Ský - 01.08.2007, Side 10

Ský - 01.08.2007, Side 10
10 ský hef ég alltaf gert og hvorki beðist afsökunar á því né skammast mín fyrir það. Ef ég væri í vörn gagnvart sjálfri mér gæti ég ekki haldið þessu lífsbaksi áfram. Undirstaðan er að vera sátt við sjálfa sig. Það hef ég verið mestanpart, þótt auðvitað megi eitt og annað betur fara ef grannt er skoðað. Fólk sem skiptir um skoðanir eftir því hvernig vindurinn blæs eða eftir þjóðfélagslegum hentugleikum er býsna gegnsætt; ég held að það njóti ekki sérstakrar virðingar.“ En hvað finnst henni um unga fólkið í Saving Iceland og baráttu þeirra? „Aðalatriðið er að fólk hugsi. Ég þekki ekki þennan hóp vel en mér virðist þau hafa velt málunum fyrir sér. Og mér finnst fjölmiðlar ekki hafa sinnt vitsmunalegu inntaki málstaðar þeirra sama áhuga og baráttuaðferðunum; það virtist ekki eins söluvænlegt og að velta sér upp úr birtingarmyndum andófs sem auðvelt er að sproksetja.“ Þau gerðu nú töluvert í því sjálf að snúa andófinu upp í eins konar sirkus? „Já. Og það er umdeilanleg aðferð. Ég ætla ekki að dæma þessar aðferðir þeirra. Sjálf hef ég gert eitt og annað á lífsleiðinni sem betur hefði mátt gera. Hver verður að ráða sér í þessu. Ég bara fagna því ef til er ungt fólk sem gengur gegn þessum þunga meginstraumi. Flestir fylgja honum vegna þess að það er svo þægilegt. Of mörgum finnst hentugra að vera, en hvorki hugsa né gera.“ Hér og þar Birna hóf sína baráttugöngu fyrir betri heimi í Víetnamstríðinu árið 1967. En væri hún að leggja af stað árið 2007 telur hún líklegt að hún myndi slást í hópinn með Saving Iceland. „Náttúruverndin er meginbaráttumál til framtíðar. Okkur hefur fundist að við ættum ofgnótt í náttúruauðlindum; landið var óhagganlegt, fiskurinn átti að vera endalaus, sjórinn geta tekið við öllu drasli og úrgangi sem við sendum frá okkur, vatnið í ánum átti að vera eilíft, amen. Svo vöknum við upp einn daginn og sjáum ísbjörn á svamli að berjast fyrir lífi sínu í íslausu hafi. Stundum er eins og við höfum meiri samkennd með öðrum skepnum en mannskepnunni.“ Hún er fædd og uppalin til fjórtán ára aldurs í fámennu og einangruðu þorpi í Borgarfirði eystri. Var hún þá meðvituð um náttúruna um í kringum sig og gildi hennar? „Ég var bara hluti af náttúrunni,“ segir hún. „Mér hefur aldrei dottið í hug að ég gæti átt náttúruna eða eignað mér hana. Blómið á túninu átti sig sjálft. Ég pældi heldur ekki í því hvort einhver ætti náttúruauðlindirnar, eins og miðin sem færðu okkur fisk. Ekki fyrr en ég fór að vinna í frystihúsi kaupfélagsins og áttaði mig á að það átti fiskinn og eiginlega allt annað í þorpinu líka.“ Með börnum sínum, Ingólfi og Ragnhildi: „Þau hafa algjörlega fengið að ráða sér, hafa sínar skoðanir og eru ólík ...“

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.