Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 6
6 ský
Útgefandi:
heimur hf.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Benedikt jóhannesson
og jón G. hauksson
Útlitshönnun:
heimur hf./sjonni@heimur.is
Ljósmyndir:
Geir Ólafsson
Páll kjartansson
Páll stefánsson o.fl.
Blaðamenn/greinarhöfundar:
atli Bollason
árni Þórarinsson
Benedikt jóhannesson
erla Gunnarsdóttir
helga kristín einarsdóttir
hilmar karlsson
hrund hauksdóttir
lizella
Páll ásgeir ásgeirsson
sigrún Davíðsdóttir
Auglýsingastjóri:
Vilhjálmur kjartansson
Prentun:
Oddi hf.
Heimur hf. – Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
heimur hf.
Borgartúni 23
105 reykjavík.
sími: 512-7575
Eru há laun hættuleg?
Margir velta því fyrir sér hvort nokkurt vit sé í því að einn maður fái tugi milljóna í laun á mánuði. Stundum einkennist umtalið af öfund, stundum af pólitík. En er það vont fyrir samfélagið að einhverjir fái
mjög há laun? Þeir sem hæstu launin hafa borga líka hæstu skattana. Þannig
leggja þeir líka mikið í samneyslu. Hæsti skattgreiðandi landsins vegna ársins
2006 er Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings. Hann greiðir um 400
milljónir til samfélagsins. Það er ástæða til þess að óska Hreiðari til hamingju
með þennan árangur. Miklar tekjur hans endurspegla góðan árangur Kaupþings
innan lands og utan. Það er gleðiefni að sjá að fyrirtækið hefur vaxið og dafnað
á undanförnum árum. Auk þess er það ánægjulegt að sjá hve þessi forystumaður
í atvinnulífinu leggur myndarlegan skerf til samfélagins. Fyrir þessa fjárhæð
má reka embætti umboðsmanns barna, Þjóðmenningarhúsið, Minningarsafn
um Halldór Laxness á Gljúfrasteini, fasteignir forsætisráðuneytisins, Vest-
Norrænt menningarhús í Kaupmannahöfn, Óbyggðanefnd, Ríkislögmann og
þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Í stað þess að agnúast út í há laun er miklu meiri ástæða til þess að þakka þeim
einstaklingum sem ákveða að halda búsetu hér á landi og leggja myndarlegan
skerf til uppbyggingar hér á landi þó að þeim væri eflaust í lófa lagið að fela sig
í einhverri skattaparadís. Það var ótrúleg bíræfni þegar þekktur viðskiptajöfur
sagðist hafa flutt til útlanda vegna þess að skólakerfið væri ekki nógu gott á
Íslandi. Hvað skyldi hann sjálfur hafa lagt til þess kerfis? Ekki krónu í tekjuskatt
því að hann reiknaði sér ekki nema örfáa tugi þúsunda í laun.
Nú á tímum er það nefnilega svo að það eru ekki bara einstök byggðarlög sem
vilja halda í einstaklingana, þjóðfélagið allt á í ákafri samkeppni við umheiminn
um hæfustu einstaklingana. Það geta verið margar ástæður fyrir því að menn
setjast að erlendis. Íslendingar keppa ekki um veður við Miðjarðarhafslönd.
En við getum keppt með hagstæðu skattaumhverfi, fjölbreyttri menningu og
traustum heilbrigðis- og menntakerfum. Þeir sem fá há laun stuðla að góðu
umhverfi hér á landi með háum skattgreiðslum.
Ef allir þeir sem bestar hafa tekjurnar hrekjast úr landi eða fela launin í
eignarhaldsfélögum tapar íslenskt samfélag. Tekjuskiptingin verður jafnari, en
tekjurnar í heild verða miklu minni. Líður einhverjum betur við það? sky
,
Benedikt Jóhannesson
sky
,
4.tbl.2007
Baltimore/
Washington
FARGJALD AÐRA LEIÐ FRÁ 24.050* KR.
‘07 70ÁR Á FLUGI
Glasgow
FARGJALD AÐRA LEIÐ FRÁ 11.560* KR.
W W W. I C E L A N DA I R . I S
KYNNTU ÞÉR ÚRVAL BORGARFERÐA,
SÉRFERÐA OG FERÐATILBOÐA Á WWW.ICELANDAIR.IS
– UPPLÝSINGAR UPPFÆRAST DAGLEGA.
Ferðaávísun gildir
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
Amsterdam
FARGJALD AÐRA LEIÐ FRÁ 15.060* KR.
Stokkhólmur
FARGJALD AÐRA LEIÐ FRÁ 13.360* KR.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
89
41
09
/0
7
* Með flugvallarsköttum.