Fréttablaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 40
24. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 28 „Við munum kveikja á sérstökum reykelsum og einnig er ég með sérstakar skálar og te og mun kenna fólki hvernig á að hella upp á teið,“ segir Kaori Suto sem er hér í stuttri heimsókn hjá vin- konu sinni, Kristínu Garðarsdótt- ur keramiker. Kaori er einnig keramiker og kemur frá Japan þar sem hún býr í klaustursamfélagi ásamt eigin- manni sínum, sem er munkur. Í dag mun hún kenna áhuga- sömum hvernig á að bera sig að við það að laga te að japönskum sið. Um er að ræða sérstakt te sem heitir Matcha og er grænlit- að duft sem þeytt er í heitu vatni eftir ýmiss konar reglum sem eru hluti af aldagamalli hefð. Einnig mun hún fara yfir sögu hefðarinnar með gestum. Hluti af tegerðinni eru ýmiss konar fylgihlutir, sérstakar skálar, teþeytari, skeið til að mæla teið og reykelsi sem Kaori gerir sjálf og brennd eru til þess að skapa ákveðna stemningu á meðan á athöfninni stendur. „Teið er þeytt á vissan hátt í ákveðinn tíma og höndin sem þeytt er með er til dæmis þráð- bein á meðan, þetta er allt úthugsað og útpælt,“ segir Kristín en teið sjálft er drukk- ið í nokkrum sopum en talsvert lengri tími fer í athöfnina við að laga það. Vinnustofan verður í Kirsu- berjatrénu á Vesturgötu klukkan tvö og hálffjögur og verður Kaori á staðnum til klukkan sjö og geta áhugasamir um japanska tegerð kíkt við og fengið nánari útskýr- ingar á þessari aldagömlu hefð. - gló Aldagömul japönsk tehefð útskýrð Í dag verður hægt að kynna sér hefðbundna japanska teathöfn, kveikt verður á japönskum reykelsum og saga hefðarinnar útskýrð. MIKIL LIST Kaori sést hér hella upp á te eftir öllum kúnstarinnar reglum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÁHUGAVERT Það eru ýmiss konar áhöld sem fylgja tegerðinni. KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA bio. siSAM METRO NY NEW YORK DAILY NEWS SPARBÍÓ IN TOUCH VARIETY CHICAGO SUN TIMES FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS OG GUARDIANS OF THE GALAXY EMPIRE TOTAL FILMVARIETY Rannsókn hefur verið gerð á orðaforða tónlistar- manna sem eiga mest seldu lög allra tíma. Í ljós kom að flestir þeirra tónlistarmanna sem hafa fjölbreytt- asta orðaforðann eru rapparar. Þeir sem eru með minnstan orðaforða eru tónlistarmenn á borð við Bítlana, Mariah Carey og The Who. Rannsóknin var framkvæmd þannig að tekin voru 100 mest seldu lög frá 93 mest seldu tón- listarmönnum allra tíma. Þá var orðafjöldi hvers lags borinn saman og tekið mið af hversu oft sömu orðin komu fyrir. Það ætti ekki að koma á óvart að hipp- hopptónlist- armenn hafi trónað á toppn- um en sá sem á langfjölbreytt- asta orðaforðann er Eminem. Aðrir tónlistarmenn á toppi listans voru meðal annars Jay-Z, Tupac Shakur, Kanye West og Bob Dylan sem tekur einnig vinninginn fyrir að nota oftast ný orð, eða að meðaltali á níu orða fresti. Tónlistarsíðan Musixmatch sem sá um rann- sóknina segir að fjölbreyttur orðaforði geri ekki endilega tónlistina betri en að áhugavert sé að sjá hipp hopp tónlistarmennina eiga toppinn á listanum. Michael Jackson, Katy Perry og Neil Diamond eru undir meðallagi í orðaforða en Celine Dion og Prince ná að halda sig ofarlega á listanum. Rapparinn Eminem með fj ölbreyttasta orðaforðann Eminem tekur vinninginn fyrir fj ölbreyttasta orðaforðann á meðal mest seldu laga í heimi. Bítlarnir og Mariah Carey eru með þeim neðstu á listanum. EMINEM Rapparinn er með fjölbreyttasta orðaforða mest seldu listamanna allra tíma. BÍTLARNIR Það þykir sérkennilegt hversu lítil fjölbreytni er í textum Bítlanna. PIXELS 2, 5, 8, 10:15 ANT-MAN 3D 8, 10:30 SKÓSVEINARNIR 2D 2, 4, 6 MINIONS 2D 4, 6 TED 2 10:35 JURASSIC WORLD 2D 8 SKÓSVEINARNIR 3D 2 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL 2 SÝND í 2D OG 3D SÝND MEÐ ÍSL OG ENS TALI PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA KINGS OF LEON NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST #KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL 2 3 -0 7 -2 0 1 5 2 1 :5 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 D -6 6 9 4 1 5 8 D -6 5 5 8 1 5 8 D -6 4 1 C 1 5 8 D -6 2 E 0 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.