Fréttablaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 12
24. júlí 2015 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
R
agnheiður Elín Árnadóttir er ráðherra ferðamála og
hefur verið síðan í júní 2013. Óhætt er að segja að um
spennandi málaflokk sé að ræða, æ fleiri ferðamenn
sækja Ísland heim og þjóðarbúið fær síauknar tekjur
frá þeim gestum. Það er því uppgangur í ferðaþjónustu.
Sá uppgangur hefur verið mikill undanfarin ár, en var fyrir-
sjáanlegur. Árið 2011 fór fjöldi ferðamanna sem komu í gegnum
Leifsstöð í fyrsta skipti yfir hálfa milljón, en áætlað er að um 96
prósent allra ferðamanna komi þá leiðina inn í landið. Síðan hefur
orðið mikil fjölgun á hverju ári.
Það er því nokkuð sérkennilegt
að hlusta á ráðherra málaflokks-
ins tala eins og fjölgunin hafi
komið á óvart. Ragnheiður Elín
sagði í samtali við fréttastofu
RÚV að hún teldi nauðsynlegt að
ráðast í uppbyggingu á ferða-
mannastöðum og að styrkja
innviði ferðaþjónustunnar strax.
„Við þurfum að bæta úr vegna þess hversu fjölgunin hefur verið
hröð á undanförnum árum. Við vorum aðeins tekin í bólinu, það
er ekkert nýtt og ekkert sem er að gerast bara í sumar,“ sagði
Ragnheiður Elín.
Það er gott að nú eigi að fara að kynna nýja stefnu í málefnum
ferðaþjónustunnar, ekki veitir af. Trauðla er til atvinnuvegur hér
á landi sem búið hefur við jafn mikinn skort á stefnu og einmitt
ferðaþjónustan. En það er þetta með að við höfum verið tekin í
bólinu sem er athyglisvert.
Þegar Ragnheiður Elín tók við sem ráðherra málaflokksins var
hún fullvel meðvituð um fjölgun ferðamanna. Skyldi engan undra,
fyrri ríkisstjórn lagði mikið upp úr því að fjölga ferðamönnum
með átakinu Ísland allt árið og hver fræðingurinn á fætur öðrum
kepptist við að spá fyrir um hvenær fjöldi ferðamanna færi yfir
milljón á ári. Það mun líklega gerast í ár, í fyrra voru gestir í
Leifsstöð rúmlega 969 þúsund. Ragnheiður Elín ræddi málefni
ferðaþjónustunnar á Alþingi 14. júní 2013, þá rétt nýtekin við sem
ráðherra málaflokksins.
„Þar eru ómæld tækifæri með gríðarlegri fjölgun erlendra
ferðamanna,“ sagði ráðherra og fyrr um daginn hafði hún í fyrir-
spurn um hvalveiðar sagt: „Við höfum horft á mikla fjölgun ferða-
manna hingað og mikil tækifæri sem þar eru að skapast.“
Ragnheiður Elín þurfti heldur ekki að sækja vatn yfir lækinn
þegar kom að væntingum varðandi fjölgun ferðamanna. Í stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar er
kveðið á um að kannaðir verði möguleikar á gjaldtöku til upp-
byggingar ferðamannastaða „til að bregðast við auknum fjölda
ferðamanna í náttúru Íslands og tryggja sjálfbærni“.
Það hefur með öðrum orðum ekkert komið á óvart þegar kemur
að fjölgun ferðamanna. Hún hefur verið fyrirsjáanleg um langa
hríð og sjálfur ráðherra málaflokksins, Ragnheiður Elín Árna-
dóttir, hefur verið meðvituð um hana síðan hún tók til starfa. Það
er meira að segja gert ráð fyrir henni í stjórnarsáttmálanum.
Enginn hefur því verið tekinn í bólinu, nema kannski stjórn-
völd. Það hefði átt að vera forgangsverkefni ráðherra ferðamála,
bæði þessarar ríkisstjórnar og þeirrar síðustu, að bregðast við
þessari miklu fjölgun. Ekki að vera hissa þegar margspáð niður-
staða verður að veruleika.
Fjölgun ferðamanna á ekki að vera undrunarefni:
Margspáð fjölgun
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Nú er kominn tími til að rjúfa þögnina.
Þögnina sem umlykur kynferðisbrota-
mál hér á landi. Nú er kominn tími til að
kalla eftir breytingum og stuðla að betra
samfélagi. Samfélagi þar sem þolendur
kynferðisofbeldis geta stigið fram án þess
að vera kallaðir lygarar. Samfélagi þar
sem kynferðisofbeldi er ekki dagleg ógn.
Samfélagi sem horfist í augu við ofbeldi
en lítur ekki fram hjá því. Samfélagi sem
tekur ekki opinbera afstöðu með geranda.
Samfélagi þar sem börn eru frædd um að
beita ekki ofbeldi. Samfélagi sem skilur að
frávísun jafngildir ekki sakleysi.
Undanfarna mánuði hefur fjöldi fólks
stigið fram og skilað skömminni. Skömm-
inni sem alltof oft lendir á herðum þolenda
kynferðisofbeldis. Sú skömm á heima hjá
gerendum í öllum tilvikum. Það hefur
verið styrkjandi að sjá þennan fjölda stíga
fram og frelsa sig undan þögguninni, en á
sama tíma átakanlegt. Átakanlegt, því um
er að ræða mörg hundruð manns. Mörg
hundruð manns sem hafa burðast með
skömm alltof lengi. Við viljum ekki búa í
samfélagi þar sem slíkur fjöldi fólks hefur
orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þessu
þarf að breyta og það tafarlaust.
Með opinni umræðu um kynferðis-
ofbeldi getum við fyrst kafað ofan í mála-
flokkinn og fundið raunverulegar lausnir
á þessu illkynja meini sem hefur fengið að
liggja undir feldi í alltof langan tíma. Þess
vegna köllum við eftir því að þolendur,
aðstandendur, vinir, kunningjar eða hrein-
lega allir þeir sem eru á móti kynferðis-
ofbeldi rísi upp og kalli eftir breytingum.
Í sameiningu getum við breytt samfé-
laginu til hins betra. Hverju myndir þú
vilja breyta?
Við skipuleggjendur Druslugöngunnar
hvetjum alla til að láta sig málið varða
og birta sitt ákall undir myllumerkinu
#drusluákall. Druslugangan er vettvangur
þolenda kynferðisofbeldis og hefur verið í
forystu í baráttunni fyrir breyttu hugar-
fari og orðræðu um kynferðisofbeldi síð-
ustu ár. Okkar markmið er að stuðla að
betra samfélagi þar sem ábyrgð kynferðis-
glæpa liggur hjá gerendum en ekki þolend-
um. Í ár verður gangan farin í fimmta sinn
og vonumst við til þess að a.m.k. 20 þús-
und manns gangi með okkur. Gengið verð-
ur frá Hallgrímskirkju á laugardaginn nk.
klukkan 14 og eftir það taka við ræðuhöld
og tónlistaratriði á Austurvelli. Taktu þátt
og kallaðu eftir breytingu.
Við köllum eftir breytingu
SAMFÉLAG
María Rut
Kristinsdóttir
talskona
Druslugöngunnar
➜ Nú er kominn tími til að rjúfa
þögnina. Þögnina sem umlykur
kynferðisbrotamál hér á landi.
www.netto.is Kræsingar & kostakjör
KJÚKLINGABRINGUR
DANPO, 900 GR
1.479
ÁÐUR 1.761 KR/PK
Hittir naglann á höfuðið
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaga-
nefndar, gagnrýnir Isavia í samtali við
Kjarnann á miðvikudag. Þar segir hún
það súrrealískt að háum fjármunum
hafi verið varið í að fegra verslunar-
svæði Leifsstöðvar í stað þess að
stækka flugstöðina. Þetta er hárrétt
hjá Vigdísi. Keflavíkurflugvöllur er
yfirfullur öllum stundum af ferðafólki
og andrúmsloftið hið óþægilegasta.
Langar raðir og keppni um að ná
besta sætinu við kaffiteríuna eru
leiðindabyrjun á fríinu. Spáin gerir
ráð fyrir enn fleiri ferðamönnum
til landsins og aukinn kaupmáttur
verður vonandi til þess að Ís-
lendingar ferðist meira erlendis.
Djúsbarir og kaffivélar munu
engu skipta ef enginn getur
sest niður og notið frísins.
Vandræðalegt fyrir ráðherra
Utanríkisráðherra, Gunnar Bragi
Sveinsson, kallaði sendiherra Banda-
ríkjanna, Rússlands, Kanada, Noregs
og Danmerkur á fund eftir frétt
Fréttablaðsins um að Ísland hefði
verið skilið út undan við ákvörðun um
fiskveiðar í Norður-Íshafi. Þetta er
meiriháttar vandræðalegt fyrir Gunnar
Braga. Litla Ísland þykir ekki nógu
merkilegt til að taka þátt í samvinn-
unni en við það fer ráðherra í fýlu.
Það er hætt við því að sendiherrar
stærri ríkjanna hafi hlegið að
biturðinni og barnaskapnum
í ráðherra. Það skiptir engu
að ráðuneytið gefi út að
samkomulagið sé ekki
bindandi. Ríkin fimm
gerðu það sín á milli og
Ísland var ekki með.
Árni ver evruna
Í grein í Fréttablaðinu í gær skrifar
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, mikla varnargrein fyrir
hönd Evrópusambandsins og evrunnar
vegna Grikklands. Nærri í smáa letrinu
segir hann svo: „Aðild að evrunni
takmarkar vissulega möguleika Grikkja
á lausnum á núverandi vanda.“ Það
var krónan sem gerði það að verkum
að við gátum farið íslensku leiðina út
úr kreppunni. Hún er vissulega fyrir
okkur í góðu árferði en í þetta sinn
gerði hún okkur greiða. Fólk verður að
gera upp við sig hvort það vill óstöð-
ugan og erfiðan gjaldmiðil sem er
sveigjanlegur upp úr lægðinni eða
stöðugan gjaldmiðil sem er eins
og götótt net þegar í harð-
bakka slær.
snaeros@frettabladid.is
2
3
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
D
-4
D
E
4
1
5
8
D
-4
C
A
8
1
5
8
D
-4
B
6
C
1
5
8
D
-4
A
3
0
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K