Fréttablaðið - 31.07.2015, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 31. júlí 2015 | SKOÐUN | 13
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
ISUZU D-MAX ER EINN HAGKVÆMASTI
OG STERKASTI PALLBÍLL SEM UM GETUR
35OO kg
EYÐSLA AÐEINS 7,4 l/1OO km*
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
0
2
0
2
–
*
M
ið
as
t
vi
ð
b
ei
n
sk
ip
ta
n
b
íl
í
b
lö
n
d
u
ð
u
m
a
ks
tr
i.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
NÝTT MEIRI DRÁTTARGETA
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is
og við komum henni á framfæri hið snarasta.
Það besta í veröldinni er
ókeypis, það næstbesta er fok-
dýrt. Svo sagði Coco Chanel.
Sumir segja að peningar kaupi
manni ekki hamingju. En þeir
gera það upp að vissu marki.
Rannsóknir sýna það.
Forrest Gump sagði að lífið
væri eins og konfektkassi. Ég
er þeirrar skoðunar að sé lífinu
líkt við matvæli sé snertiflötinn
að finna á síðari stigum málsins.
Lífið er eins og stíflað klósett.
Ástæðu þess að glasið hjá mér
er hálftómt – eða klósettskálin
að flæða yfir – kann að vera að
finna í þeirri staðreynd að ég
kann ekki á peninga. Ég fatt-
aði það ekki fyrr en um síðustu
helgi. Ég hélt að ég kynni á þá.
Ég hélt að með peningum keypti
maður hluti. Ég hélt að með pen-
ingum uppfyllti maður tilgang
lífsins: að sanka að sér dóti til að
geyma inni í skáp. Þegar skáp-
arnir væru orðnir fullir geisp-
aði maður golunni. Var það ekki
þess vegna sem allir vildu mikið
skápapláss?
En nei. Peningar eru svo
miklu meira. Sá sem varð til
þess að ég sá villu míns vegar
var fjölmiðlamógúllinn Björn
Ingi Hrafnsson. Hann keypti
sér útgáfufélag um síðastliðna
helgi. Umrætt útgáfufélag hafði
verið dálítið óstýrilátt. Það
böggaði ríkisstjórnina reglu-
lega. Agnúaðist annað slagið út í
Framsóknarflokkinn. En Björn
Ingi vissi sem var, máttur pen-
inga felst ekki aðeins í því að
gera fólki kleift að eignast hluti.
Með peningum er líka hægt að
láta hluti hverfa. Með pening-
um má losa sig við hluti sem
fara í taugarnar á manni. Björn
Ingi straujaði kortið og BAMM:
Framsóknarmenn um land allt
fundu hamingjuna á ný.
Verslunarmannahelgin geng-
ur nú í garð. Leikurinn „Hvað
gerðirðu við peninginn sem
frúin í Hamborg gaf þér í gær?“
verður vafalaust leikinn í hinum
fjölmörgu umferðarstíflum
sem þjaka munu ferðalanga.
En hvernig væri að flikka upp
á þennan útjaskaða leik? Spila
hann í anda Björns Inga og veifa
seðlunum af uppátækjasemi.
Leikurinn gæti fengið heitið:
„Hvað ætlarðu að láta hverfa
með peningunum sem Fram-
sóknarflokkurinn gaf þér í gær?“
Þetta er innkaupalistinn minn:
Runkeeper:
Hvað kemur það mér við að þú
hafir ekkert betra við tíma þinn
að gera en að hlaupa maraþon?
Hvað með friðhelgi sófakart-
öflunnar? Aðgát skal höfð í
nærveru sálar. Veit fólk ekki
hvernig fór fyrir Pheidippidesi?
Ekki ætlast til að ég standi upp
af sófanum mínum og mæti í
jarðarförina þína þegar þú færð
hjartaáfall og deyrð löngu áður
en skáparnir þínir eru orðnir
fullir af drasli.
Hippsteraskeggið:
Íslensk hjarðhegðun hefur ekki
verið jafnloðin síðan lopapeysan
gekk í endurnýjun lífdaga.
Og talandi um hjarðhegðun:
Vinsældavagninn. Það eru allir
komnir um borð. Jesús er orðinn
drusla, Bubbi er orðinn Pírati …
Hvað verður það næst? Brynjar
Níelsson gerist femínisti.
Sjálfshjálparbækur um núvitund:
Ég myndi kaupa þær, brenna
þær og dansa kringum bálköst-
inn án þess að njóta andartaks-
ins. Krafan um núvitund er
orðin svo hávær og andartakið
sem ætlast er til að við njót-
um svo óendanlega lítið að allt
stefnir í að það falli senn saman
undan eigin massa svo úr verður
risastórt svarthol í miðju há-
glansa-eldhúsinu í Garðabænum
sem sogar í sig allar iittala-skál-
arnar og Royal Copenhagen-
stellið uns ekkert er eftir annað
en fortíð og framtíð.
Það eina sem er verra …
… en sjálfshjálparbækur eru
sjálfshjálparráð á Facebook.
Einn Facebook-vina minna deildi
með mér eftirfarandi ráði í vik-
unni: „Ef eitthvað er ekki eins
og það á að vera, lagaðu það. En
æfðu þig í að hafa ekki áhyggjur,
áhyggjur laga ekki neitt.“ Þetta
væri kannski ágætis ábending
um hvernig skal höndla lífs-
hamingju ef hún kæmi ekki frá
Ernest Hemingway, drykkfelld-
um og skapþungum rithöfundi
sem var fjórum konum lélegur
eiginmaður og skaut sig að end-
ingu í hausinn.
Auglýsingastofur:
„Hún áorkaði því sem allar
góðar auglýsingar áorka; að
framkalla í brjóstinu kvíða sem
aðeins verður lægður með kaup-
um.“ Þannig fangaði rithöfund-
urinn David Foster Wallace heit-
inn kjarna auglýsingabransans.
Ef það væru ekki til auglýs-
ingastofur væru ekki til aug-
lýsingar. Ef það væru ekki til
auglýsingar þyrftum við ekki
sjálfshjálparbækur. Eða næst-
um því.
Og síðast en ekki síst:
Hvað myndi ég láta hverfa með
peningunum sem Framsóknar-
flokkurinn gaf mér í gær? Björn
Inga Hrafnsson. Því ef Björn
Ingi Hrafnsson heldur áfram
að kaupa og gelda alla fjölmiðla
sem voga sér að reka við í átt að
Framsóknarflokknum verður
ekkert bitastætt lesefni eftir til
að slóra yfir í vinnunni.
Frúin í Hamborg og hamingja framsóknarmanna
Leikurinn „Hvað
gerðirðu við pening-
inn sem frúin í Hamborg
gaf þér í gær?“ verður
vafalaust leikinn í hinum
fjölmörgu umferðarstíflum
sem þjaka munu ferða-
langa. En hvernig væri
að flikka upp á þennan
útjaskaða leik? Spila hann
í anda Björns Inga og veifa
seðlunum af uppátækja-
semi. Leikurinn gæti fengið
heitið: „Hvað ætlarðu að
láta hverfa með pening-
unum sem Framsóknar-
flokkurinn gaf þér í gær?“
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
B
-C
9
F
4
1
5
9
B
-C
8
B
8
1
5
9
B
-C
7
7
C
1
5
9
B
-C
6
4
0
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K