Fréttablaðið - 24.07.2015, Blaðsíða 42
24. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| SPORT | 30
KÖRFUBOLTI „Ég hugsa um EM á
hverjum einasta degi,“ segir Hlyn-
ur Bæringsson, fyrirliði karla-
landsliðsins í körfubolta, í viðtali
við Fréttablaðið á fyrstu æfingu
liðsins fyrir Evrópumótið sem
hefst í Berlín fimmta september.
Hlynur segir drauminn ekkert
verða raunverulegri þótt æfingar
séu hafnar. Hann hefur svo marg-
oft æft með landsliðinu.
Þakklátur fyrir tækifærið
„Ég hef tekið þátt í þessu oft áður
en ekki því sem kemur seinna.
Það kemur bara síðar held ég,“
segir Hlynur sem er eðlilega mjög
spenntur fyrir að spila á fyrsta
stórmóti sem A-landslið kemst á.
„Ég hef sjaldan spilað í svona
umhverfi og svona höllum. Það
hefur einstaka sinnum gerst með
landsliðinu en aldrei á svona móti
á móti svona sterkum liðum. Ég er
bara mjög þakklátur að fá þetta
tækifæri,“ segir fyrirliðinn.
Ísland er í dauðariðlinum á
mótinu með Þýskalandi, Serbíu,
Ítalíu, Tyrklandi og Spáni. Marg-
ar NBA-stjörnur eru í hinum lið-
unum, en riðilinn hefði varla getað
verið erfiðari.
„Þetta eru svona fimm af átta
bestu þjóðum Evrópu. Að því leyti
er þetta svolítið óheppni því þessi
dráttur gerði líkurnar á að vinna
sigur ansi litlar,“ segir Hlynur.
Óheppnir með riðil
Hinir riðlarnir eru ekki jafn sterk-
ir þótt auðvitað séu bara bestu
þjóðir álfunnar mættar til leiks.
„Maður sá lið í hinum riðlunum
sem við höfum unnið einhvern tím-
ann og þá hefðum við getað gengið
frá mótinu með einn sigur eða tvo
kannski. Síðan kom þessi helvítis
riðill eins og hann er,“ segir Hlyn-
ur og bætir við:
„Þetta var svolítil óheppni en við
þurfum bara að nálgast þetta með
ákveðinni auðmýkt. Menn verða
alltaf sáttir við mótið, sama hvern-
ig það fer. Menn vilja bara ganga
stoltir frá þessu.“
Íslenska liðið hefur keppt marga
leiki og farið á Smáþjóðaleika
en aldrei verið í þessari stöðu.
Nú verður liðið meira og minna
saman í sex vikur fram að móti og
svo tekur við Evrópumótið sjálft.
Þetta er staða sem enginn þekkir
innan körfuboltans en það er ekk-
ert alltaf dans á rósum að halda
öllu gangandi í svona umhverfi.
Enginn prófað þetta áður
„Ég hef aðeins pælt í þessu. Ég
held að við þurfum að kynna okkur
þetta, sérstaklega fyrir síðustu
ferðina þar sem við erum 14-15
daga saman. Það er mikilvægt
bara upp á andlegu hliðina og við
verðum að vera tilbúnir fyrir allt,“
segir Hlynur.
„Þetta er mjög nýtt fyrir mig og
okkur alla. Ég get ekki leitað til
neins hérna því þetta er eitthvað
sem enginn hefur tekið þátt í.“
Alls var 21 leikmaður boðaður
til æfinga sem hófust á mánudag-
inn en á endanum verða aðeins tólf
sem fara til Berlínar.
„Það verður mjög leiðinlegt
fyrir þá sem detta út og því verður
samkeppnin mikil á æfingunum.
Það eru bara tólf sem fara þannig
það verður sárt fyrir einhverja en
því miður er það svoleiðis,“ segir
Hlynur Bæringsson. tomas@365.is
Nýtt fyrir okkur alla
Hlynur Bæringsson, fyrirliði karlalandsliðsins í körfubolta, segist þakklátur fyrir
að fá að spila á EM. Vorkennir þeim í æfi ngahópnum sem ekki fara til Berlínar.
FYRIRLIÐINN Hlynur Bæringsson leiðir íslensku strákana til leiks á EM í Berlín í september. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
365.is Sími 1817
Í dag og á morgun fara fram undanúrslitin í
Borgunarbikar kvenna. Hvaða lið tryggja sig áfram
í sjálfan úrslitaleikinn?
UNDANÚRSLIT
KVENNA
Í BORGUNARBIKARNUM
FÖS 24.07 klukkan 19:15 FYLKIR – STJARNAN
LAU 25.07 klukkan 14:00 SELFOSS – VALUR
FÓTBOLTI FH og KR féllu bæði úr
leik í 2. umferð forkeppni Evrópu-
deildarinnar í gær. FH-ingar fóru
til Aserbaídsjan þar sem þeir léku
við Inter Bakú. Hafnfirðingar voru
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en voru
þó marki undir að honum loknum.
FH byrjaði seinni hálfleikinn vel og
eftir sjö mínútna leik var staðan orð-
in 1-2, fimleikafélaginu í vil. Þórarinn
Ingi Valdimarsson og Kristján Flóki
Finnbogason skoruðu mörkin en sá
síðarnefndi var skömmu síðar rekinn
af velli fyrir litlar sakir. FH missti
einnig mann af velli í fyrri leiknum í
Kaplakrika sem Inter Bakú vann 1-2.
Einum færri náðu FH-ingar að
knýja fram framlengingu en strax í
upphafi hennar jafnaði Rauf Alieyv
metin í 2-2. Fleiri urðu mörkin
ekki og Inter Bakú fór áfram, 4-3
samanlagt.
KR-ingar sáu aldrei til sólar gegn
Rosenborg á Lerkendal-vellinum í
Þrándheimi. Topplið norsku úrvals-
deildarinnar vann fyrri leikinn 0-1
og eftir 18 mínútna leik í gær var
staðan orðin 3-0, Rosenborg í vil. Það
urðu lokatölur leiksins og Hólmar
Örn Eyjólfsson og félagar hans í
Rosenborg fóru örugglega áfram, 4-0
samanlagt. - iþs
FH og KR úr leik í Evrópudeildinni
FÓTBOLTI Fylkir tekur á móti Stjörnunni í undanúrslitum Borgun-
arbikarsins í kvöld en Stjörnukonur eru ríkjandi bikarmeistarar
eftir 4-0 sigur á Selfossi í úrslitaleiknum í fyrra.
Óhætt er að segja að ríkjandi Íslands- og bikarmeistar-
arnir séu sigurstranglegri en Stjarnan hefur unnið báða
leiki liðanna á þessu tímabili sannfærandi, 4-0. Í seinni
leiknum, sem fór fram á mánudaginn, skoraði Francielle
Manoel Alberto, brasilísk landsliðskona sem er nýgengin í
raðir meistaranna, þrennu, í sínum fyrsta leik fyrir Stjörnuna.
Fylkiskonur hafa verið á fínni siglingu að undanförnu en
fyrir tapleikinn gegn Stjörnunni voru þær búnar að vinna fjóra
deildarleiki í röð. Fylkir er þriðja árið í röð í undanúrslitum
bikarsins en Árbæjarliðið hefur aldrei komist í bikarúrslita-
leikinn. Litlu mátti muna í fyrra er Fylkiskonur töpuðu fyrir
Selfossi í vítaspyrnukeppni en þær eru eflaust staðráðnar í að
komast í fyrsta sinn á Laugardalsvöll. - kpt
Bikarmeistararnir mæta í Árbæinn
TRAUSTUR Hólmar Örn lék allan
leikinn í liði Rosenborg. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
GOLF Íslandsmótið í golfi hófst
í gær á Garðavelli á Akranesi.
Mótinu lýkur á síðdegis á sunnu-
daginn.
Þórður Rafn Gissurarson, GR,
lék manna best í gær; á alls 67
höggum, eða fimm höggum undir
pari. Þórður, sem hefur leikið á
nærri 20 atvinnumótum á þýsku
Pro Golf-mótaröðinni á þessu
ári, hefur ekki enn orðið Íslands-
meistari en byrjunin hjá honum í
ár lofar góðu.
Axel Bóasson, GK, er í 2. sæti en
hann lék á 69 höggum, eða þremur
höggum undir pari. Ragnar Már
Garðarsson, GKG, kemur næstur
í 3. sæti en hann lék á 70 höggum,
eða tveimur höggum undir pari.
Andri Már Óskarsson (GKG),
Haraldur Franklín Magnús (GR)
og Guðmundur Ágúst Kristjáns-
son (GR) eru jafnir í 4.-6. sæti en
þeir léku allir á 71 höggi, eða einu
undir pari. - iþs
Þórður efstur eft ir fyrsta daginn
Alls léku sex kylfi ngar undir pari á fyrsta degi Íslandsmótsins í golfi á Akranesi.
Á TOPPNUM Þórður Rafn Gissurarson er með forystu eftir fyrsta keppnisdaginn á
Íslandsmótinu í golfi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
2
3
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
D
-7
A
5
4
1
5
8
D
-7
9
1
8
1
5
8
D
-7
7
D
C
1
5
8
D
-7
6
A
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K