Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 9

Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 9
 ský  Þ að kann að virðast mótsagnakennt: Yfir einum helsta baráttujaxli fyrir réttindamálum íslenskrar alþýðu gegnum áratugina er drottningarleg reisn. Hvort heldur hún mætir hippalega smart með mótmælaborða við aðgerðir Samtaka hernaðarandstæðinga gegn NATO- æfingunni Norðurvíkingi í sumar, leðurklædd, flegin og ögrandi í Gay Pride-gönguna eða spígsporar frjálsleg og fræðandi um miðbæ Reykjavíkur með hópa af erlendum eða innlendum viðskiptavinum Menningarfylgdar Birnu, hávaxna og granna baráttukonan hefur stíl og klassa. Kannski ber hún sig svona vel vegna þess að þegar hún var unglingur fékk hún það erfiða verkefni hjá móður sinni að ganga með þá níðþungu bók Fjallkirkjuna eftir Gunnar Gunnarsson á höfðinu, svo hún yrði ekki bogin í baki. Kannski er reisnin einfaldlega til marks um að hún lætur engan og ekkert vaða yfir sig og málstaðinn sem hún hefur barist fyrir í fjörtíu ár. Margt hefur gengið á. En núna, þegar Birna Þórðardóttir er orðin fimmtíu og átta ára, er hún ekki lengur litin hornauga sem krónískur mótmælandi og skelfir borgarastéttarinnar í slagsmálum við löggur. Jafnvel fólk sem ekki er sammála skoðunum hennar eða baráttuaðferðum getur varla annað en borið virðingu fyrir henni. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur hóf pistil í Fréttablaðinu í sumar með þessum orðum: „Af hverju fer félagsskapurinn sem kallar sig Saving Iceland svona gegndarlaust í taugarnar á Íslendingum, nánast hvar í flokki sem þeir standa, og alveg óháð afstöðu þeirra til náttúruverndarmála? Það er ekki eins og við séum alveg óvön mótmælum og sumt fólk sem þau hefur iðkað af ástríðu um árabil nýtur jafnvel virðingar með þjóðinni fyrir staðfestu sína og hugsjónir - eins og til dæmis hin ástsæla Birna Þórðardóttir.“ Það lifnar yfir mótmælandanum þegar ég les þessi orð fyrir hana. „Elsku, Guðmundur Andri. Mikið er þetta fallegt. Mér snarhlýnaði um hjartarætur þegar ég heyrði þessi orð, ekki síst vegna þess að við Guðmundur Andri höfum ekkert verið að abbast hvort upp á annað í áranna rás.“ Hún er þó ekki viss um að almenn breyting hafi orðið á viðhorfum fólks til þeirra málefna sem hún hefur staðið fyrir. „En fólk er ekki fífl. Yfirleitt held ég að það virði þá sem standa með sjálfum sér. Það Texti: Árni Þórarinsson Myndir: Geir Ólafsson o.fl. Í fjóra áratugi hefur Birna Þórðardóttir verið eins konar persónugervingur pólitískra mótmæla gegn misrétti og stríðsrekstri. enn tekur hún virkan þátt í slíkum aðgerðum þegar við á. en baráttukonan er líka komin út í bissniss. hér segir Birna frá litríkri ævi og ástum í tímans rás. Drottning andófsins Birna Þórðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.