Fréttablaðið - 15.04.2015, Qupperneq 8
15. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
EFNAHAGSMÁL Ekki er hægt að
greina að sykurskatturinn hafi
haft veruleg áhrif á neyslu þann
stutta tíma sem skattheimtan stóð
yfir. Áhrif sykurskattsins á verðlag
skattlagðra vara voru of lítil fyrir
neytendur til að taka eftir
þeim í flestum tilvikum,
sem kann að skýra hvers
vegna neysluáhrifin
urðu lítil. Þetta varð til
þess að hagnaður ríkis-
ins af skattlagningunni
varð meiri en upphaf-
lega var gert ráð fyrir
eða um einn milljarður í
stað 800 milljóna.
Þetta kom fram í nið-
urstöðum rannsóknar
Rannsóknarseturs versl-
unarinnar á áhrifum
sykurskatts sem var
lagður á 1. mars
2013 og afnuminn
um síðustu áramót.
Niður stöðurnar voru
kynntar í gær og gerðar
aðgengilegar á vefsíðu
Rannsóknarsetursins.
Tilgangur rannsókn-
arinnar var að kanna
hvort yfirlýst markmið með skatt-
heimtunni hefðu náðst og auk þess
að kanna hvaða möguleg áhrif hún
hefði haft á innflytjendur. Emil
Karlsson, forstöðumaður Rannsókn-
arseturs verslunarinnar, sagði að
markmiðin hefðu aðallega verið tvö:
„Þau voru annars vegar að breyta
neyslu fólks þannig að það færi úr
óhollustu og sykri yfir í meiri holl-
ustu og hins vegar að auka tekjur
ríkissjóðs.“
Verð og magn í smásölu á gos-
drykkjum, kexi, morgunkorni, strá-
sykri og mjólkurvörum var skoð-
að. Rannsóknin leiddi í ljós að
skatturinn hafði lítil áhrif
á verðlag þeirra tegunda
morgunkorns, kex og gos-
drykkja sem voru skoðað-
ar en mjólkurvara hækk-
aði strax í verði. Þar sem
skattur var einnig lagður
á sætuefni í samræmi
við sætu magn þeirra
dró það úr mögu-
leikum fólks til að
forðast skattinn og
breyta neysluvenjum
sínum.
Árni Sverrir Haf-
steinsson kynnti
niðurstöðurn-
ar. Hann sagði að
áhrifa sykurskatts-
ins hefði ekki orðið
vart fyrr en rúmu ári
eftir að hann var lagð-
ur á. Ástæðan er sú að
kaupmenn keyptu inn
sykraðar vörur í gríðarlegu magni
mánuði áður en skattheimta hófst.
Sykur úti í búð var því seldur undir
kostnaðarverði. „Það var þess vegna
ekki fyrr en síðasti innflytjandinn
kláraði sínar birgðir að smásöluverð
fór upp fyrir kostnaðarverð, það er
kostnaðinn við að flytja sykurinn
frá útlöndum.“ - sgg
Sykurskattur
breytti ekki
neysluvenjum
Niðurstöður rannsóknar á áhrifum sykurskatts gerðar
opinberar. Neysluáhrifin voru lítil. Almenningur hélt
áfram að kaupa sykraðar vörur sem varð til þess að
hagnaður ríkissjóðs fór fram úr áætlun.
SYKURSKATTUR Árni Sverrir Hafsteinsson segir skattinn ekki hafa skilað tilskildum
árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Fimmtugur maður frá Noregi var stöðvaður af lögreglu við
komuna til landsins í gærmorgun. Stundin.is greindi fyrst frá málinu en
þar kom fram að maðurinn sé meðlimur í mótorhjólasamtökunum Devil’s
Choice. Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir að manninum hafi verið
meinaður aðgangur að landinu á grundvelli brottvísunarheimildar vegna
tengsla hans við ólögleg samtök. Nokkur slík mál hafi komið upp á þessu
ári. - vh
Meðlimur í mótorhjólasamtökunum Devil’s Choice:
Maður stöðvaður í Leifsstöð
STÖÐVAÐUR
Maðurinn fékk
ekki að koma
til landsins
þar sem hann
er meðlimur
í ólöglegum
samtökum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-B
1
C
C
1
6
3
D
-B
0
9
0
1
6
3
D
-A
F
5
4
1
6
3
D
-A
E
1
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K