Fréttablaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 38
Í dag kemur út myndband
við lagið Wait For Me af plöt-
unni Destrier, annarri breið-
skífu hljómsveitarinnar Agent
Fresco. Fyrir söngvara sveitar-
innar, Arnór Dan Arnarson, er
þetta mikilvægasta lagið á plöt-
unni, samið til fjölskyldu hans og
myndbandið er búið til úr göml-
um myndbrotum af fjölskyldunni
sem erfitt var að fara í gegnum.
Bíðið eftir mér
Hugmyndin að laginu kviknaði
þegar Arnór var á tónleikaferða-
lagi með Ólafi Arnalds og bað um
að fá að tileinka lag á tónleikun-
um.
„Ég byrjaði að tala dönsku,
var með einhvern brandara og
svo komu bara tilfinningar sem
ég var búinn að halda niðri og
ég fór bara að gráta upp á sviði,”
segir Arnór og hlær. „Ég vildi
svo mikið tala um tímann og
hvað hann er fyndið hugtak. Ég
er búinn að búa á Íslandi í átta ár
og þegar maður kemur til baka
fattar maður að tíminn stóð ekki
í stað og hvað það er margt sem
maður missti af.“
Fjölskylda Arnórs er búsett í
Danmörku og á meðan hann var
á Íslandi höfðu systur hans eign-
ast börn og góður vinur hans
misst foreldra sína. Það sem sat
í honum var að geta ekki verið
þátttakandi og sýna þeim sem
honum þótti vænt um stuðning.
Arnór segir að í kjölfar þess-
arar upplifunar hafi þær tilfinn-
ingar sem hann vildi setja í lagið
komið skýrt fram. „Tíminn hefur
ekki staðið í stað, ég veit ég mun
fara aftur til baka til þeirra,
ég veit bara ekki hvenær. Bara
svona, bíðið eftir mér.“
Mikilvægasta lagið á plötunni
Myndbandið við lagið skipti
Arnór miklu máli þar sem lagið
var honum dýrmætt og vildi hann
að myndbandið endurspeglaði
það. „Fyrir mér er þetta mikil-
vægasta lagið á plötunni. Ég er
mega stoltur af hinum lögunum
auðvitað en þetta er bara falleg-
asta lagið og ég veit að það er um
fjölskylduna mína og hún er mér
allt.“
Eftir leit að einhverjum til
þess að gera myndbandið og hug-
myndavinnu um hvernig mynd-
bandið ætti að vera gert fann
Arnór loksins leiðina til þess að
gera það á þann hátt sem hann
vildi. Hann ákvað að nota fjöl-
skyldumyndefni sem móðir hans
hafði bjargað frá VHS-spólum og
yfir á stafrænt snið en myndefn-
ið eru persónulegar upptökur af
móður hans, systrum og föður,
sem lést árið 2006.
„Þá sá ég tækifæri til þess
að taka þessa DVD-diska sem
mamma bjargaði frá VHS þegar
pabbi dó og fara loksins í gegn-
um þá. Ég var ekki enn þá búinn
að því, það er bara erfitt, sem er
glatað af því þetta er falleg gjöf
og ég er ótrúlega þakklátur fyrir
hana. Það var enn þá erfitt þó að
það væru níu ár frá því pabbi dó.”
Við gerð myndbandsins naut
Arnór aðstoðar Gísla Þórs Brynj-
ólfssonar og Kára Jóhannssonar
við að klippa og vinna myndefn-
ið og er Arnór afar ánægður með
myndbandið.
„Fyrir okkur er þetta ótrúlega
skemmtilegt en ég held að ég hafi
náð að klippa þetta þannig að það
sé áhugavert og með takti. Mynd-
bandið er sett upp krónólógískt
og segir frá því þegar fjölskyldan
verður til. Það er alltaf nýtt líf að
birtast, til dæmis sónarmyndir.
Þannig að þetta hefði getað verið
bara gjöf til fjölskyldunnar en úr
varð myndband.“
Færir út mörkin
„Það hefur alltaf verið mark-
miðið með Agent Fresco að færa
út mörkin fyrir mig tilfinninga-
lega og auðvitað að leika mér
eins mikið og ég get með rödd-
ina, fara aðeins hærra og gera
aðeins meira rugl og öskra aðeins
meira. Og auðvitað fyrir strák-
ana líka að leika sér og gera eitt-
hvað sem er einfalt og blanda við
eitthvað ótrúlega flókið og púsla
því saman.“
Arnóri er mikilvægt að vera
einlægur í tónlistarsköpun
sinni. „Ég kann ekki annað en
að vera persónulegur. Það gerð-
ist snemma þegar ég var í hljóm-
sveit með bestu vinum mínum í
Danmörku, ég byrjaði þrettán
ára að leika mér í tónlist og þá
var maður alltaf að búa til sögur
og mér finnst það gaman og allt
það en þegar Agent Fresco byrj-
aði þá var ég bara kominn á það
stig að ég var að tala um eitthvað
sem var persónulegt, það er bara
miklu meiri vigt í því.“
Minn stríðshestur
Langan tíma tók að gera plötuna og
segir Arnór þann tíma hafa verið
erfiðan og jafnvel erfiðari en að
vinna plötuna A Long Time Listen-
ing, sem kom út árið 2010, en text-
arnir fjalla um andlát föður hans.
Á Destrier vann hann að því að
túlka reiðina og kvíðann sem vakn-
aði við líkamsárás sem hann varð
fyrir árið 2012.
„Líkamsárásin var byrjunar-
punktur, ég breytti öllu konsept-
inu. Ég var svo reiður og mig lang-
aði til þess að nýta það,“ segir hann
og bætir við: „Mér fannst svona
hundrað sinnum erfiðara að klára
þessa plötu, þetta var neikvæður
staður sem ég var á. Þá ætlaði ég
að túlka það og það var miklu erfið-
ara en ég bjóst við.“
Eftir að hafa endurskoðað plöt-
una ákvað Arnór að nota þær til-
finningarnar sem kviknuðu eftir
líkamsárásina, túlka reiðina og búa
til sögu og að hans sögn kom ekk-
ert annað til greina. „Mér leið bara
eins og það væri ótrúlega falskt ef
ég væri að gera eitthvað annað, ég
vildi gera ótrúlega jákvæða plötu
en það fór auð vitað bara til helvít-
is,“ segir hann og hlær.
Lögin samdi Arnór í samstarfi
við hina meðlimi hljómsveit-
arinnar, þá Þórarin Guðnason,
Vigni Rafn Hilmarsson og Hrafn-
kel Örn Guðjónsson. Hugmyndin
var að byrja á því að byggja eitt-
hvað upp sem síðar myndi deyja
hægt og rólega út, líkt og reiðin
og kvíðinn, og er nafn plötunnar
vísun í það.
„Það er þessi Destrier sem er
enska heitið yfir stríðshest. Plat-
an er minn stríðshestur.“
Vill tala um tabú
Arnór er ekki hræddur við það
að vera hreinskilinn og vill tala
opinskátt um hluti sem margir
gætu túlkað sem tabú.
„Ég vil tala um hluti sem eru
ekki þægilegir, mér líður eins og
ég sé latur ef ég geri það ekki,“
segir hann og vísar þá til hluta
á borð við dauðann og kvíða. „Ef
það er óþægilegt að tala um eitt-
hvað er það oftast vegna þess
að það er ekki búið að tala nógu
mikið um það.“
Kvíðinn sem hann glímdi við í
kjölfar líkamsárásarinnar hafði
ekki bara andleg áhrif heldur
einnig líkamleg.
„Ég missti röddina mína stans-
laust, svaf lítið og vissi ekkert
hvað var í gangi. Þá kom bara
í ljós að þetta var allt andlegt,“
segir Arnór og undirstrikar að
hann vilji vekja athygli á hvað
andleg líðan geti haft mikil áhrif
á líkamann.
Nú er ný plata að koma út og
við taka tónleikar, meðal annars
tónleikaferð um Evrópu í nóvem-
ber og desember, og er Arnór
spenntur fyrir hvernig viðtökur
Destrier mun hljóta. „Ég hlakka
til að komast að því hvernig hún
hljómar í eyrum þeirra sem hafa
ekki verið að búa hana til í þrjú
ár,“ segir hann að síðustu glaður
í bragði.
Alltaf markmið að reyna á mörkin
Í byrjun næsta mánaðar gefur hljómsveitin Agent Fresco út sína aðra breiðskífu, Destrier, og nýtt tónlistarmyndband er frumsýnt á Vísi í dag.
Gyða Lóa
Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
PERSÓNULEGT Önnur breiðskífa Agent Fresco kemur út þann 7. ágúst og í dag verður myndband við lagið Wait For Me frum-
sýnt á Vísi en Arnór segir lagið það mikilvægasta á plötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRIMARINÓ
AGENT FRESCO Hljómsveitin hefur verið starfandi frá árinu 2008 og eru hljóm-
sveitarmeðlimir þeir Þórarinn Guðnason, Arnór Dan, Hrafnkell Örn Guðjónsson og
Vignir Rafn Hilmarsson. MYND/MARINOTHORLACIUS
NAFN: Onika Tanya Maraj
LISTAMANNANAFN: Nicki Minaj
FÆDD: 8. desember, 1982
MAKI : Meek Mill
STAÐUR : Saint James, Trínidad
FRÆGIR Í
NÆRMYND
NICKI MINAJ
Þrátt fyrir að Nicki Minaj hafa verið fædd í
Trínidad þá ólst hún að mestu upp í Queens
í New York. Minaj vakti fyrst athygli árið
2007 og í kjölfarið skrifaði hún undir
samning við plötufyrirtækið Young Money
Entertainment. Fyrsta platan hennar bar
heitið Pink Friday en hún kom út árið
2010. Hún naut mikilla vinsælda og
komst hún í fyrsta sætið á Billboard-
listanum.
Minaj hefur vakið mikla athygli
fyrir útlit sitt og áhersluna sem hún
setur á líkamann sinn. Fyrstu árin
hennar á toppnum var hún yfirleitt
með litríkar hárkollur og í áberandi
búningum. Seinasta árið hefur
hún þó hætt að nota hárkollurnar og byrjað
að klæðast fötum eftir fremstu tískuhönnuði
heims. Nicki er hörð stuðningskona jafnréttis
kynjanna og hún hefur óspart látið til sín taka
þegar henni finnst brotið á sér eða öðrum.
Hún hefur unnið með miklum fjölda
listamanna á borð við Drake, Beyoncé, Chris
Brown og Lil Wayne. Minaj er talin vinsælasti
kvenkyns rappari heims. Hún var fengin til
þess að vera dómari í tólftu seríu American
Idol. Það vakti athygli hvað henni og með-
dómara hennar Mariuh Carey kom illa saman
og sauð oft upp úr á milli þeirra. Í lok árs 2014
hætti hún með kærasta sínum til margra ára
og byrjaði í kjölfarið með rapparanum Meek
Mill.
GLÆSILEG Nicki passar alltaf upp
á að aðdáendur sínir fái flotta
sýningu þegar hún kemur fram.
24. júlí 2015 FÖSTUDAGUR
LÍFIÐ
24. júlí 2015 FÖSTUDAGUR
2
3
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
D
-5
2
D
4
1
5
8
D
-5
1
9
8
1
5
8
D
-5
0
5
C
1
5
8
D
-4
F
2
0
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K