Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 8
15. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is EFNAHAGSMÁL Ekki er hægt að greina að sykurskatturinn hafi haft veruleg áhrif á neyslu þann stutta tíma sem skattheimtan stóð yfir. Áhrif sykurskattsins á verðlag skattlagðra vara voru of lítil fyrir neytendur til að taka eftir þeim í flestum tilvikum, sem kann að skýra hvers vegna neysluáhrifin urðu lítil. Þetta varð til þess að hagnaður ríkis- ins af skattlagningunni varð meiri en upphaf- lega var gert ráð fyrir eða um einn milljarður í stað 800 milljóna. Þetta kom fram í nið- urstöðum rannsóknar Rannsóknarseturs versl- unarinnar á áhrifum sykurskatts sem var lagður á 1. mars 2013 og afnuminn um síðustu áramót. Niður stöðurnar voru kynntar í gær og gerðar aðgengilegar á vefsíðu Rannsóknarsetursins. Tilgangur rannsókn- arinnar var að kanna hvort yfirlýst markmið með skatt- heimtunni hefðu náðst og auk þess að kanna hvaða möguleg áhrif hún hefði haft á innflytjendur. Emil Karlsson, forstöðumaður Rannsókn- arseturs verslunarinnar, sagði að markmiðin hefðu aðallega verið tvö: „Þau voru annars vegar að breyta neyslu fólks þannig að það færi úr óhollustu og sykri yfir í meiri holl- ustu og hins vegar að auka tekjur ríkissjóðs.“ Verð og magn í smásölu á gos- drykkjum, kexi, morgunkorni, strá- sykri og mjólkurvörum var skoð- að. Rannsóknin leiddi í ljós að skatturinn hafði lítil áhrif á verðlag þeirra tegunda morgunkorns, kex og gos- drykkja sem voru skoðað- ar en mjólkurvara hækk- aði strax í verði. Þar sem skattur var einnig lagður á sætuefni í samræmi við sætu magn þeirra dró það úr mögu- leikum fólks til að forðast skattinn og breyta neysluvenjum sínum. Árni Sverrir Haf- steinsson kynnti niðurstöðurn- ar. Hann sagði að áhrifa sykurskatts- ins hefði ekki orðið vart fyrr en rúmu ári eftir að hann var lagð- ur á. Ástæðan er sú að kaupmenn keyptu inn sykraðar vörur í gríðarlegu magni mánuði áður en skattheimta hófst. Sykur úti í búð var því seldur undir kostnaðarverði. „Það var þess vegna ekki fyrr en síðasti innflytjandinn kláraði sínar birgðir að smásöluverð fór upp fyrir kostnaðarverð, það er kostnaðinn við að flytja sykurinn frá útlöndum.“ - sgg Sykurskattur breytti ekki neysluvenjum Niðurstöður rannsóknar á áhrifum sykurskatts gerðar opinberar. Neysluáhrifin voru lítil. Almenningur hélt áfram að kaupa sykraðar vörur sem varð til þess að hagnaður ríkissjóðs fór fram úr áætlun. SYKURSKATTUR Árni Sverrir Hafsteinsson segir skattinn ekki hafa skilað tilskildum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Fimmtugur maður frá Noregi var stöðvaður af lögreglu við komuna til landsins í gærmorgun. Stundin.is greindi fyrst frá málinu en þar kom fram að maðurinn sé meðlimur í mótorhjólasamtökunum Devil’s Choice. Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir að manninum hafi verið meinaður aðgangur að landinu á grundvelli brottvísunarheimildar vegna tengsla hans við ólögleg samtök. Nokkur slík mál hafi komið upp á þessu ári. - vh Meðlimur í mótorhjólasamtökunum Devil’s Choice: Maður stöðvaður í Leifsstöð STÖÐVAÐUR Maðurinn fékk ekki að koma til landsins þar sem hann er meðlimur í ólöglegum samtökum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 D -B 1 C C 1 6 3 D -B 0 9 0 1 6 3 D -A F 5 4 1 6 3 D -A E 1 8 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.