Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 28
10 • LÍFIÐ 31. JÚLÍ 2015 ÓMISSANDI BJÚTÍRÁÐ FYRIR VERSLUNARMANNAHELGINA Stærsta ferðahelgi ársins er runnin upp en áður en lagt er í hann er gott að hafa ákveðin undirstöðu- atriði með í för sem geta reddað hvaða útilegu sem er. Það þarf bæði að huga að þægindum og útliti og ef þessir hlutir eru með í för þá gengur ferðalagið glimrandi vel. Sólgleraugu Það er ómissandi að hafa sólgleraugu með í för og kannski ágætt að geyma fína parið sitt heima og splæsa í ein lekker á næstu bensínstöð. Sólgleraug- un gegna fjölþætti hlutverki þar sem þau bæði verja augun gegn ágangi sólargeislanna en fela einnig þrútin augu eftir langa nótt af söng og gleði. Svo ef þú vilt vera með í partíinu en þarft að halla þér þá koma sólgleraugu einnig að góðum notum og þú getur fengið þér kríu án truflunar. Salernispappír Það er sama hvar maður er, oftar en ekki vantar mann pappír, hvort sem það er til að skeina bossa, þerra fingur eða hreinsa munnvikin. Það er því þjóðráð að kippa með sér einni eða tveimur rúllum. Verkjalyf Það er fátt leiðinlegra en að láta gott fjör með góðu fólki fara í súginn vegna líkam legrar vanlíðunar. Það er líka þjónusta í almannaþágu að vera með verkjalyf í farteskinu því það er allt- af einhver sem gleymir slíkum lyfj- um. Höfuðverkur á ekki að þurfa eyðileggja sprellið svo taktu nokkrar pillur með í budduna. Varalitur Það þarf ekki að taka með sér mikið af málningardóti þegar land er lagt undir fót, sérstaklega í ljósi veðurblíðunnar sem ríkt hefur víða um land. Leyfðu náttúrulegri sólkysstri húðinni að njóta sín en splæstu í góðan varalit sem skerpir á andlitinu og hressir það við um leið. Kókosolía Þessi olía er þarfaþing, hvort sem er heima fyrir eða á ferðalagi. Bæði mýkir hún húðina, hreinsar farða af augum og andliti, veit- ir hárinu mýkt og raka, má nota til að raka sig með en einnig er hægt að nota hana til eldamennsku og sem feiti út í kaffið. Hún geymist vel í glerkrukku eða plastboxi og ætti að vera í hverri einustu snyrtibuddu. Vatn Það segir sig kannski sjálft en vatn er mikilvægur ferðafélagi sem gleymist oft. Gott er að vera með góðan brúsa eða flösku sem hægt er að fylla reglulega á og taka með sér. Þá er það ágæt- is regla að hafa alltaf fulla vatnsflösku með sér og byrja daginn og enda með því að dreypa á vatninu. Þá er þetta líka ódýrasti drykkurinn sem fyrirf innst og sá hollasti. Þegar þörfin fyrir ham- borgara segir til sín er gott að hafa vatnsflösku nálægt. Trefill Það eru nokkrir lykilstaðir á lík- amanum sem þarf að halda heitum svo líkaminn hald- ist heitur og einn af þessum stöðum er hálsinn og þá sérstaklega hnakkinn. Hattur Það er alltaf smart að vera með hatt og svo hlýjar það manni. Smartheit- in þurfa ekki að hverfa þótt maður sé á útihátíð og ef þér finnst hin dæmigerða hlýja húfa ekki eitt- hvað fyrir þig þá gæti hatt- ur verið það. Svo er hann einnig góður til að fela skítugt hár, hann má taka ofan við formlega kveðju og fólk man eftir þeim sem eru með töff hatt. 365.is Sími 1817 BREAKING BAD MARAÞON Breaking Bad á Stöð 2 Maraþon. N STÖÐ 2 MARAÞO N FYLGIR ÁSKRIFT AÐ SKEMMTI- PAKKANUM! 800 klst. af sjónvarpsefni á Maraþoninu. 3 0 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 B -E 2 A 4 1 5 9 B -E 1 6 8 1 5 9 B -E 0 2 C 1 5 9 B -D E F 0 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.