Ský - 01.08.2007, Síða 29
ský 2
Siglfirðingar
leynast víða
krIstJán l. Möller, samgönguráðherra, ólst upp við pólitík
líkt og Illugi, Sigríður Anna og Birkir Jón en faðir hans, Jóhann G.
Möller, var mikill jafnaðarmaður og virkur í stjórnmálalífi bæjarins.
„Ég varð snemma fyrir áhrifum af pólitíkinni því faðir minn,
Jóhann G. Möller, var mjög mikill jafnaðarmaður og virkur
þátttakandi í Alþýðuflokknum og verkalýðshreyfingunni alla sína tíð.
Móðir mín er líka mikil jafnaðarkona og með sterka réttlætiskennd.
Ég ólst því upp við þetta og þetta var gott uppeldi.“
Samgöngumiðstöð bæjarins
Kristján bjó á Hverfisgötu 11 þar til hann var níu ára gamall en þá
fluttist fjölskyldan á Laugarveg 25 sem er innar í bænum.
„Þegar við fluttum minnist ég þess að ég gekk „suður eftir“ með
köttinn okkar og skildi ekkert í því hvers vegna við værum að flytja
fram í sveit! En það var frábært að alast upp á Siglufirði, þó svo að
ég hafi rétt náð í skottið á hinu raunverulega síldarævintýri og þeirri
miklu stemningu sem þar ríkti. Ég var heppinn því ég fékk vinnu
sem sendill í Versluninni Ásgeiri sem Jónas Ásgeirsson skíðakappi
og Margrét kona hans ráku. Verslunin Ásgeir var miðdepill alls í
bænum, alltaf líf og fjör og verslunin eins og samgöngumiðstöð
bæjarins,“ lýsir Kristján og segir jafnframt:
„Þetta var minn háskóli, mikið líf og fjör, margir viðskiptavinir
og mikil skoðanaskipti á bæjarmálum og landsmálum, fjölmargir
sjómenn og aðkomufólk.“
Hleður batteríin
Siglfirðingar eru um tíu þúsund talsins en í dag búa um 1350 manns
á Siglufirði. Kristján segir Siglfirðingum ekkert hafa fækkað, heldur
séu þeir á fleiri stöðum. „Skýringin á mörgum Siglfirðingum í pólitík
er sú sama og á því hvað Siglfirðingar eru á mörgum vígstöðum. Þeir
eru víðs vegar um landið og um heiminn að vinna þar hin ýmsu
trúnaðarstörf fyrir heimssamfélagið,“ segir Kristján sem heimsækir
heimabæ sinn oft en þangað finnst honum nauðsynlegt að koma
reglulega og þar er gott að hlaða batteríin.
En aðspurður um afskipti Kristjáns af stjórnmálum svarar
hann: „Þátttaka í stjórnmálum hvað varðar framboð hjá mér kom
ekki til fyrr en árið 1986. Áður hafði ég verið embættismaður
Siglufjarðarkaupstaðar og fannst það ekki fara saman, ég fór sem sagt
í framboð fyrir Alþýðuflokkinn í bæjarstjórnarkosningunum 1986
og unnum við stórsigur. Ég sat síðan í bæjarstjórn í tólf ár, þar af tíu
sem forseti bæjarstjórnar. Við stofnun Samfylkingarinnar var skorað
á mig að gefa kost á mér til framboðs í gamla Norðurlandskjördæmi
vestra og fór ég í prófkjör á haustmánuðum 1998 og hafði sigur og
leiddi þann lista í kosningum árið 1999.“
fjórir stjórnmálamenn
LAUGARVEGUR 25 - Kristján Möller.
sky
,