Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 43
ský 3
burðardýranna
Á frjálsa alfræðiritinu á Netinu, Wikipediu, má finna eftirfarandi skilgreiningu á burðardýri: Burðardýr er húsdýr sem notað er til burðar. Burðurinn getur verið allavega, allt
frá að flytja nauðsynjavörur frá kaupstað út í sveit, eða efnisburður
þar sem ekki verður komið við venjulegum vinnuvélum, eins og til
dæmis þegar byggja á kirkju upp í bröttum hlíðum fjalls. Burðardýr
er einnig haft um mann sem flytur ólögleg fíkniefni (eða aðra smyglvöru)
yfir landamæri á annars vegum og fær greitt fyrir það.
Hún í framhaldsskóla, hann heimilislaus
Nýlega féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness yfir 19 ára hollenskri
stúlku og 28 ára hollenskum karlmanni fyrir að smygla rúmu kílói af
kókaíni til landsins í byrjun apríl á þessu ári. Var konan dæmd í 14
mánaða fangelsi en maðurinn í 16 mánaða fangelsi og voru þau látin
greiða tvær milljónir í málsvarnarlaun og annan sakarkostnað. Fólkið
sagðist ekki þekkja hvort annað en hluti af ráðabrugginu var að þau
áttu að látast vera par til að minnka grunsemdir. Þau földu efnin
innvortis og innanklæða og bæði sögðust hafa flutt efnin inn gegn
greiðslu frá fólki í Hollandi sem þau vissu einungis fornöfn á. Að því
er fram kemur í dómnum leikur ekki vafi á því að bæði hafi þau verið
burðardýr og að þau hafi ekki átt frumkvæði að flutningunum.
Athygli vekur að konan kvaðst hafa átt að fá ferðina til Íslands,
hótel og uppihald á Íslandi, fyrir flutninginn og ef hún ætti að fá
frekari greiðslur yrðu þær við afhendingu efnanna hérlendis. Að sama
skapi sagðist maðurinn hafa átt að fá 7400 evrur fyrir ferðina sem
samsvarar tæplega sex hundruð þúsund krónum.
Konan á stutt eftir í námi í framhaldsskóla í heimalandi sínu og
vann sem sölumaður í skartgripaverslun með skólanum áður en hún
hélt í hina afdrifaríku ferð hingað til lands. Hún var búsett heima
hjá foreldrum sínum og yngri systkinum. Við yfirheyrslur sagðist
maðurinn vera heimilislaus og að sig hafi vantað peninga meðal
annars til að greiða fyrir læknisaðstoð vegna heyrnarvandkvæða.
Hann sagðist ekki geta fengið vinnu í Hollandi þar sem hann væri
heimilislaus.
16 ára smyglari og Idol-stjarna
Það rak marga landsmenn í rogastans í sumar þegar fréttir bárust af
því að 16 ára stúlka hefði verið gripin á Keflavíkurflugvelli ásamt
tæplega þrítugum unnusta sínum þegar þau reyndu að smygla
um hálfu kílói af kókaíni til landsins. Efnin voru falin innvortis í
smokkum sem komið var fyrir í endaþarmi. Andvirði efnanna var
talið um 30 milljónir króna.
Parið var á leið frá Venesúela og kom hingað til lands í gegnum
Bandaríkin. Stúlkan átti 16 ára afmælisdag daginn áður en hún var
handtekin. Hún er sakhæf en afar sjaldgæft er að svo ungt fólk sé
handtekið fyrir að smygla fíkniefnum og það í svo miklu magni sem
raunin var í þessu máli. Bæði játuðu verknaðinn en hvorugt þeirra
er talið burðardýr.
„Þó nokkur hluti af fíkniefnum kemur ár hvert
til landsins en stærstur hlutinn kemur með
burðardýrum og í flestum tilvikum þykist
viðkomandi ekki vita hvað var í töskunni sinni.“
smygl
Texti: Erla Gunnarsdóttir
Myndir: Geir Ólafsson og Mbl.