Ský - 01.08.2007, Page 40
0 ský
tónlist
með nokkrum leikkonum og það voru hæg heimatökin því við
vorum allar að starfa í Þjóðleikhúsinu á þessum tíma. Bandið varð
til og þáverandi þjóðleikhússtjóri var svo frábær að leyfa okkur að
æfa þar. Þetta var eiginlega eins og saumaklúbbur fyrst nema það
var verið að taka í hljóðfæri en ekki að prjóna. Allt í einu vorum við
farnar að spila opinberlega eftir nokkurra vikna æfingar. Þetta gerðist
allt mjög hratt og eitt leiddi af öðru.
Hvers konar tónlist spilið þið?
elva: Tónlistin sem við spilum í dag er sixtís. Stefnan mótaðist
í rólegheitum og þróunin fór í gegnum allskonar skeið. Um tíma
sömdum við eingöngu mjög þunga og hádramatíska texta. Það
virkaði ekki alveg fyrir okkur. Stíllinn á sjálfsagt eftir að halda áfram
að þróast því nú semjum við sjálfar og gefum út disk um jólin.
katla: Við æfum í törnum en í september byrjar ein slík því
jóladiskurinn er í smíðum. Við erum komnar með fast æfingarhúsnæði
en þau hafa verið af ýmsum toga. Ég held að toppnum hafi verið náð
þegar við nýttum kompu á háalofti Borgarleikhússins og þurftum að
klöngrast með hljóðfærin eftir ljósabrúm í margra metra hæð yfir
stóra sviðinu!
Nú hafa verið mannabreytingar hjá ykkur en hvernig ákveðið þið
hljóðfæravalið?
elva: Jú, jú, það hafa orðið mannabreytingar á hljómsveitinni.
Fyrir þremur árum hætti Halldóra Björnsdóttir og inn komu nýir
meðlimir, þær Katla Margrét og Ragga Gísla. Eins og alþjóð veit er
Ragnhildur menntuð og framúrskarandi tónlistarmaður.
katla: Við hinar höfum flestallar einhverja tónlistarmenntun að
baki en við skiptumst á hljóðfærum og leikum okkur svolítið með
þetta.
elva: Bassinn er mitt hljóðfæri en mér finnst til dæmis rosagaman
að spila á trommur.
Fyrr á árinu gáfuð þið út diskinn Herra ég get tjúttað, hvernig
hefur honum verið tekið?
katla: Við höfum haft nóg að gera í sumar, bæði í bænum og eins
úti á landi. Alls staðar er dekrað við okkur, dælt í okkur kampavíni
og kræsingum. Útgáfufyrirtækið á bak við okkur heitir SÖGUR en
þar eru miklir öðlingsmenn sem hafa komið ýmsu til leiðar. Núna
erum við komnar með umboðsmann sem kemur til með að breyta
miklu fyrir okkur.