Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 6
15. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 NÍGERÍA Hundruð manna komu saman í höfuðborginni Abuja í Nígeríu í gær til að minna á meira en 200 stúlkur sem liðsmenn Boko Haram rændu úr skóla í Chibok fyrir réttu ári, þann 14. apríl 2014. Ættingjar stúlknanna krefjast þess að stjórnvöld geri meira til þess að frelsa stúlkurnar. Víða um heim var einnig efnt til athafna til að minna á stúlkurnar, sem nú hafa flestar verið í heilt ár í haldi þessa pólitíska sértrúar- safnaðar sem hefur lagt undir sig stór svæði í norðaustanverðri Níg- eríu. Bæði Amnesty International og UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sendu frá sér ítarlegar skýrslur í gær um ástandið í Níg- eríu. Skýrsla Amnesty nefnist „Verk- efni okkar er að skjóta, slátra og drepa“ og fjallar um ógnarstjórn Boko Haram. Undanfarin fimm ár hafa liðsmenn Boko Haram drepið þúsundir manna, þar af 4.000 á síðasta ári og að minnsta kosti 1.500 manns það sem af er þessu ári. Samtökin hafa rænt að minnsta kosti tvö þúsund mönn- um og hrakið milljón manns frá heimilum sínum. Voðaverk sam- takanna hafa haft gríðarleg áhrif á líf milljóna manna. Skýrslan frá UNICEF nefnist „Horfin barnæska“ og þar er sjón- um beint sérstaklega að áhrifum þessa ógnarástands á börn. Þar kemur fram að meira en 800 þús- und börn hafa hrakist að heiman á þessum svæðum. - gb Víða um heim var þess minnst í gær að ár er liðið frá því að meira en 200 stúlkum var rænt í Nígeríu: Milljón börn á flótta undan Boko Haram MÓTMÆLI Í ABUJA Fjöldi fólks safnað- ist saman í gær og skoraði á Muhamm- adu Buhari, nýkjörinn forseta, að grípa til aðgerða. NORDICPHOTOS/AFP FERÐAÞJÓNUSTA Innheimta gisti- nátta skatts hefur skilað 670 millj- ónum króna síðan gjaldtakan hófst í byrjun árs 2012. Úthlutaðir styrkir úr Framkvæmdasjóði ferðamanna- staða frá 2012 til 2015 eru rétt innan við 1,5 milljarða króna. Í svari fjármála- og efnahagsráð- herra við fyrirspurn frá Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylking- arinnar, um inn- heimtan gisti- náttaskatt kemur fram að fyrsta heila árið sem gistináttagjald- ið var lagt á gaf það 195 milljón- ir. Árið 2013 voru milljónirnar 222 og 262 í fyrra. Tekjur af gjaldinu útdeilast á fjár- lögum að þremur fimmtuhlutum til Framkvæmdasjóðsins og tveimur fimmtuhlutum til ráðstöfunar fyrir þjóðgarða og friðlýst svæði. Kristján vekur athygli á því í fréttatilkynningu að skatturinn er aðeins 100 krónur og segir upplýs- ingarnar vera mikilvægar í sam- hengi við frumvarp iðnaðarráð- herra um náttúrupassa sem er til umfjöllunar í atvinnuveganefnd Alþingis. „Það þyrfti ekki að hækka gisti- náttagjaldið mikið til að ná inn tekjum sem náttúrupassinn á að skila á ári. Kannski 300 til 400 krón- ur sem væri einfaldasta leiðin fyrir þingið til að bregðast við aðkallandi vanda strax,“ segir Kristján sem vill skoða blandaða leið; gistigjald til viðbótar við gjaldtöku á bíla- stæðum við helstu náttúruperlur. Hann vill jafnframt að hluti tekn- anna renni til viðkomandi sveitarfé- lags, ólíkt því sem nú er. Þannig yrði komið til móts við kostnað sveitar- félaganna, sem er allnokkur án þess að tekjur komi á móti. Kristján telur útilokað að náttúru- passinn verði afgreiddur fyrir þing- lok, og aldrei nema í mikið breyttri mynd. Heimildir Fréttablaðsins innan stjórnarflokkana taka undir það sjónarmið. Í hans stað verði hins vegar að finna leið til að afla tekna til uppbyggingar, og er gisti- náttagjald títt nefnt. Á vef atvinnuvega- og nýsköp- unar ráðuneytisins segir að gistinátt- askatti sé helst fundið til foráttu að tekjurnar hafa ekki verið nægjan- legar og yrði hann hækkaður veru- lega gæti það haft áhrif á eftirspurn. Jafnframt þyki ókostur að skattur- inn leggst aðeins á eina grein ferða- þjónustunnar. svavar@frettabladid.is Skattur á gistinætur skilað 670 milljónum Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur úthlutað 1,5 milljörðum í styrki á þremur árum. Tæpur helmingur fjárins er kominn frá 100 króna gistináttaskatti. KRISTJÁN MÖLLER Á FERÐINNI 300 króna gistináttagjald myndi skila 800 milljónum– náttúrupassi á að skila milljarði á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UMHVERFISMÁL Gróðureyðing á Heimaey sökum veðurfars veldur umhverfis- og skipulagsráði Vest- mannaeyja miklum áhyggjum. „Ljóst er að ákveðin svæði eru illa farin og þarfnast sértækra aðgerða svo koma megi í veg fyrir frekari skemmdir,“ segir í bókun ráðsins. Starfsmenn Vestmanna- eyjabæjar hafi undanfarin sumur unnið að úrbótum en nú sé ljóst að kalla þurfi fleiri aðila að verk- inu. Nefnir ráðið þar til sögunnar Landgræðsluna, félagasamtök og aðra áhugasama, bæði hópa og ein- staklinga. „Ráðið felur starfsmönn- um sviðsins að gera áætlun um aðgerðir og útvega tilskilin leyfi yfirvalda til að grípa til þeirra aðgerða sem þurfa þykir. Þá hvet- ur ráðið Eyjamenn til að ganga um af virðingu við náttúruna og forð- ast allt óþarfa rask,“ segir í bókun ráðsins eftir vettvangsferð þar sem skoðaðir voru helstu staðir sem hafa orðið fyrir náttúrulegu raski í Heimaey. - gar Umhverfisráð Vestmannaeyja segir veðurfar hafa valdið gróðurskemmdum: Eyjamenn forðist óþarfa rask Í HEIMA- KLETTI Miklar áhyggjur eru af gróðri eftir vettvangs- ferð umhverfis- ráðs. MYND/ÓSKAR P. FRIÐ- RIKSSON SVONA ERUM VIÐ 71.475 gistinætur voru skráðar í skálum í óbyggðum hér á landi á síðasta ári. Þar af voru 17.239 gistinætur skráðar á Íslendinga í bókum hag- stofunnar, en 54.236 á útlendinga. Þetta er töluverð aukning frá árinu 2010 þegar gistinæturnar í skálum í óbyggðum voru 50.517, þar af 22.270 Íslendingar en 28.247 útlendingar. Aðalfundur Félags íslenskra rafvirkja Aðalfundur Félags íslenskra rafvirkja verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl kl. 18 að Stórhöfða 27 1.hæð, í sal Rafiðnaðarskólans. Gengið inn Grafarvogsmegin. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á ársfund Stafa, lífeyrissjóðs 3. Lagabreytingar 4. Önnur mál Kveðja Stjórnin Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is Bir t m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Tenerife Frá kr. 220.900 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 220.900 á Villa Adeje Beach m.v. 2 fullorðna í íbúð. Fleiri gististaðir í boði. Fararstjórar: Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir Vorferð eldri borgara 26. apríl í 22 nætur Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Í svari Ferðamálastofu til Fréttablaðsins kemur fram að frá því að Fram- kvæmdasjóðurinn var settur á stofn hefur 305 styrkjum að upphæð 1,5 milljarðar króna verið úthlutað. Úthlutanir fjármagnaðar með gistinátta- gjaldinu nema 644 milljónum. Í mars og apríl árið 2013 var þess utan sérstök úthlutun til þjóðgarða annars vegar og úthlutun tilkomin vegna fjárfestingaráætlunar þáverandi ríkisstjórnar hins vegar. Í maí 2014 var svo aukaúthlutun í brýn verkefni vegna öryggismála og uppbyggingar göngustíga. Þessir liðir skýra 805 millj- ónir af því fé sem hefur verið varið til verkefna úr sjóðnum. 305 styrkjum úthlutað á þremur árum 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 D -D E 3 C 1 6 3 D -D D 0 0 1 6 3 D -D B C 4 1 6 3 D -D A 8 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.