Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 24
FÓLK|FERÐIR PARÍS Pont Des Arts-brúin í París. Yfirvöld eru mikið á móti hengilásum elskenda, enda skemma þeir brýrnar. Saga ástarlásanna nær þó lengra aftur á bak í tímann en til 2008. Fyrst er vitað um tilurð slíkra lása í Serbíu í fyrri heimsstyrjöldinni. Pör hittust leynilega á brú og hengdu lás með nöfnum sínum á handrið til að innsigla ástina áður en kærastinn hélt í stríðið. Ástarlásar voru ekki algengir eftir stríð en árið 2007 fóru pör að setja hengilása með nöfnum sínum á hina frægu brú Ponte Milvio í Róm. Það var gert til að herma eftir sögupersónum í ítölsku kvikmyndinni Ho voglia di te (I Want You) sem frumsýnd var árið 2007 en myndin var gerð eftir sögu Federico Moccia. Lykl- unum var síðan hent í Tíber. Þyngd lásanna var orðin svo mikil á brúnni að borgarstarfsmenn hafa þurft að fjarlægja þá. Það sama er að gerast í öðrum borgum eftir að æðið hófst. Lásar hafa meðal annars verið fjarlægðir af brúm í París vegna þyngsla. Strax árið 2010 fóru borgaryfirvöld þar að lýsa yfir áhyggjum vegna lás- anna og biðja fólk að hætta þessum ósið. Á það var ekki hlustað og á síðustu árum hafa lásarnir verið fjarlægðir og plastspjöld sett í staðinn á brúarhand- riðið til að vonlaust sé að hengja á það. LÁSARNIR SKEMMA Margir virðast halda að þetta sé sérstök Parísar- hefð þar sem lásar hanga á öllum brúarhandriðum og jafnvel á grindverkum almenningsgarða. Parísar- búar sverja þetta æði af sér þótt borgin sé gjarnan nefnd borg ástarinnar. Í Flórens á Ítalíu voru 5.500 ástarlásar fjarlægðir af hinni þekktu brú Ponte Vecchio. Sömuleiðis eru brýrnar í Feneyjum í mikilli hættu og stöðugt er verið að taka lásana burt en nýir koma þó enda- laust í staðinn. Talað er um að setja háar sektir þar í borg svo fólk láti af þessum ósóma. Í Dublin á Írlandi voru hengilásarnir fjarlægðir af tveimur brúm árið 2012. Brýrnar voru farnar að skemmast undan þunganum eins og aðrar frægar, gamlar brýr. Borgaryfirvöld hafa tilkynnt að allir lásar, sem hengdir verða á brúarhandrið, verði fjar- lægðir. HERFERÐ GEGN BRÚARÁSTINNI Í Þýskalandi er sömuleiðis í gangi herferð til að fjarlægja lásana, enda ryðga þeir og skemma út frá sér. Lásana má sjá í flestum borgum Þýskalands og sömuleiðis á Spáni. Í Moskvu hefur ástarlása- æðið tekið sig upp á Luzhkov-brú. Til að forðast skemmdir á brúarhandriðinu hafa yfirvöld sett upp málmtré sem ætluð eru fyrir lásana. Nú þegar eru hundruð þúsunda lása á þessum málmtrjám. Nýleg rússnesk hefð er að brúðhjón kyssi brú á brúð- kaupsdaginn til að innsigla ástina. Ástarlásaæðið hefur farið hratt um Evrópu á undanförnum árum og flestar stærri borgir eru með yfirfullar brýr af hengilásum. Í Asíu er þessa farið að gæta einnig og meira að segja á Íslandi. Á heimsálfubrúnni á Reykjanesi má sjá marga ástarlása. Fréttir berast frá öðrum heimsálfum að þar hafi æðið tekið sig upp. Á Brooklyn-brú í New York, í Kanada, í Ástralíu og víðar um heiminn. Það má því með sanni segja að ástin fari sigurför um heiminn. ÁSTIN ÓVINSÆLA LÁSAÆÐI Frá árinu 2008 hefur gengið hálfgert ástarlásaæði yfir Evrópu. Allar helstu brýr í stórborgum eru þéttsettar hengilásum. Lásarnir eru tákn um eilífa ást og lyklinum er gjarnan hent út í ána. Það eru þó ekki allir hrifnir af þessu uppátæki sem hefur kostað sveitarfélög mikinn pening. Íslendingar eiga líka sína lásabrú á Reykjanesi þar sem heimsálfurnar mætast. REYKJANES Brúin milli heimsálfa á Reykjanesi er skreytt ástar- lásum. MYND/VILHELM Á ÍSLANDI Hér sjást lásarnir á Reykjanesi betur. Mögulega má finna ástarlása á brúm víðar um landið. MYND/VILHELM KÖLN Ástarlásar í Köln. Víða í þýskum borgum má sjá ástarlása á brúarhandriðum og eru margir með áhyggjur vegna þess. *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t ok tó be r– de se m be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 C -A 7 2 C 1 6 3 C -A 5 F 0 1 6 3 C -A 4 B 4 1 6 3 C -A 3 7 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.