Fréttablaðið - 31.07.2015, Qupperneq 22
4 • LÍFIÐ 31. JÚLÍ 2015
Það kannast flestir við það af
eigin reynslu að neysla á holl-
um matvælum hefur ekki einung-
is jákvæð áhrif á líkamsvöxt og
hreysti, heldur einnig á andlega
líðan. En af hverju líður okkur
vel þegar við borðum næringar-
ríkan hollan mat? Rannsóknir
hafa sýnt að vissar fæðutegundir
geta létt lundina með því að auka
framleiðslu á svokölluðum „gleði-
hormónum“ og öðrum efnum sem
geta aukið vellíðan.
Amínósýran tryptófan
Fæðutegundir sem innihalda
amínósýruna tryptófan eru til
dæmis egg, þorskur, kjúklingur,
hafrar, ýmsar baunir, hnetur og
fræ. Við neyslu á þessum fæðu-
tegundum umbreytir líkaminn
amínósýrunni í gleðihormónið
og taugaboðefnið serótónín, sem
hefur meðal annars það hlutverk
að auka sælutilfinningu í líkam-
anum. Við frekari efnaskipti er
serótóníni umbreytt í hormón-
ið melatónín. Melatónín er oft
kallað svefnhormón þar sem það
hjálpar okkur bæði að festa svefn
og bæta gæði svefnsins.
B-vítamínið níasín
Tryptófan getur einnig nýmynd-
að vatnsleysanlega vítamínið
B3 eða níasín. Skortur á níasíni
getur valdið andlegri vanlíðan,
orkuleysi og höfuðverk en fæða
sem er rík af níasíni er til dæmis
túnfiskur, sólblómafræ, lamba-
kjöt, sveppir og kjúklingur. Um-
frammagn vatnsleysanlegra vít-
amína varðveitast ekki í líkam-
anum til lengri tíma (eins og
fituleysanlegu vítamínin gera) og
þess vegna er mikilvægt að neyta
þeirra á hverjum degi.
Taugaboðefnið dópamín
Neysla á laxi, appelsínum, ban-
önum, spínati, ferskjum, möndl-
um og ýmsum fræjum ( t.d. gras-
kers- og sesamfræjum) hefur
verið tengd við losun á dópamíni
frá undirstúku heilans. Dópamín
er taugaboðefni sem eykur sælu
og umbunartilfinningu í líkaman-
um. Amínósýran týrósín finnst í
fyrrnefndum fæðutegundum og
er undanfari dópamíns og er þess
vegna nauðsynleg fyrir myndun á
boðefninu.
Að þessum örfáu atriðum upp-
töldum um jákvæð áhrif matar-
æðis á vellíðan er augljóst að
hollt mataræði hefur áhrif á and-
lega líðan okkar og getur haft já-
kvæð áhrif í baráttu við sjúk-
dóma eins og þunglyndi og dep-
urð.
Hugsum því vel um mataræð-
ið og andlegu heilsuna og njót-
um þess að borða hollan, góðan
og næringarríkan mat. www.fjar-
naering.is
HOLLUR MATUR EYKUR
ANDLEGA VELLÍÐAN
Það skiptir máli fyrir heilsu og heila að vanda valið þegar kemur að mat
Sunna Björg
Skarphéðinsdóttir
næringafræðingur
É
g las frábæran pist-
il nýverið þar sem eldri
kona átti ekki til orð yfir
það hversu heppin dótt-
ir hennar væri í maka-
vali. Það að karlmaður skipti um
bleyju og passi börnin og jafnvel
vaski upp! Svona voru mennirn-
ir ekki í hennar tíð og hún skyldi
sko þakka sínum lukkustjörnum
fyrir að hafa nælt í svona nútíma-
mann. Það hefur sumsé orðið ein-
hver stökkbreyting í karlmönnum
tuttugustuogfyrstu aldarinnar og
geta þeir nú hluti sem menn gátu
ekki gert áður.
Ég fæ oft að heyra þetta. Ég
á góðan mann sem stendur mér
jafnfætis í lífinu en samt fæ ég
að heyra hvað ég sé heppin að
hafa nælt mér í hann, ekki öfugt.
Fólk liggur við signir sig yfir því
að hann sjái um endurvinnsluna,
kúkableyjurnar og sæki á leik-
skólann. „Sigga mín, þú mátt ekki
vera of hörð við hann, leyfirðu
honum ekki örugglega að fara út
með strákunum?“ Það að hann
sýni sambandinu okkar, og börn-
unum, þá tillitssemi að kanna
hvort það henti að fara út ákveðið
kvöld og er að biðja mig um leyfi.
Og ef ég segi að það henti illa þá
er ég gribban sem bannar honum
að hitta vini sína. Svo ég tali nú
ekki um ef maður spyr hvenær
von sé á viðkomandi heim. Hvaða
rugl er þetta?!
Fara kröfur saman við
makaleit?
Ein frábær vinkona mín hefur
vandað valið í makaleitinni. Hún
er reglulega minnt á að fjölgunar-
klukkan sé farin að tifa ansi hátt
og fólk veltir því fyrir sér hvort
hún sé ekki alltof kröfuhörð
þegar kemur að maka. Svo hlýt-
ur líka eitthvað að vera að henni
að vera á lausu svona lengi. Ég
meina, er virkilega enginn nógu
góður fyrir hana? Getur hún ekki
aðeins slakað á kröfunum, eng-
inn er nú einu sinni fullkominn.
Það er út af svona röfli sem ég
hringdi nýlega í hana og hrós-
aði henni fyrir að standa með sér
og ekki slá af kröfunum. Þú átt
ekki að veita afslátt af lífsham-
ingju bara af því að öðrum þykir
óþægilegt að þú sért ein. Önnur
vinkona mín sagði einmitt að hún
vildi ekki fara í samband nema
viðkomandi myndi bæta líf henn-
ar en ekki vera dragbítur á það.
Ég man að orð hennar sátu í mér
því þau meika sens. Betra er autt
rúm en illa skipað.
Makaleit með lista
Eitt skipti sat ég á kaffihúsi með
dagbókina mína, og eins og svo
oft áður, hripaði ég niður hug-
renningar nema í þetta skipti
voru það ekki málefni líðandi
stundar sem ég velti fyrir mér
heldur var það makaleitin. Eftir
að hafa rekist á nokkur mislukkuð
eintök af einstaklingum þá fædd-
ist listinn yfir hinn fullkomna
maka. Sko, minn fullkomna maka.
Á listanum voru furðulegir hlut-
ir eins og að hann ætti að eiga
ákveðna tegund af peysu eða vera
til í að vera í þannig peysu og svo
að fara í langa göngutúra, vera til
í að ferðast um hnöttinn, kunna að
koma mér á óvart og yrði að vera
glaðlyndur. Þegar loksins kom
að því að renna yfir hinn ágæta
lista (sem var löngu grafinn ofan
í kassa en hafði greypst vand-
lega í hugann) þá kom það mér
skemmtilega á óvart hvað þetta
var áreynslulaust og skemmtilegt.
Það að segja hvað skiptir þig máli
í sambandi er góð æfing og slíp-
ar fólk saman. Ef þið hafið ekki
sömu grunngildin þá getur það
verið stór hindrun í sambandinu.
Skítt með peysuna en að vera
náttúrulega neikvæður? Nei takk!
Engin aukakíló takk
Þú þarft ekki að nenna lengur
að sitja uppi með einhverja með-
virka drullusokka sem drekka frá
sér vit og rænu, kunna ekki að
litaskipta í þvottavél og væla yfir
hvað matseldin hennar mömmu
sé best í heimi. Maki á að bæta
við líf manns en ekki vera eins
og auka hundrað kílóa hnúður á
bakinu, við getum alveg séð sjálf
um að bæta á okkur aukakílóum
án þess að fá hans farangur yfir
á okkur. Stattu með þér í maka-
leit og leyfðu þér að hafa kröfur
því þú veist best hvað hentar þér
og sá eða sú sem ekki getur tekið
því má bara halda áfram að sötra
bjór á barnum með félögunum.
ÞÚ ERT SVO HEPPIN MEÐ MAKA!
Hefur þú lent í því að vinna í makalottóinu jafnvel þó að þú hafir kröfur sem mörgum þykja óraunhæfar? Lestu áfram.
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA UM KYNLÍF?
„Þú þarft ekki
að nenna
lengur að
sitja uppi
með einhverja
meðvirka
drullusokka sem
drekka frá sér
vit og rænu,
kunna ekki
að litaskipta
í þvottavél
og væla yfir
hvað matseldin
hennar mömmu
sé best í heimi.“
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-D
D
B
4
1
5
9
B
-D
C
7
8
1
5
9
B
-D
B
3
C
1
5
9
B
-D
A
0
0
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K