Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 34

Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 34
3 ský Á Akureyri bjó til skamms tíma vanaafbrotamaður sem fékkst við innbrot. Lögreglan var alltaf mjög fljót að rekja innbrot til hans því hann notaði alltaf sérstaka vettlinga með sjaldgæfu gúmmímynstri við verkin og þekkti lögreglan því ummerki hans án flókinna rannsókna. Þetta varði þar til seinheppinn lögreglumaður glopraði því út úr sér við þjófinn hvernig hann þekktist og eftir það gætti hann sín betur. Maður nokkur sem fengist hafði við afbrot um hríð sneri frá villu síns vegar og hvarf til hefðbundinnar launavinnu. Fljótlega hafði hann komið undir sig fótunum svo vel að hann fluttist inn í nýbyggt raðhús í Sandgerði með eiginkonu sinni. Í veglegu innflutningshófi þar sem vín var frjálslega haft um hönd sinnaðist þeim hjónum verulega og gekk húsbóndinn á dyr seint um kvöldið. Í reiði sinni ákvað hann að hefja afbrotaferil á ný og hafði engar vöflur á heldur ákvað að brjótast inn í eitt af raðhúsunum. Vegna ölvunar mannsins varð fljótt vart við ferðir hans og lögreglan kom á staðinn þegar hann var kominn hálfur inn um glugga en þá kom einnig í ljós að hann var ekki nógu vel kunnugur í hverfinu og var því að brjótast inn heima hjá sér. Maður nokkur kom eitt sinn inn á lögreglustöðina á Akureyri og var mikið niðri fyrir því bíll hans hafði verið skemmdur í stæði þar í bænum rétt á meðan hann brá sér frá. Hann vildi að lögreglan gengi þegar í málið og fyndi þrjótinn sem hefði skemmt ágæta bifreið hans. Meðan á fundinum stóð barst símtal frá Rannsóknarlögreglu ríkisins til lögreglumannsins þar sem hann var beðinn að handtaka tiltekinn mann um leið og vart yrði við ferðir hans á Akureyri. Það reyndist einmitt vera sá sem sat hinumegin við borðið og leitaði réttar síns hvað ákafast svo heimatökin reyndust venju fremur hæg í það skipti. Afbrotamenn hafa nefnilega býsna sterka réttlætiskennd eins og sést best af því að eitt sinn var brotist inn á myndbandaleigu og stolið fjölda myndbanda. Eigandinn lagði ríka áherslu á að lögreglan endurheimti talsvert magn klámmynda sem var hluti þýfisins og gleymdi því alveg í hita leiksins að varsla og útleiga slíkra mynda er kolólögleg. Einn af góðkunningjum lögreglunnar á árum áður fékk oft að gista á Hverfisgötu en það fyrirkomulag tíðkast reyndar enn. Þessi snillingur var gjörkunnugur húsaskipan lögreglustöðvarinnar og var eitt sinn gripinn þegar hann var að læðast út í lögreglubúningi. Hann féll ekki nógu vel inn í hópinn því hann hafði komist upp á efri hæðir og stolið einkennisbúningi þáverandi yfirlögregluþjóns. Einn þekktur innbrotsþjófur fór inn í ölgerð Egils Skallagrímssonar að næturþeli en var svo óheppinn að slasa sig svo hann neyddist til að hringja á sjúkrabíl. Í ljós kom að slysið mátti rekja til skorts á lögboðnum öryggisbúnaði við vélbúnað og þjófurinn sem bjó yfir sterkri réttlætiskennd sótti rétt sinn með málaferlum og varð ölgerðin að lokum að greiða honum einhvers konar slysabætur. Stéttarbróðir hans sem braust inn á Seltjarnarnesi skarst talsvert á höndum við innbrotið en komst af vettvangi af sjálfsdáðum með nokkurt þýfi. En blóðslóðina röktu lögreglumenn í rólegheitum þráðbeint frá innbrotsstað að heimili hans og málið var því ekki lengi óupplýst. Sami atvinnubrotamaður þótti sýna talsverða bíræfni í bland við hugmyndaflug þegar hann komst að því að hann átti reikning í Landsbankanum með 21 krónu. Hann bað bankann að gefa út ávísun með þessari upphæð og var orðið við þeirri beiðni. Okkar maður fór beina leið til prests og lét gifta sig og hélt veglega veislu á einu af veitingahúsum bæjarins og greiddi veisluföngin með ávísuninni góðu. Hann var reyndar búinn að hækka upphæðina verulega en komst upp með svindlið um stund þar sem ávísun frá bankanum þótti traustvekjandi. Í byggðarlagi á Vestfjörðum bjó maður sem vann að endurbótum á húsi sínu og vantaði sárlega burðarbita til að skjóta undir gólf milli hæða. Hann fór á stúfana að næturþeli og sótti niður að höfn límtrésbita einn allgóðan sem hann hafði séð liggja þar fyrir utan vörugeymslu. Réttur eigandi bitans hringdi í lögreglu snemma morguninn eftir og við vettvangskönnun reyndist auðvelt að rekja slóð bitans í nýfallinni mjöll heim að dyrum þjófsins. Auk refsingar hafði hann það upp úr krafsinu að gárungar kölluðu hann Bjössa bita árum saman eftir þetta. Það eru ekki bara til seinheppnir afbrotamenn heldur líka seinheppnir lögreglumenn. Einn slíkur starfar í sveitarfélagi ekki langt frá Reykjavík. Þar annast lögreglan einnig sjúkraflutninga og einn daginn barst beiðni um aðstoð frá manni við Geysi sem talinn var bráðveikur, líklega með hjartastopp. Umræddur lögreglumaður ók þegar af stað á sjúkrabílnum en læknir var á staðnum hjá sjúklingi. Skömmu síðar var aftur hringt og spurt hvað tefði sjúkrabílinn. Kallað var strax í talstöð og lögreglumaðurinn spurður hvar hann væri. Hann reyndist vera staddur við Árbæjarhverfi á leið í bæinn og hafði steingleymt að sækja sjúklinginn. sky, M yn d: M B L/ A rn al du r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.