Ský - 01.08.2007, Qupperneq 30
Höfundur textans er Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur sem skrifaði nokkrar feikilega vinsælar skáldsögur á sjötta og sjöunda áratugnum. Indriði var alinn upp á Gilhaga í
Skagafirði en fluttist ungur maður til höfuðborgarinnar. Í skáldsögum
sínum 79 af stöðinni og Land og synir tekst honum að endurspegla
þær gríðarlegu breytingar sem voru að verða á íslensku samfélagi á
þessum tíma, í kjölfar mikilla fólksflutninga úr sveit í borg.
79 af stöðinni kom út árið 1955 og naut mikilla vinsælda.
Guðlaugur Rósinkrans, þáverandi Þjóðleikhússtjóri, samdi nokkrum
árum seinna kvikmyndahandrit eftir sögunni í einhverju samráði við
Indriða. Handritið varð að kvikmynd sem var tekin upp á Íslandi
sumarið 1962 í leikstjórn hins danska Eriks Balling. Fyrirtækið Edda
Film lét gera myndina sem kostaði tvær milljónir króna. Sjálfsagt má
deila um hvort myndin var dönsk eða íslensk en í augum Íslendinga
var hún íslensk, með Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörgu Kjeld í
burðarhlutverkum, tekin á Íslandi og leikin á íslensku. Í Danmörku
hét myndin Pigen Gogo eftir konunni sem Kristbjörg lék og sagan
hverfist um.
Í kvikmyndinni er eitt atriði tekið upp á Hótel Borg og þar er
hljómsveit að spila fyrir dansi og Ellý Vilhjálms syngur lagið Vegir
liggja til allra átta.
Kvikmyndin var frumsýnd 12. október 1962 við stórgóðar
undirtektir og árið eftir kom út hljómplata með laginu sem varð
strax gríðarlega vinsælt og hefur lifað góðu lífi á vörum þjóðarinnar
til þessa dags.
Sumarið 1962 var Indriði G. Þorsteinsson 36 ára gamall
ritstjóri og rithöfundur og hefur væntanlega verið að leggja síðustu
hönd á næstu skáldsögu sína Land og synir sem kom út 1963.
Sigfús Halldórsson var 42 ára gamall og var orðinn eitt vinsælasta
dægurlagatónskáld þjóðarinnar, með lögum eins og Tondeleyo og
Litlu flugunni sem voru risasmellir eins og sagt væri í dag.
Lagið sem tryggði vinsældir Ellýjar
Ellý Vilhjálms sem söng lagið var 27 ára gömul og var að stíga sín
fyrstu skref sem söngkona með KK-sextettinum. Ellý söng inn á
sína fyrstu hljómplötu árið 1960 og annað tveggja laga af henni,
Ég vil fara upp í sveit, varð talsvert vinsælt. Lítil plata með Vegir
eitt af vinsælustu dægurlögum á Íslandi á tuttugustu öld er lag
sigfúsar halldórssonar við texta indriða G. Þorsteinssonar Vegir
liggja til allra átta. til þess að það yrði til í þeirri ódauðlegu
mynd sem flestir þekkja þurftu nokkrir snjallir listamenn að leggja
saman krafta sína sem annars voru ekki vanir að vinna saman.
Stefnumót
Vegir liggja til allra átta
enginn ræður för,
hugur leitar hljóðra nátta,
er hlógu orð á vör.
og laufsins græna á garðsins trjám
og gleðiþyts í blænum.
Þá voru hjörtun heit og ör
og hamingja í okkar bænum.
Sigfús Halldórsson
tónskáld.
Sigfúsar og
30 ský
Texti: Páll Ásgeir Ásgeirsson Myndir: Mbl.
M
yn
d:
Ó
la
fu
r
K
. M
ag
nú
ss
on
.