Ský - 01.08.2007, Síða 23
ský 23
Ekkert handrit
„Það er frekar erfitt að að lýsa myndinni,“ segir Jörundur. „Fyrir
það fyrsta unnum við ekki eftir neinu handriti, heldur aðeins eftir
hugmynd sem kom upp á yfirborðið hjá okkur þegar við ræddum
verkefnið og er þar af leiðandi er Chocolate Au Lait að okkar mati
frumleg stuttmynd. Myndin er tekin í svarthvítu og er þögul en með
texta. Hún byrjar þannig að ég er með box af konfekti og upp úr
þurru fæ ég lak yfir höfuðið og mér hverfur sýn. Þegar ég ranka við
mér er súkkulaðið horfið og myndin að verða búin, en eins og ég
sagði, er erfitt að lýsa henni nánar og sjón er sögu ríkari.“
Jörundur, Freyr og Róbert eru bekkjarfélagar í Vogaskóla: „Freyr
tók upp myndina, enda átti hann tökuvélina og sá að mestu leyti um
klippinguna, og við Robert lékum í myndinni og höfðum nokkuð
frjálsar hendur. Það sem gerði sigurinn enn sætari var að Chocolate
Au Lait var nánast gerð á einum degi og án undirbúnings. Það fór
ekki nema rúmur klukkutími í upptökur. Hugmyndin kom fljótt og
síðan var myndin klippt og fínpússuð en það tók mun lengri tíma
heldur en upptakan sjálf.“
Ætla að vinna aftur
Jörundur hefur ekki áður komið nálægt kvikmyndagerð en nú er
áhuginn orðinn mikill: „Það eina sem ég hef komið nálægt slíku var
þegar ég var smástrákur valinn til að leika í öryggisauglýsingu fyrir
Icelandair, auk þess sem ég var á stuttmyndanámskeiði í skólanum
sem valgrein. Ég ætla aftur á slíkt námskeið í vetur og stefnan er að
fá sér tökuvél og það gæti alveg eins farið svo að ég myndi leggja
fyrir mig kvikmyndagerð í framtíðinni. Ég hafði mjög gaman af
þessu öllu og sigurinn sem fylgdi í kjölfarið jók spennuna hjá mér
fyrir slíku námi.“
Þeir félagar ætla að taka aftur þátt í stuttmyndakeppni
grunnskólanna á næsta ári: „Það er engin spurning um það, við
ætlum að vinna aftur.“
Ungir kvikmyndagerðarmenn úr Vogaskóla,
Freyr Sverrisson, Jörundur Jörundsson og
Róbert Barkarson.
sky
,
stuttmyndasamkeppni
Svipmyndir úr
verðlaunamyndinn
i