis- stjórnarinnar var mér beinlínis falið af þeim að útfæra náttúru- passa til að tryggja tekjur af ferða- þjónustu. Samtök ferðaþjónustunn- ar höfðu sjálf ályktað í þessu veru, Boston Consulting Group kom með skýrslu – allar skýrslur með einum eða öðrum hætti bentu á þessa leið. Eftir vandlega yfirlegu þá fer ég með það fyrir ríkisstjórn að útfæra passann. Það þekkja allir hvernig það fór. En það má ekki gleyma því að við fáum þegar miklar tekjur í ríkissjóð frá ferðamönnum, rúma 50 milljarða á ári. Ég hef legið undir gagnrýni fyrir það að gera ekki nægilega mikið í þessum málum. En ef þetta er svona ein- falt, af hverju var þetta viðfangs- efni skilið eftir óleyst fyrir mig? Fjölgun ferðamanna er ekkert nýtt, þessar spár hafa legið fyrir í næstum tíu ár. Auðvitað hefðum við getað gert fullt af hlutum fyrr. En ég vil einblína á það sem við erum að gera núna.“ Tekur sig ekki of alvarlega Ummæli Ragnheiðar, þar sem hún sagði okkur Íslendinga hafa verið tekna í bólinu hvað varðar fjölda ferðamanna til landsins, vöktu athygli. Gunnar Karlsson, skop- teiknari Fréttablaðsins, gerði sér mat úr ummælunum. Sitt sýnd- ist hverjum um myndina, þar sem Ragnheiður lá nakin upp í rúmi og ferðamenn gægðust inn. Hún segir ummæli sín hafa verið tekin úr sam- hengi. „Þetta er það sem viðmælendur í fjölmiðlum búa við. Þetta var langt og mikið viðtal sem var klippt. Ég átti við stjórnvöld fyrr og nú. Ísland sem samfélag, ferðaþjón- ustuna sjálfa. Svo var þetta gert að fyrirsögn og eins og skopteiknar- inn sér þetta að ég liggi upp í rúmi steinhissa á öllu saman. En ég tek sjálfa mig ekkert of alvarlega, ég sá þetta og brosti út í annað. En þau komu mér á óvart, viðbrögðin við myndinni. Það voru margir í kring- um mig brjálaðir, og aðrir sem ég þekkti ekki neitt. Þeim fannst þetta óviðeigandi. Ég sef alveg róleg í ból- inu, en ég ætti kannski að hætta að nota svona líkingar,“ segir Ragn- heiður og hlær. Sjálf segist hún ekki vera viðkvæm fyrir gagnrýni. Ómálefnaleg gagnrýni pirrandi „Ef menn eru ósáttir, fer ég að skoða – get ég gert eitthvað öðru- vísi? Stundum er ég ósammála og í pólitík er það stundum þannig. Sú gagnrýni kemur minnst við mann. Ómálefnaleg gagnrýni er hundpirr- andi og við suma er ekki hægt að ræða. En í flestum tilvikum þegar maður lendir í ólgusjó, tekur maður því, reynir að læra og svara mál- efnalega. Þessi vika var annasöm í því. Eitt af því sem við stjórnmála- menn megum gera meira af, er að taka samtalið. Við gerum mistök eins og aðrir,“ segir Ragnheiður. Hún segir stjórnmálamönnum stundum hafa verið gefið það ráð að þegja af sér gagnrýni. „Það er kannski klókast, en fyrir kjósendur er betra að fá efnisleg svör. Það er lærdómurinn, að vera duglegri að koma frá okkur upplýsingum.“ Vopnuð myndavél og skeiðklukku Mikil umræða hefur einnig skap- ast um umgengni ferðamanna, þeir hafi hægðir á víðavangi og salernis- aðstaða sé ekki nægilega góð. Ragn- heiður segir umræðuna villandi. „Við fjölskyldan fórum rúnt um síðustu helgi, Gullna hringinn, því ég var farin að hafa áhyggjur af því að venjulegi Íslendingurinn sem vildi sunnudagsbíltúr væri farinn að óttast að allt væri í drullusvaði, átroðningur og ófögnuður. Ég tók með mér myndavél og skeiðklukku, ætlaði að tímasetja hversu lengi við værum í klósettröðinni, hvað væru margir að þvælast þarna. Þetta var þvert á móti ein sú notalegasta upp- lifun sem við höfum átt. Hvergi röð á klósettin. Klósettin á Hakinu voru tóm. Klósettin í þjónustumiðstöð- inni voru tóm. Hreint og snyrtilegt. Öll bílaplön full, fullt af túristum, en stýringin orðin það góð að þú fékkst upplifunina sem við þekkj- um og þykir vænt um. Kannski var ég heppin, en ég ítreka, þetta er á háannatíma í góðu veðri, allar for- sendur fyrir því að þetta væri eins og maður hefur heyrt í fréttum,“ segir hún og heldur áfram. Of mikið gert úr þessu neikvæða „Ég er ekki kveinka mér undan fjöl- miðlaumræðu eða að segja að hún sé ekki rétt en ég held að það sé búið að gera of mikið úr þessu,“ segir Ragn- heiður sem ferðast mikið um landið. „Víða er úrbóta þörf. Þess vegna er verið að vinna í því. Ég er líka að sjá um allt land, einstaklinga sem eru að vinna í ferðaþjónustunni að gera frábæra hluti. Innviðir eru að batna af hendi stjórnvalda og fjár- festinga einkaaðila. Ég held að við ættum að hugsa um þetta jákvæða. Við fórum í stefnumótun í haust og erum vonandi að klára í næsta mán- uði tillögur að heildarsýn.“ Ætlar ekki að finna upp hjólið Hún segir að greinin snerti mörg ráðuneyti, sveitarfélögin og aðila í ferðaþjónustu. „Til að við getum unnið betur, sem einn maður, þarf að vera talsamband og stefna sem allir vinna eftir. Við þurfum að koma skikki á þetta, gera plan. Læra af þeim sem gera best, Nýja- Sjálandi, Skotlandi, Kanada. Við ætlum ekkert að finna upp hjólið, heldur plokka það besta af hlaðborð- inu og tileinka okkur það.“ Ragnheiður er uppalin í Kefla- vík. „Svo fékk ég útþrá, fór í skipti- nám og í Kvennó í menntaskóla til að komast aðeins frá. Síðan fór ég til Bandaríkjanna þar sem ég bjó í fimm ár. Nú er ég komin aftur heim,“ segir Ragnheiður sem flutt- ist ásamt fjölskyldunni aftur í heimahagana árið 2010. Ragnheiður er gift Guðjóni Inga Guðjónssyni en þau kynntust árið 1997. „Þetta tók svolítinn tíma fyrir okkur að verða meira en vinir, en síðan hefur þetta skotgengið. Við eigum tvo stráka, og svo fékk ég tvær stelpur í forgjöf,“ segir hún og upplýsir að hún sé einstaklega vel gift. „Mér er oft lýst þannig, hún er alveg rosalega vel gift. Ég get alveg tekið undir það. Það særir mig dálít- ið að sjaldnar er sagt, rosalega er hann Guðjón vel giftur,“ segir hún kímin. Draumurinn að gerast sendiherra Það lá aldrei beinast við að Ragn- heiður færi í stjórnmál. Hún átti sér draum um að verða sendiherra. „Það var planið. Alþjóðapólitíkin hefur alltaf verið á mínu áhugasviði þannig að það setur tóninn.“ Þaðan lá leiðin í framhaldsnám í George- town-háskóla. „Eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert var að vinna sem við- skiptafulltrúi útflutningsráðs í New York, að vinna við það að selja Ísland. Það er það sem sendiherr- ar gera, vinna fyrir land og þjóð og kynna fyrir þeirri þjóð sem þú býrð í og bæta samskipti, koma á tengslum, efla viðskipti. Mér finnst gaman að vinna með fólki, ég held að ég sé góð í því.“ Smitaðist af bakteríunni Afskipti Ragnheiðar af stjórnmál- um byrjuðu fyrir alvöru þegar hún varð aðstoðarmaður Geirs Haarde, en þeirra samstarf varði í níu ár. „Ég fékk þessa pólitísku bakter- íu. Ég fór í prófkjör 2006 sem leiddi til þess að ég var kjörin á þing. Ég eignaðist son minn 25. septem- ber 2008, daginn sem Glitnir bað um neyðarlánið. Þá breyttist allt í íslensku samfélagi. Ég ætlaði að vera í fæðingarorlofi, en maður situr ekki heima þegar veröldin er að hrynja í kringum mann. Svo ég var komin viku eftir fæðingu á þingflokksfund á leið í prófkjör. Þetta er svo skrítið, ég man eigin- lega ekkert eftir þessu,“ segir Ragn- heiður og hlær. „Ætli ég hafi ekki verið í brjóstaþoku. Svo er boðað til kosninga.“ Þá var leitað til Ragn- heiðar úr Suðurkjördæmi, hún spurð hvort hún vildi reyna fyrir sér í oddvitasæti fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. „Þannig að ég fór í próf- kjör með barnið á brjósti. Allt gekk þetta. Frá þeim tíma erum við búin að flytja, ég búin að vera í stjórnar- andstöðu, í ríkisstjórn og ráðherra, maðurinn búinn að skipta um vinnu og strákarnir komnir í annan skóla.“ Landið er að rísa Hvernig vill hún að sín sé minnst sem iðnaðarráðherra? „Ég vil að hér sé fjölbreyttara atvinnulíf en þegar ég kom. Ef við ætlum að hafa störf sem ungar kyn- slóðir sækja í þurfum við allar teg- undir. Frá hruni hefur verið gróska í nýsköpunargeiranum. Við höfum lagt áherslu á það. Eflt tækniþró- unarsjóð og samkeppnissjóði. Þessi gróska er mest gefandi. Landið er að rísa og fjölbreyttari sprotar verða til. McKinsey kom með skýrslu stuttu áður en við tókum við og það var talað um að ef við Íslending- ar ætlum að vaxa stöðugt og auka útflutningstekjur er það ekki af hinum hefðbundnu geirum, stóriðju og sjávarútvegi, heldur öðru. Fyrir- tækjum eins og Knox Medical, Plain Vanilla, CCP, Marel, Össur. Við þurfum fleiri svoleiðis. Ætlarðu þá að hætta að byggja verksmiðjur? „Þetta má allt fara saman. Þetta eru ekki bara óhrein verksmiðju- störf, heldur þarf lögfræðinga, endur skoðendur, bókara, og þar fram eftir götunum. Mér er illa við að etja einni grein gegn ann- arri, fjölbreytnin er það sem skipt- ir máli.“ Ragnheiður sefur róleg í bólinu Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra ætlaði sér að verða sendiherra. Hún fékk í sig pólítísku bakteríuna eftir að hafa unnið náið með Geir H. Haarde í níu ár. Hana langar mest af öllu til að fjölbreyttara atvinnulíf verði það sem hún skilji eftir sig. DREYMDI UM AÐ GERAST SENDIHERRA Ragnheiður Elín ætlaði ekki í pólitík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það voru margir í kringum mig brjálaðir, og aðrir sem ég þekkti ekki neitt. Þeim fannst þetta óviðeigandi. Ég sef alveg róleg í bólinu, en ég ætti kannski að hætta að nota svona líkingar. 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K N Ý. p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 B -E 7 9 4 1 5 9 B -E 6 5 8 1 5 9 B -E 5 1 C 1 5 9 B -E 3 E 0 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.