Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 38
15. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 18 „Myndirnar á hátíðinni eru vandaðar og allar nýlegar nema Hrafninn flýgur sem verður sýnd í dag í framhaldi af vinnustofu um samstarf Íslendinga og Svía í kvikmyndaiðnaðinum,“ segir Ilmur Dögg Gísladóttir, kynn- ingar- og verkefnastjóri í Nor- ræna húsinu, um norrænu kvik- myndahátíðina sem þar er að hefjast. Ilmur segir helstu stjörnur norrænnar kvikmyndagerðar sækja okkur heim, þar á meðal einn aðalleikara dönsku þátta- raðarinnar 1864, Jakob Oftebro. Aðrir gestir eru Morten Kirkskov, höfundur bókarinn- ar Kapgang sem sam- nefnd mynd byggist á, og Tuomas Kyrö, höf- undur bókar sem myndin The Grump byggist á. Þeir verða báðir með spjall eftir sýningu myndanna. „Grænlenska myndin Eskimo Diva hefur sérstöðu, bæði er hún sú eina frá Grænlandi og eina heimildarmynd hátíðarinnar,“ segir Ilmur. „Diva var frumsýnd í Nuuk núna 11. apríl og kemur beint hingað. Leikstjórinn Lene Stæhr og Nuka Bisgaard, söguhetja myndarinnar, koma líka. Bis- gaard er brautryðjandi á Græn- landi því hann á frumkvæðið að fyrstu Gay Pride-göngunni þar og myndin fjallar um reisu hans um Grænland. Hann situr fyrir svörum eftir sýninguna á morg- un.“ Hver mynd verður sýnd tvisv- ar á hátíðinni sem stendur í viku og ókeypis er inn, bæði á þær og málþingið. gun@frettabladid.is ★★★★★ Citizenfour LEIKSTJÓRN OG HANDRIT: Laura Poitras KLIPPING: Matthilde Bonnefoy AÐALHLUTVERK: Edward Snowden, Glenn Greenwald, William Binney, Jacob Appelbaum, Ewin MacAskill Þú skalt gera þér grein fyrir að héðan í frá eru hver landamæri sem þú ferð yfir, hver einustu kaup sem þú gerir, öll símtöl sem þú átt, allir fjarskiptaturnar sem þú kannt að eiga leið hjá, allir vinir þínir, hver einasta grein sem þú skrifar, vefsíða sem þú ferð á og tölvupóstur og pakkar sem þú sendir í höndum kerfis sem er ótakmarkað í gagnaöflun sinni þrátt fyrir að varnir þess séu það ekki. Þessi orð eru fengin úr kvik- mynd Potras þar sem hún vitnar í bréf sem bandaríski uppljóstr- arinn Edward Snowden sendir henni áður en tökur á Citizenfour hefjast og eru lýsandi fyrir inni- hald myndarinnar. Þetta er heim- ildarmynd, en til þess að komast sem næst kviku væri líklega rétt- ast að kalla myndina heimildar- trylli. Hún er nefnilega fræðandi og ógnvekjandi í senn. Citizenfour er lokahlutinn í þríleik Poitras sem fjallar um Bandaríkin í kjölfar árásanna á tvíburaturnana 2001 og hvernig barátta Bandaríkjamanna gegn hryðjuverkum hefur orðið til þess að þeir hafa lagt ofuráherslu á eftirlit og eftirlitsaðgerðir. Alsjá- in er rafrænn raunveruleiki. Flestir kannast við sögu Snowd- ens upp að vissu marki en það er eitt að kannast við hluti og annað að sjá virkilega hvernig þeir gerð- ust. Myndin er tekin upp í heim- ildarmyndastíl sem kallast á við franska sannleiksbíóið þar sem tökumaður lætur lítið fyrir sér fara. Þetta er eins konar fluga- á-vegg-nálgun sem hefur þau áhrif að áhorfanda finnst eins og hann sé að guða á glugga lífsins. Á stundum er upptakan lítið eitt groddaraleg líkt og um heima- vídjóupptöku sé að ræða. Þysj- að er snögglega inn eða út, og í stað þess að klippa á milli pers- óna í tvenndar skotum er hrein- lega skimað snögglega á milli. Poitras vinnur á vitsmunalegan hátt úr klippingum þar sem hún sýnir fram á lygar og þversagn- ir ýmissa ráðamanna með skeyt- ingunni einni saman. Það er ekki verið að eyða miklu púðri í upp- stillingar, sem er ákveðin fagur- fræði í sjálfu sér. Fyrir vikið er eins og heimildargildið aukist, því það sem er ekki (of) uppstillt hlýt- ur hreinlega að vera meira satt. Að því sögðu er einnig hægt að halda því fram að fagurfræðileg naum- hyggja myndarinnar þjóni þeim tilgangi að undirstrika aðalatriðin. Það eru umfram allt upplýsingarn- ar sem skipta máli en ekki útlitið. Grunnur myndarinnar liggur í Snowden sjálfum og því sem hann hefur að segja. Hann birtist sem æðrulaus persóna sem blöskr- ar eftirlitsaðgerðir stjórnvalda og hvernig þau brjóta á tjáning- ar- og persónufrelsi einstaklings- ins. Samviska hans býður honum ekki að sitja aðgerðalaus og hann ákveður að gera eitthvað í málun- um. Upptökurnar af Snowden eiga sér flestallar stað inni á hótelher- bergi hans þar sem hann hefur komið sér fyrir ásamt blaðamönn- um í því skyni að opinbera upp- lýsingar sem hann hefur komist yfir í störfum sínum fyrir Banda- rísku þjóðaröryggisstofnunina. Það sem Snowden ljóstrar upp er ótrúlegra en nokkur lygasaga og sendir áhorfendur beinustu leið inn í skáldsögu George Orwell, 1984. Stóribróðir er að fylgjast með okkur öllum, alltaf, alls staðar og Snowden hefur gögnin til þess að sanna það. Að því sögðu er rétt að taka fram að myndin er engan veginn laus við dramatíseringu. Það er undirspil á köflum, þótt lítið sé. Við höfum aðalleikara, Edward Snowden, Glen Greenwald og Lauru Poitras, og þétt byggða frá- sagnarframvindu. Sögusviðið er alþjóðlegt, komið er við í Hong Kong, Berlín, London, Brussel, Ríó og víðar. Í raun er myndin eins og harðasti kaldastríðsdekkari, nema í stað þess að togstreitan sé milli austurs og vesturs eru átökin milli Stórabróður og mannsins á göt- unni, og í stað þess að barist sé um bombuna snýst allt um upplýsinga- öflum. Upplýsingar eru hættulegri en sprengjuefni. Öðrum þræði fjallar mynd- in líka um rannsóknarblaða- mennsku, um frelsi, rétt og mikil- vægi þess að fjölmiðlar geti sinnt aðhaldshlutverki sínu sem fjórða vald; um mikilvægi sjálfstæðr- ar blaðamennsku og hversu við- kvæmir stóru fjölmiðlarnir geta verið gagnvart valdhöfum. Eins og kemur fram er hlutverk blaða- manna sem reyna að upplýsa mis- ferli stjórnvalda í „lýðræðisríkj- um“ Vesturlanda ekki áhættulaust. Poitras og Greenwald hafa til dæmis orðið fyrir ítrekuðu áreiti stjórnvalda, geta ekki ferðast til heimalands síns Bandaríkjanna og neyðast til þess að vinna eftir leynilegum leiðum með dulkóðuð gögn. Áhorfendur eru upplýstir á sama tíma og þeir eru skólaðir í þeim vinnubrögðum sem þarf að temja sér og í ljósi þess má einnig líta á myndina sem ákveðna útgáfu af byltingarbíói í anda þriðju kvik- myndarinnar. Citizenfour er áreiðanlega ein- hver merkasta heimildarmynd sem framleidd hefur verið. Hún er vel unnin í alla staði, margradda, þrususpennandi og breytir því hvaða augum maður lítur heiminn. Það ættu allir að sjá þessa mynd, helst tvisvar, því maður hefur alltaf gott af því að láta segja sér þegar keisarinn er ekki í fötum. Sérstaklega ef það er satt. Kjartan Már Ómarsson NIÐURSTAÐA: Citizenfour er heimildarmynd sem sýnir hvernig allir borgarar hins vestræna heims eru undir sífelldu rafrænu eftirliti stjórnvalda. Hún er vel gerð og allt í senn óhugnanlegt, fræðandi og nauðsynlegt áhorf. Stóri bróðir fylgist með CITIZENFOUR Edward Snowden og unnusta hans, Lindsay Mills, í Rússlandi. Nýtt úr norrænum kvikmyndaheimi Á kvikmyndahátíð sem hefst í dag í Norræna húsinu verða ellefu myndir sýndar. Einnig verður vinnustofa og spjall. Aðgangur er ókeypis að öllum viðburðum. ESKIMO DIVA Nuka Bisgaard fór á flakk um Grænland að kynna Gay Pride-göngu í Nuuk. PERSÓNUR Kapgang er önnur tveggja danskra mynda á hátíðinni. VERKEFNASTJÓRINN „Myndirnar eru allar nýlegar nema Hrafninn flýgur,“ segir Ilmur Dögg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sýndar verða kvikmyndirnar: Kapgang (DK), Stille hjerte (DK), Kraftidioten (NO), Børning (NO), Natt til 17 (NO), Hrafninn flyger (SV/IS), Stockholm Stories (SV), Återtreffen (SV), Hallonbatsflyktningen (F/SV), The Grump (F) og Eskimo Diva (GR). Nánast allar kvikmyndirnar eru sýndar með enskum texta og er frítt inn á alla viðburði hátíðarinnar. Opið er til 20:00 á AALTO Bistro öll sýningarkvöld. Nánari upplýsinar á norraenahusid.is NORRÆNA HÚSIÐ KYNNIR: MENNING Græn- lenska myndin Eskimo Diva hefur sérstöðu, bæði er hún sú eina frá Græn- landi og eina heimildarmynd hátíðarinnar 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 C -8 9 8 C 1 6 3 C -8 8 5 0 1 6 3 C -8 7 1 4 1 6 3 C -8 5 D 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.